14.01.1988
Sameinað þing: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4048 í B-deild Alþingistíðinda. (2826)

170. mál, veiting atvinnurekstrarleyfa til erlendra ferðaskrifstofa

Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég get verið sammála hv. þm. um að hér þurfi að hyggja mjög vel að og að sjálfsögðu er náið samtarf á milli félmrn. sem fer með atvinnuleyfi til handa útlendingum og samgrn. sem fer með ferðamálin. Við þurfum hins vegar að átta okkur á því að hingað eru að koma útlendingar í stuttan tíma og lagaboð varðandi þeirra komu hingað verðum við að reyna að gera með þeim hætti að það nái allt sínum tilgangi. Einmitt út af því sem hv. 2. þm. Austurl. vék að varðandi náttúruvernd og annað slíkt, sem vissulega er eitt af því sem verður að gæta mjög vel að, þegar um er að ræða slíka hópa, hefur Ferðamálaráð beitt sér fyrir því að koma á framfæri við þessa aðila bæklingum sem gera mönnum grein fyrir þeim sjónarmiðum sem hér gilda í þessum efnum.

Ég vil í lok þessarar fsp. geta þess að ég hef hug á að koma fram breytingum á lögunum um ferðamál fyrir þinglok og þá fáum við tækifæri til þess einmitt að ræða þau samskiptamál sem hér er vikið og vissulega er ástæða til að gera svo áður en því þingi lýkur sem nú situr.