01.02.1988
Sameinað þing: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4081 í B-deild Alþingistíðinda. (2864)
165. mál, Vesturlandsvegur
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Mér finnst ekki óeðlilegt að einhver utan flm., þ.e. hv. þm. Vesturlands, láti í sér heyra um þetta merkilega mál. Mér fannst það satt að segja strax mjög áhugavert þegar hv. 1. flm. till. sýndi mér drög að þessum tillöguflutningi og sagði mér frá þessum mjög lauslegu útreikningum sem sýndu að það gæti vel verið að þetta fyrirtæki væri svo arðvænlegt að hugsanlegt væri að stofna um það hreinlega fjárfestingarfélag, einhvers konar almenningshlutafélag, þannig að ríkið þyrfti ekki með skattpeningum að leggja í þetta fé heldur gætu menn ávaxtað fjármuni sína í þessari framkvæmd.
Það rifjar upp að þegar vegurinn á Skeiðarársandi var byggður var það gert fyrir happdrættislán. Fólkið fékk að fjármagna þetta án skattlagningar. Það fékk að eiga peningana sem fóru í þennan veg og það fékk happdrættisvinninga og síðan endurgreidd skuldabréfin að mig minnir eftir tíu ár eða eitthvað slíkt. En það rifjast líka upp að í gildi eru lög um happdrættislán vegna Norðurvegar og Austurvegar á árinu 1975. Þá var búið að reikna nákvæmlega út að hægt væri á fjórum árum að byggja þann veg allan upp og leggja hann bundnu slitlagi ef þau lög hefðu verið framkvæmd. Það var því miður ekki gert og þá einmitt út af kennisetningunni um að það væri svo mikil þensla í þjóðfélaginu, það væri allt of mikil atvinna, allt of miklar framkvæmdir og engir peningar til. Þá voru hreinlega brotin lögin. Þau voru ekki framkvæmd. En þau eru í gildi enn þann dag í dag. Hvor hugmyndin sem mundi verða nýtilegri til að hrinda þessu í framkvæmd er ég reiðubúinn til að styðja það og ég mundi fúslega sem 1. flm. þessa frv., sem síðan varð að lögum og sem ég var að nefna, um Norðurveg og Austurveg, vinna að því með flm. þessarar till., ef þeir óska þess, og jafnvel fara fram á að ég fái að gera það, að skoða þau lög og vita hvort við með einhverjum hætti getum ekki einmitt notast við þau, breytt að sjálfsögðu. En það er einmitt hinn mikli umferðarþungi í nágrenni höfuðborgarinnar sem er að verða alvarlegasta umferðartálmun og verður það með þessari gífurlegu aukningu bílaflota. Þess vegna er þetta mál aldeilis ekkert sérstakt mál Vestlendinga. Það er svo sannarlega mál Reykvíkinga og líka fyrri kjósenda minna t.d. Ég þekki þeirra hugsunarhátt á Norðurlandi vestra og auðvitað er þetta málefni landsins alls. Þetta er hið merkilegasta mál og það ber að hraða samþykkt till. og hraða rannsókninni eins og mest má verða.