01.02.1988
Sameinað þing: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4088 í B-deild Alþingistíðinda. (2869)

165. mál, Vesturlandsvegur

Flm. (Eiður Guðnason):

Virðulegi forseti. Hér hefur margt fróðlegt komið fram og málinu verið mjög vel tekið. Ég þakka fyrir þær ágætu undirtektir sem það hefur hlotið hér sérstaklega frá hæstv. samgrh., og einnig þá ábendingu sem fram kom hjá hv. 8. þm. Reykv. Eyjólfi Konráði Jónssyni varðandi fjármögnun þessa máls eða hugsanlegar leiðir til þess.

Ég ítreka að hér er verið að tala um mál þar sem rannsóknir og framkvæmdatími gætu samanlagt verið kannski 10–12 ár. Ég held að ég hafi sagt áðan að jarðfræðingar og verkfræðingar telja eðlilegan rannsóknartíma á bilinu 3–5 ár og framkvæmdatíma kannski annað eins. Það getur vel verið, eins og kom fram í máli hv. 4. þm. Reykn., að menn vilji líka skoða þá möguleika að reka ferjur á þessari leið. Ég verð samt að taka undir með hv. 1. þm. Vesturl. að ég hef efasemdir um það og tel að það mundi kannski verða til að tefja málið vegna þess að það er nokkuð sem menn eru að hverfa frá víða annars staðar. En ég útiloka ekki að reikningslega sé hægt að sýna fram á að það sé hagkvæmt en ég hef mínar efasemdir um það eins og hv. 4. þm. Reykn. er fullkunnugt um. En ég tek undir þau orð hans og ítreka það raunar að hér er um mál að ræða sem varðar alla þegna þessa lands og mál sem er mjög brýnt held ég, að byrjað verði að rannsaka og kanna og leita hagkvæmustu leiða. Það tekur langan tíma. Við erum að tala hér um framkvæmd sem ef allt gengi að óskum væri komin í gagnið um aldamót. Hér er ekki ráð nema í tíma sé tekið.

Ég ítreka þakkir mínar til hv. þm. sem hér hafa talað og hæstv. samgrh. fyrir góðar undirtektir við þetta mál og túlka það sem svo að það eigi greiðan framgang í gegnum þingið.