01.02.1988
Sameinað þing: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4066 í B-deild Alþingistíðinda. (2849)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hafa borist eftirfarandi erindi: Kjörbréf Sigríðar Lillýar Baldursdóttur, 2. varamanns SK í Reykjavíkurkjördæmi, sem taki sæti í forföllum Þórhildar Þorleifsdóttur. 18. þm. Reykv., kjörbréf Elínar R. Líndal 1. varamanns Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, sem taki sæti fyrir Stefán Guðmundsson, 3. þm. Norðurl. v., og Þórðar Skúlasonar, 1. varamanns Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra, sem taki sæti 4. þm. Norðurl. v. Ragnars Arnalds. Kjörbréfanefnd hefur farið yfir þessi erindi og leggur til að þau verði samþykkt.