14.01.1988
Sameinað þing: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4062 í B-deild Alþingistíðinda. (2846)

217. mál, innflutningur á fatnaði með fölsuðum upprunaskírteinum

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Rétt mun það vera að tölvur leysi ekki allan vanda, en þær eru þarfaþing og sér í lagi við að afla upplýsinga af þessu tagi með auðveldum og skjótum hætti. Þar sem þessi gögn liggja fyrir, þar sem þessar athugasemdir eru skráðar jafnóðum á að vera tiltölulega auðunnið verk að taka saman þessar athugasemdir. Sjálfsagt þarf síðan að meta þær nánar eftir nánari skoðun. Þar kemur til álita líka hvaða aðferðum er beitt í því skyni og hvort það kallar á frekari eftirgrennslan erlendis frá. En engu að síður: Þetta er forsendan fyrir því að hægt sé að taka saman þessar athugasemdir, meta þær og bregðast síðan við þegar menn telja að upplýsingarnar séu óyggjandi.

Svar mitt við því með hvaða hætti þetta er og hversu víðtækt það er er einfaldlega það að ég mun fela tollstjóranum eða tollstjóraembættinu að vinna úr þeim gögnum sem þeir segjast þegar hafa í fórum sínum þannig að hægt sé að taka ákvarðanir á þeim grundvelli.