01.02.1988
Sameinað þing: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4097 í B-deild Alþingistíðinda. (2875)
199. mál, framtíðarhlutverk héraðsskólanna
Flm. (Óli Þ. Guðbjartsson):
Hæstv. forseti. Ég þakka þeim hv. 2. þm. Austurl. og 10. þm. Reykn. þær undirtektir sem þeir höfðu við þessa till. og á hvern hátt þeir mæltu með málinu, því það er það sem skiptir máli, og jafnframt vil ég biðja forláts á þeim mistökum sem mér urðu á undir lok máls míns fyrr í dag. Ég vil gjarnan leggja til að málinu verði vísað til hv. félmn. Sþ. Ég var með deildina ofarlega í huga og nefndi menntmn., en það er alveg rétt, sem kom fram hjá fyrrv. hv. menntmrh. sem hér er viðstaddur, að hún er engin til í Sþ. en hins vegar félmn.
En að lokum þetta: Ég legg áherslu á að þetta mál fái þann framgang að það komi til afgreiðslu þingsins fyrir þinglok.