01.02.1988
Sameinað þing: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4068 í B-deild Alþingistíðinda. (2853)

159. mál, haf- og fiskveiðasafn

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það er virðingarverður áhugi hv. 3. þm. Vesturl. sem fram kemur í þessari till. hans til þál. um haf- og fiskveiðasafn. Ég vil fara um þetta mál nokkrum orðum með tilliti til stöðunnar í safnamálum í landinu. Ég hef efasemdir um að till. hitti naglann á höfuðið ef svo má segja varðandi brýnar úrbætur í þessum málum þó að ég sé fyllilega samþykkur því markmiði sem á bak við tillöguflutninginn liggur.

Við höfum á þessari öld búið afar illa að söfnum í landinu. Þetta á við um Þjóðminjasafn Íslands, þetta á við um Náttúrugripasafnið í Reykjavík innan ramma núverandi Náttúrufræðistofnunar Íslands, þetta á við um byggðasöfn um land allt, með vissum undantekningum þó þar sem heimaaðilar hafa tekið myndarlega á málum, og þetta á við um sérhæfð söfn þar sem leitað hefur verið stuðnings hins opinbera og mætti þar nefna dæmi. Mig minnir að það sé í uppbyggingu sjóminjasafn í Hafnarfirði. Tillögur voru uppi um það og fjármagni hefur nokkru verið veitt til þess verkefnis og það er vissulega þarft verkefni sem þar er á ferðinni og hér kemur þáltill. frá hv. 3. þm. Vesturl. um uppbyggingu á haf- og fiskveiðasafni.

Áður en ég get tekið undir uppbyggingu sérsafns af þessu tagi vil ég sjá að með viðunandi hætti, svo ekki sé meira sagt, sé staðið að þeim söfnum sem menn eru nú með, ekki bara á pappírnum heldur í einhverri mynd, þar sem búið er að hleypa af stokkunum en þar sem flest er af vanefnum gert.

Ég minni líka á að hugur meiri hluta ríkisstjórnarinnar á Alþingi til safnamála birtist í frv. til laga um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, máli sem kemur trúlega til umræðu í hv. Nd. þingsins á þessu vorþingi nema það verði um það samstaða í ríkisstjórninni að kistuleggja það mál, sem væri langvitlegast og farsælast, taka málið allt til endurskoðunar á þessu ári og leggja það fram í einhverjum frambærilegum búningi fyrir þingið. Í því frv. er gert ráð fyrir því, í einum kafla þess, að byggðasöfn verði ekki lengur studd af ríkinu fjárhagslega, bara alls ekki, heldur verði það verkefni sveitarfélaga að sjá um þeirra hlut. Alþfl., að ég best veit, hefur skrifað upp á frv. í ríkisstjórn og hér er hv. 3. þm. Vesturl., formaður þingflokksins, að flytja tillögu um safn. Ég veit ekki hvort hann er að gera ráð fyrir ríkissafni eða hvort hann er að gera ráð fyrir viðbót við safn uppi á Akranesi eins og hv. þm. lét að liggja í sambandi við staðsetningu þess. Ég minni á þetta vegna þess að þarna eru menn á alröngu spori, stjórnarmeirihlutinn hér á þinginu, í sambandi við það að ætla að leggja niður stuðning við safnastarfsemi út um landið af hálfu ríkisins. En það mál ræðum við betur seinna ef bandormurinn kemur til frekari umræðu í hv. Nd. þingsins.

Við eigum náttúrufræðisafn hér í Reykjavík. Náttúrufræðistofnun Íslands er í leiguhúsnæði að mestu að ég hygg upp við Hlemm og þar er þetta safn búið að dúsa, vísindalegt náttúrufræðisafn með sýningarsal sem fæstir leggja leið sína til vegna þess að það er ekki þannig á þeim málum haldið kannski að það ýti undir menn og þó mesta furða hvað Náttúrufræðistofnun Íslands og forstöðumenn hafa gert úr þeim litlu efnum sem þeim er ætlað til að sinna skyldum sínum lögum samkvæmt. En það er til háborinnar vanvirðu fyrir Alþingi og stjórnvöld hvernig þau hafa tekið á þessum málum.

Mér finnst að sú hugmynd sem hér liggur fyrir um haf- og fiskveiðasafn eigi að tengjast endurreisn Náttúrufræðisafns Íslands með viðeigandi deildum þess úti um landið, stuðningi við náttúrufræðisöfn á landsbyggðinni sem eru eðlilegur staður til að taka á haffræðinni og fiskveiðunum og ég minni á Náttúrugripasafnið í Vestmannaeyjum þar sem heimaaðilar með litlum stuðningi ríkisins hafa komið upp eina fiskasafninu á Íslandi sem hægt er að sýna. Ég hvet eindregið til þess að við meðferð þessa máls verði litið til tengingar þeirra þátta sem hér er að vikið við náttúrufræðisöfn í landinu og byggðasöfn því að byggðasöfnin hafa vissulega leitast við að taka á atvinnusögunni og atvinnuþróun á hverjum stað, líka til sjávarins, þó að kannski fari einna mest fyrir minjum sem snerta búskaparhætti fyrri tíðar í landinu þar sem landbúnaðurinn var undirstaðan en sjávarútvegurinn skipaði annan sess lengi vel.

Ég nefni, herra forseti, að í þinghléinu var það ein grein í stjórnarmálgagni sem gladdi mig sérstaklega að lesa. Það var leiðari í Morgunblaðinu 26. jan. sl. undir fyrirsögninni „Vistfræði og náttúruvernd“. Þar tekur ritstjóri Morgunblaðsins mjög eindregið undir þörfina á að láta nú hendur standa fram úr ermum í sambandi við uppbyggingu náttúrufræðisafns á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands, en ég flutti um þetta þáltill. fyrir nokkrum árum ásamt ég hygg einum ellefu hv. alþm. úr öllum þingflokkum sem stóðu að því máli og í framhaldi af því skipaði þáv. menntmrh. Ragnhildur Helgadóttir nefnd sem skilað hefur áliti um þetta mál, að vísu, herra forseti, ekki fyllilega einhuga að því er ég hef heyrt, ég hef ekki séð þetta álit, en það er tekið undir það í þessum leiðara Morgunblaðsins að þörfin sé brýn og ég leyfi mér hér um leið og ég dreg saman mál mitt, herra forseti, að vitna í þennan leiðara þar sem segir:

„Á aldarafmæli Náttúrufræðifélagsins er meira en tímabært að hyggja að úrbótum í þessu efni. Það væri enn fremur í samræmi við brýna þörf á alhliða náttúruvernd að auka veg þessarar stofnunar. Það væri og í samræmi við ört vaxandi áhuga einstaklinga og þjóða á bættri sambúð við umhverfi fólks og það lífríki sem það deilir jörðinni með. Og síðast en ekki síst væri það í samræmi við þá þjóðarvakningu á verndun náttúru Íslands sem nú er að rísa.“

Ég þakka Morgunblaðinu fyrir að taka eftir því með þessum skrifum að það er til áhugafólk um náttúruvernd í landinu. Þjóðarvakning hefur risið fyrr, en fékk því miður ekki þann stuðning af hálfu öflugra aðila á þeim tíma, upp úr 1970, sem þurfti til jákvæðra aðgerða í þessum málum.

Ég segi svo, herra forseti, að lokum: Ég bið hv. flm. ekki að misvirða mínar ábendingar um þetta efni. Ég skil vel hvað að baki þessari tillögu liggur, en ég tel að það eigi að skila þessu máli í höfn með því að tengja haf- og fiskveiðasafn og annað sem lýtur að sjávarútvegi við önnur söfn í landinu þar sem ríkið á að standa að málum með heimaaðilum með myndarlegum hætti. Á því er þörf, ekki síst nú þegar hugmyndir eru uppi um allt annað.