01.02.1988
Sameinað þing: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4090 í B-deild Alþingistíðinda. (2872)
199. mál, framtíðarhlutverk héraðsskólanna
Flm. (Óli Þ. Guðbjartsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um framtíðarhlutverk héraðsskólanna sem ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 230 ásamt hv. þm. Guðna Ágústssyni, Margréti Frímannsdóttur, Inga Birni Albertssyni, Ólafi Þ. Þórðarsyni, Málmfríði Sigurðardóttur og Hjörleifi Guttormssyni. Tillagan hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela menntmrh. að skipa nefnd til að gera tillögur um framtíðarhlutverk héraðsskólanna. Nefndin verði skipuð sérfróðum mönnum og vinni þeir með stjórnendum skólanna og skólayfirvöldum í viðkomandi fræðsluumdæmi að tillögugerð um framtíðarskipan þessara skóla.
Tillögur nefndarinnar liggi fyrir eigi síðar en 1. jan. 1989.“
Á undanförnum árum hefur orðið veruleg breyting á starfi héraðsskólanna um allt land. Alls staðar á sú breyting rót sína að rekja til nemendafækkunar sem hvarvetna hefur orðið raunin. Ástæða nemendafækkunarinnar er trúlega einkum þríþætt.
1. Almenn búsetuþróun hér á landi undangengna þrjá áratugi úr strjálbýli í þéttbýli,
2. álíka hröð uppbygging skólamannvirkja í þéttbýli fyrir þá aldurshópa sem áður sóttu héraðsskólana og
3. veruleg vanræksla um viðhald og búnað margra héraðsskólanna.
Fleira kemur eflaust til.
Nú er svo komið að formlegar tillögur eru þegar fram komnar um lokun a.m.k. tveggja af þessum skólum og mikil óvissa ríkir um framtíð margra þessara stofnana. Öllum er þó ljóst að allir hafa þessir skólar gegnt mikilvægu hlutverki um langan aldur hver á sínu svæði. Enn fremur fer ekki á milli mála að mikil fjárfesting liggur í þessum skólum sem þjóðfélagið hefur ekki efni á að vannýta. Auk þess eru þessar stofnanir burðarásar í margs konar menningarlífi á landsbyggðinni. Skólarnir eru átta talsins og dreifast um öll kjördæmi utan Reykjavíkur og Reykjaness, en þeir eru: Héraðsskólinn í Reykholti í Vesturlandskjördæmi, Héraðsskólinn á Núpi í Vestfjarðakjördæmi, Héraðsskólinn í Reykjanesi í Vestfjarðakjördæmi, Héraðsskólinn á Reykjum í Norðurlandi vestra, Héraðsskólinn á Laugum í Norðurlandi eystra, Alþýðuskólinn á Eiðum í Austurlandskjördæmi, Héraðsskólinn í Skógum í Suðurlandskjördæmi og Héraðsskólinn að Laugarvatni í Suðurlandskjördæmi.
Till. sú til þál. sem hér er flutt gerir ráð fyrir því að framtíðarhlutverk þessara skóla geti verið með mismunandi hætti á hinum ýmsum stöðum á landinu. En höfuðáhersla er lögð á tvennt:
1. Að héraðsskólarnir eru svo mikilvægar og verðmætar eignir að allra leiða verður að leita til þess að nýting þeirra verði áfram til hagsbóta íbúum héraðanna.
2. Að sérstaklega verði könnuð þörf strjálbýlisins á símenntun fullorðinna með tilliti til rekstrar héraðsskólanna í núverandi mynd.
Árið 1986 gerði Sigurður Helgason deildarstjóri í menntmrn. úttekt á starfsemi þessara skóla fyrir þáv. menntmrh. Sverri Hermannsson. Útdráttur úr greinargerð Sigurðar fylgir sem fskj. I með grg. að þessari þáltill. og síðan er enn fremur fskj. II um nemendafjölda héraðsskólanna í ár, 1987–1988.
Í greinargerð Sigurðar Helgasonar er víða komið við. Fyrri hluti greinargerðarinnar er um sögu skólanna og það er út af fyrir sig fróðlegt að rifja upp nokkur meginatriði úr þessari greinargerð sem ég ætla að leyfa mér að gera, með leyfi hæstv. forseta:
„Árið 1929 voru samþykkt lög á Alþingi um héraðsskóla. Þeir áttu að vera: á Núpi í Dýrafirði; þar hafði verið starfræktur alþýðuskóli frá 1906, Reykjum í Hrútafirði sem tók til starfa árið 1931; Laugum í Reykjadal, en hann tók til starfa árið 1923. Hvítárbakka í Borgarfirði, en þar hafði verið alþýðuskóli frá 1905; og að Laugarvatni, en hann tók til starfa árið 1928.
Áður hafði Alþýðuskólinn á Eiðum starfað undir sérstökum lögum frá 1919, en skólinn á Hvítárbakka var fluttur að Reykholti 1931. Markmið héraðsskólanna var að búa nemendur undir athafnalíf við íslensk lífskjör með bóknámi, vinnukennslu og íþróttum, eins og stóð í námsskrá að þessum skólum. Stofnkostnaður skólanna var greiddur að hálfu úr ríkissjóði eftir því sem fé var veitt á fjárlögum, enda kæmi framlag á móti frá heimaaðilum. Enn fremur greiddi ríkissjóður hluta rekstrarkostnaðar eftir ákveðnum reglum.
Árið 1940 voru ný lög um héraðsskóla samþykkt á Alþingi og eldri lög felld úr gildi. Með lögunum var heimilað að stofna þrjá nýja héraðsskóla: í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, í Varmahlíð í Skagafirði, sem var þó aldrei gert, og á hentugum stað í Rangár- og Skaftárþingum, en Skógaskóli tók til starfa árið 1949. Markmiðið var svipað og áður, að veita æskumönnum landsins fjölbreytta fræðslu á þjóðlegum grundvelli. Enn fremur voru sett ný nánari ákvæði um innihald námsins svo og um próf.
Nýju lögin gerðu ráð fyrir því að ríkissjóður greiddi framvegis 3/4 hluta stofnkostnaðar. Lög um gagnfræðanám voru sett árið 1946 að tilhlutan þáv. menntmrh. Brynjólfs Bjarnasonar. Skv. 65. gr. þeirra laga voru lög um héraðsskóla úr gildi numin. Héraðsskólarnir störfuðu skv. þessum nýju lögum til ársins 1974 að lög um grunnskóla voru sett, en lögin um gagnfræðanám numin úr gildi.
Með lögum nr. 34/1962, um breytingu á lögum nr. 41/1955, um greiðslu kostnaðar við skóla, sem reknir eru sameiginlega af ríki og sveitarfélögum, var ákveðið að héraðsskólarnir yrðu séreign ríkisins ef hlutaðeigandi sveitarfélög óskuðu þess. Í samræmi við þessi ákvæði og óskir sýslunefnda viðkomandi skóla urðu fimm héraðsskólar ríkisskólar árið 1962 og hinir þrír skömmu síðar.
Árið 1970 var gefin út reglugerð um framhaldsdeildir gagnfræðaskóla. Héraðsskólarnir hafa allir fengið heimild til að starfrækja framhaldsdeildir, Eiðaskóli frá og með skólaárinu 1970/71, Núpsskóli, Reykholtsskóli og Reykjaskóli frá og með skólaárinu 1971/72 og hinir nokkru síðar, Reykjanesskóli þó ekki fyrr en frá og með skólaárinu 1983/84. Aðsókn að héraðsskólunum var mikil í upphafi og allt fram undir árið 1970 að draga fór úr aðsókn að sumum þeirra og frá 1980 fer að halla verulega undan fæti.“
Með greinargerðinni fylgir tafla yfir nemendafjölda frá ýmsum árum. Það er sérstaklega athygli vert að 1952–1953 er heildarnemendafjöldinn 651 nemandi. 1961–1962 eða um áratug síðar fer nemendafjöldinn enn vaxandi. Þá er nemendafjöldinn um 830. Enn áratug síðar, 1970–1971, verður nemendafjöldinn mestur, kemst á annað þúsund eða er 1033. Síðan hálfum áratug síðar, 1975–1976, hefur fækkað niður í 911, enda þótt framhaldsdeildirnar hafi komið til. 1980–1981 er nemendafjöldi enn á niðurleið, 833 nemendur, og 1985–1986 er hann kominn niður í 620 nemendur og í ár er talan aðeins 528.
Eins og sjá má af þessari töflu fækkaði nemendum á grunnskólaaldri jafnt og þétt í héraðsskólunum frá 1970. Orsökin er fyrst og fremst sú að grunnskólar á skólasvæðum héraðsskólanna voru efldir og þeim gert kleift að taka að sér kennslu í efri bekkjum grunnskóla. Nú er svo komið að einungis 200 nemendur á öllu landinu eiga þess ekki kost að ljúka grunnskólanámi í heimaskóla sínum eða í nágrannaskóla með daglegum akstri.
Síðan er önnur tafla í grg. sem einnig er forvitnileg því hún gefur til kynna hvernig nemendur héraðsskólanna flokkast eftir fræðsluumdæmum og þá kemur ýmislegt fróðlegt í ljós. Ég hef ekki kost á að fara í þá hluti mjög náið, en drep aðeins á það helsta.
Þrátt fyrir að allir unglingar í Reykjavík og í Reykjanesumdæmi eigi þess kost að ljúka grunnskólanámi í heimaskóla eða nágrannaskóla með daglegum akstri eru veturinn 1985–1986 128 nemendur úr þessum fræðsluumdæmum tveimur, Reykjavík og Reykjanesi, í héraðsskólunum. Þetta tel ég að segi sína sögu um dálítið sérstætt hlutverk sem héraðsskólarnir hafa gegnt og munu líklega gegna á næstu árum.
Í annan stað kemur hér fram að um unglinga í öðrum fræðsluumdæmum sem ekki eiga þess kost að ljúka grunnskólanámi í heimaskóla gildir eftirfarandi: Nær allir unglingar úr Vesturlandsumdæmi sækja Reykholtsskóla. Það sama gildir um unglinga í Norðurlandsumdæmi eystra, Austurlandsumdæmi og Suðurlandsumdæmi. Þeir sækja um skólavist í héraðsskóla í sínu heimahéraði. En aðeins helmingur unglinga úr Vestfjarðaumdæmi fer í héraðsskólana á Núpi og í Reykjanesi. Og mjög fáir unglingar úr Norðurlandsumdæmi vestra fara í héraðsskóla, enda geta flestir þeirra lokið grunnskólanámi í heimaskóla.
Niðurstöður Sigurðar Helgasonar í hans greinargerð eru í sem fæstum orðum þessar: Héraðsskólarnir voru á sínum tíma stofnaðir til að veita ungu fólki í sveitum landsins tækifæri til að afla sér fjölbreyttrar menntunar að skyldunámi loknu. Með setningu laga um gagnfræðanám 1946 urðu héraðsskólarnir hluti af íslenska skólakerfinu. Hlutverk þeirra breyttist, en þörfin fyrir þá varð jafnvel enn meiri en áður, enda voru húsakynni þeirra stækkuð þá og endurbætt með ærnum kostnaði. Það má t.d. í þessu efni minna á að heimavistarrými í héraðsskólunum nú nægir fyrir 765 nemendur. Það var í hittiðfyrra um 145 nemendum fleira en þá sóttu skólana. Í vetur nemur þessi vannýting að fjölda 237. Miðað við aðstæður í dag virðist vera þörf á að héraðsskólarnir geti tekið við nálega 350 nemendum á grunnskólaaldri. Annars vegar eru nemendur í dreifbýli sem ekki hafa aðra námsaðstöðu og hins vegar nemendur úr þéttbýli sem af ýmsum félagslegum aðstæðum geta ekki stundað nám í sínum heimaskóla. Vegna þeirra nemenda þarf að gefa skólunum rúman kvóta til stuðningskennslu og félagsstarfa. Nokkuð óljós er hin raunverulega þörf fyrir aðstöðu á framhaldsskólastigi.
Í mannvirkjum héraðsskólanna eru fólgin mikil verðmæti sem ekki mega standa ónotuð. Viðhald þeirra flestra er í lágmarki vegna of lítils viðhaldsfjár á fjárlögum hverju sinni. Sumarleiga hefur þó hjálpað til að nokkru leyti. Skólarnir eru miklar mennta- og menningarstofnanir í dreifbýli og því mikils virði fyrir íbúa þess að þeir starfi áfram.
En lokaniðurstaða Sigurðar Helgasonar er þessi: að nauðsynlegt sé að hefja nú þegar alvöruumræður um framtíð héraðsskólanna. j því skyni verði samstarfsnefndir skipaðar til að gera framtíðartillögur um verkefni hvers skóla fyrir sig.
Hér lýkur í raun tilvitnun í greinargerð Sigurðar Helgasonar deildarstjóra í menntmrn. Till. sú til þál. sem hér er flutt miðar einmitt að því að taka þráðinn upp þar sem greinargerð hans og vinnu sleppir. Að vísu lagði Sigurður til að margar nefndir fengju það verkefni til meðferðar sem hér um ræðir, en tillögumenn að þessari till. leggja hins vegar til að menntmrh. skipi eina nefnd sem vinni að verkefninu í heild, en með stjórnendum hvers skóla fyrir sig og skólayfirvöldum í viðkomandi fræðsluumdæmi. Þannig er reynt með þessari till. að ná fram skilvirkari vinnu og betri heildarsýn með einni nefnd, en þó þess gætt að staðbundin sjónarmið fái einnig notið sín af hverju svæði fyrir sig.
Sérstaka áherslu ber að leggja á að ákveðin tímamörk eru sett því starfi sem hér er lagt til að verði hafið. Í lokum ályktunarinnar segir: „Tillögur nefndarinnar liggi fyrir eigi síðar en 1. jan. 1989.“ Eins og komið hefur fram af þeim upplýsingum sem ég hef hér rakið er brýnt fyrir allar þær stofnanir sem till. tekur til að unnið verði hratt og markvisst að þessu verkefni.
Ég vil að lokum nefna tvennt sem enn frekar gerir það áríðandi að mál þetta verði tekið föstum tökum og af alvöru. Öllum er kunnugt að hallað hefur á landsbyggðina eða strjálbýlið víða um land um allmörg undanfarin ár. Nægir í því efni að benda á mannfjöldaþróun og búsetuþróun nær hvarvetna utan höfuðborgarsvæðisins. Vitaskuld er þar um fjölmarga samverkandi þætti að ræða, en aðstaðan til menntunar og menningarlífs á viðunandi hátt í nútímaþjóðfélagi skiptir þar vísast ekki minnstu máli.
Hitt atriðið sem ég vildi nefna er að nú í þinghléi var frá því skýrt í fréttum að hæstv. menntmrh. mundi nú á vorþinginu flytja frv. til laga um framhaldsskóla. Það mál hefur lengi verið í deiglu eins og menn vita og eitt slíkt frv. liggur þegar fyrir þessu þingi, flutt af hv. 4. þm. Norðurl. v. o.fl. Þess er því að vænta að nú fari eitthvað að gerast á þessum vettvangi og er það vissulega fagnaðarefni. En því nefni ég þetta að mál það sem hér er flutt till. um hlýtur að snerta framtíðarskipan framhaldsskólans, ekki síst þar sem strjálust er byggð.
Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að liður í því að fá héraðsskólunum nýtt hlutverk í samræmi við þarfir byggðanna og íbúa þeirra væri að tengja þá frekar starfi fjölbrautaskólanna og þörfum atvinnulífsins fyrir sífellt meiri menntun. Ég vil því leyfa mér að vænta þess að till. sú sem hér er flutt verði spor í þá átt og skólunum til eflingar um langa framtíð og byggðunum sem þeir öðru fremur þjóna.
Að lokum legg ég til, hæstv. forseti, að till. verði vísað til hv. menntmn. að lokinni þessari umræðu.