14.01.1988
Sameinað þing: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4056 í B-deild Alþingistíðinda. (2836)

222. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Á þskj. 497 flyt ég fsp. til ráðherra Hagstofu Íslands um vísitölu framfærslukostnaðar, um það efni hvað líði upptöku nýs vísitölugrundvallar framfærslukostnaðar.

Ég vildi leyfa mér af þessu tilefni að rifja upp, herra forseti, að ég hef flutt á Alþingi ítrekað frv. til laga um breytingu á lögum um vísitölu framfærslukostnaðar þar sem gert er ráð fyrir að vísitölunni verði hagað þannig að þar megi mæla breytingar á framfærslukostnaði einstakra tekjuhópa, t.d. láglaunafólks, og eins mismunandi framfærslukostnað eftir landshlutum. Því miður hefur þessi till. mín ekki náð hér fram að ganga, en um leið og ég spyr hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands um þetta mál vil ég inna hann eftir því hvort nokkuð liggur fyrir varðandi efnisatriði og breytingar á vægi einstakra neysluþátta í nýjum grunni vísitölu framfærslukostnaðar sem unnið er að.

Ég vil einnig inna hann eftir því hvort unnt er að lesa út úr þeim gögnum sem liggja fyrir mismunandi kostnað við lífsframfærslu eftir landshlutum. Ég held að það væri mjög æskilegt, herra forseti, að þessum spurningum verði svarað. Ég mun síðan gera ráðstafanir til þess að Alþingi verði með einhverjum hætti birtur vísitölugrunnurinn, þ.e. samsetning vísitölu framfærslukostnaðar. Þetta er málefni sem iðulega ber á góma á hv. Alþingi og það er nauðsynlegt fyrir þm. að vita hvernig þessi mikilvæga mæling á framfærsluvísitölunni á sér stað.

Ég vil síðan taka fram af minni hálfu, herra forseti, að ég er ekki með þessari fsp. endilega að reka á eftir því að hinn nýi grunnur verði látinn taka við af þeim gamla. Ég geri ráð fyrir að í nýja grunninum séu matvæli t.d. léttari en í þeim gamla og ég held að slíkur grunnur sé þess vegna óhagstæðari í raun fyrir láglaunafólk en gamli grunnurinn var ef upp væri tekin viðmiðun launa við vísitölu, svokölluð vísitölubinding.

Ég vænti þess að hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands sjái sér fært að svara þessum spurningum.