14.01.1988
Efri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4043 í B-deild Alþingistíðinda. (2817)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þar sem ríkisstjórnin tók í morgun ákvörðun sem snýr að þessu alvarlega vandamáli, sem er ammoníaksgeymsla Áburðarverksmiðju ríkisins teljum við flm. þessarar tillögu á þskj. 512 ekki rétt að halda henni til streitu þar sem augljóst er að meiri hl. hér í deildinni mundi fella tillöguna ef hún yrði nú borin undir atkvæði. Við teljum að vísu að það sé óþarfa meinbægni af hálfu meiri hl. Við höfum kynnst því á öðrum sviðum, látum það hins vegar ekki hafa áhrif á málefnið sjálft sem okkur skiptir öllu. Þess vegna höfum við ákveðið, herra forseti, að draga tillöguna til baka.