02.02.1988
Efri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4103 í B-deild Alþingistíðinda. (2883)

229. mál, hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Hæstv. forseti. Frv. það sem ég mæli fyrir um breytingu á lögum nr. 109/1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, og flutt er á þskj. 518, var lagt fram á síðasta löggjafarþingi sem stjfrv. en náði þá ekki fram að ganga sakir tímaskorts. Er frv. lagt hér fram svo til óbreytt frá því það fór frá Ed. rétt fyrir þingslit í sl. mars.

Frv. er samið af stjórnskipaðri nefnd sem falið var að gera tillögur að endurskoðuðum lögum í samræmi við 10. tölul. í ákvæðum til bráðabirgða í lögum nr. 109 frá 1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, áður lög nr. 50/1981 með sama heiti.

Skv. lögunum átti endurskoðun að vera lokið á síðasta þingi, en hinn 1. ágúst sl. voru liðin fimm ár frá gildistöku upphaflegu laganna en endurskoðun átti að fara fram fyrir þann tíma.

Ég bað nefnd þá sem upphaflega samdi frv. að líta á málið milli þinga og leggur nefndin ekki til aðrar breytingar en þær að siglingamálastjóri skuli eiga sæti í svonefndri samstarfsnefnd skv. 31. gr. laganna er fjallað er um ágreiningsefni vegna framkvæmdar laga nr. 31/1986, um varnir gegn mengun sjávar, og annarra tiltekinna laga. Að öðru leyti leggur nefndin aðeins til breytingar á athugasemdum við 6. gr. frv. og er það vegna breyttra aðstæðna frá því í fyrravetur varðandi svæðaskipulag Heilbrigðiseftirlitsins.

Áður en lengra er haldið er rétt að vekja athygli á því að áðurnefnd lög hafa í reynd tvisvar sætt endurskoðun eftir gildistöku þeirra, sem var 1. ágúst 1982, annars vegar með lögum nr. 92 frá 1984, og var sú breyting felld saman við meginmál laganna og þau gefin út svo breytt með lögum nr. 109/1984, og hins vegar með setningu laga nr. 117 frá 1985, um geislavarnir.

Með fyrri breytingunni var sveitarfélögum heimilað að setja gjaldskrár vegna framkvæmdar heilbrigðiseftirlitsins í sveitarfélögum og Hollustuvernd ríkisins að setja gjaldskrá vegna veittrar þjónustu. Með síðari breytingunni var geislavarnastarfsemin tekin frá Hollustuvernd ríkisins og færð undir sérstaka stofnun, Geislavarnir ríkisins.

Eitt af verkefnum hinnar stjórnskipuðu nefndar var að fella þessar breytingar inn í frv. það sem hér er til umræðu.

Með setningu nýrra laga um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, sem tóku gildi 1. ágúst 1982, var fyrst og fremst síefnt að þremur markmiðum:

1. Að koma á heilsteyptu og samræmdu heilbrigðiseftirliti og mengunarvarnaeftirliti í landinu öllu.

2. Að fella saman rekstur þriggja stofnana, þ.e. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, Matvælarannsókna ríkisins og Geislavarna ríkisins, í eina stofnun, Hollustuvernd ríkisins.

3. Að kveða á um starfsemi sérstakrar mengunarvarnadeildar innan Hollustuverndar ríkisins og þar með í fyrsta skipti að kveða á um afskipti af mengandi atvinnurekstri í íslenskri löggjöf á afgerandi hátt.

Það voru fyrst og fremst þessi atriði sem komu til umfjöllunar í endurskoðunarnefndinni, auk ýmissa smærri sem ákveðið var að reynt yrði að færa til betri vegar eða fella hreinlega niður með hliðsjón af reynslu undangenginna fimm ára.

Það er skoðun endurskoðunarnefndarinnar, ef litið er til áðurgreindra þriggja meginmarkmiða gildandi laga, að í meginatriðum hafi tekist að koma á heilsteyptu og samræmdu heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirliti í landinu. Þannig hefur á þessum tíma næstum tekist að koma á í landinu öllu heilbrigðiseftirliti sem er í höndum sérkunnáttumanna. Aðeins skortir á í dag að sveitarfélögin á Vestfjörðum komi sér saman um að reka eftirlitið eins og lög gera ráð fyrir. Annars staðar hefur eftirlitinu þegar verið komið fyrir eða það er í burðarliðnum eins og t.d. á Austfjörðum.

Með vísun til jákvæðrar þróunar eftirlitsmála úti í héruðum eru nánast engar breytingar gerðar varðandi þennan þátt laganna aðrar en þær sem gerðar eru á stöðu svæðisnefnda um heilbrigðiseftirlit, þ.e. afskiptum þeirra af fjárreiðum og samskiptum sveitarfélaga sem standa saman að heilbrigðiseftirliti á hinum 13 eftirlitssvæðum til að koma í veg fyrir erfiðleika við afgreiðslu fjárhagsáætlana.

Hvað snertir annað meginmarkmiðið, sem er starfsemi Hollustuverndar ríkisins, er nefndin þeirrar skoðunar að ekki hafi tekist til sem skyldi. Þannig hefur stofnuninni langt í frá, mest sakir fjárskorts, tekist að sinna þeim veigamiklu verkefnum sem henni eru falin skv. lögum. Þó til komi þar fjárskortur eins og áður segir, húsnæðisleysi og skortur á efnarannsóknum matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara eiga hér önnur atriði við sem reyna verður að bæta með breytingum á lögunum. Er hér fyrst og fremst um stjórnunarþætti stofnunarinnar að ræða. Leggur nefndin til að þeir verði gerðir skilvirkari og málum verði þannig komið fyrir að möguleikar gefist til betri stjórnunar en hingað til.

Nauðsyn virkari stjórnunar er brýn þar sem um er að ræða stofnun sem samkvæmt eðli sínu nýtur minni hylli þeirra er stjórna fjármálum en ýmsar aðrar stofnanir og möguleikar til tekjuöflunar eru litlir að svo miklu leyti sem störf hennar lúta að almenningi, en það er ein af aðalskyldum hennar og hlýtur svo ávallt að vera. Þess vegna er lagt til að í stað forstjóra komi framkvæmdastjóri með rekstrarmenntun og reynslu af rekstri fyrirtækja eða stofnana og að hann starfi með sérstakri þriggja manna starfsstjórn sem ráðherra velur úr sjö manna stjórn stofnunarinnar, en ekki eru lagðar til breytingar á henni.

Auk þess er lagt til að starfssviðum stofnunarinnar verði fjölgað um eitt, þ.e. eiturefnasvið. Um nauðsyn þess ætla ég ekki að fjölyrða heldur vísa til athugasemda með frv.

Um þriðja þáttinn, starfsemi mengunarvarnadeildar og ákvæði laganna um mengunarvarnir, taldi nefndin ekki tímabært að fjalla því að of skammur tími væri liðinn til þess að hægt væri að dæma þar um með fullri vissu. Nefndin taldi þó að í mörgu væri reynslan góð, en lagði ekki til neinar efnislegar breytingar á gildandi ákvæðum. Rétt er enn fremur að benda á að umhverfismál í víðasta skilningi eru til umfjöllunar í samræmi við starfslýsingu ríkisstjórnarinnar í sérstakri nefnd. Starfsemi deildarinnar kemur þar til umræðu og er rétt að bíða niðurstöðu þess nefndarstarfs.

Ég hef að framan fjallað stuttlega um þær meginbreytingar sem felast í frv. Með því fylgir mjög ítarleg grg. þar sem m.a. er greint frá starfsháttum endurskoðunarnefndarinnar, reynslu af framkvæmd gildandi laga í héraði, starfsemi hollustuverndar eftir starfssviðum og helstu nýmælum frv., en þau eru:

1. Lagt er til að svæðisnefndir heilbrigðiseftirlits verði styrktar og þeim falin yfirumsjón með fjármálum eftirlitsins úti í héruðunum.

2. Lagðar eru til skýrar reglur um kostnaðarskiptingu og að tekjur eftirlitsins á vegum sveitarfélaganna renni í sameiginlegan rekstrarsjóð.

3. Skýrari ákvæði eru um fjárreiður eftirlitsins á vegum sveitarfélaganna og hvernig fari um afgreiðslu í ágreiningsmálum.

4. Heilbrigðisnefndirnar í Mosfellssveit og á Seltjarnarnesi verði gerðar að sérstöku heilbrigðiseftirlitssvæði.

5. Lagt er til að stjórn Hollustuverndar ríkisins verði styrkt með því að skipa sérstaka rekstrarstjórn og framkvæmdastjóra rekstrar.

6. Lagt er til að stofnað verði nýtt svið innan Hollustuverndar ríkisins sem annist eiturefnaeftirlit svo sem áður er fram komið.

7. Sett eru inn ákvæði um innflutningseftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum á vegum Hollustuverndar ríkisins.

8. Kveðið er á um vöruskráningarskyldu Hollustuverndar ríkisins varðandi erlend og innlend matvæli og aðrar neysluvörur og vörur sem geta verið skaðlegar heilsu manna.

9. Lögð er til sú regla að framkvæmdastjóri og forstöðumenn sviða Hollustuverndar ríkisins verði skipaðir til fjögurra ára.

10. Lagt er til að við Hollustuvernd ríkisins starfi sérstakur fræðslu- og upplýsingafulltrúi.

11. Rýmkaður er afskiptaréttur Hollustuverndar ríkisins til að grípa til nauðsynlegra ráðstafana láti heilbrigðisnefnd málið ekki til sín taka eða sinni því lítið.

Auk þess eru ítarlegar athugasemdir við einstakar greinar frv. Læt ég nægja að vísa til þessara atriða og sé ekki ástæðu til að lengja mál mitt öllu meir. Eitt verð ég þó að leggja sérstaka áherslu á, en það er að efla verður starfsemi Hollustuverndar ríkisins, m.a. með því að gera stofnuninni kleift að takast á við eftirlit með innflutningi matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara.

Stefna verður að því að koma upp innan stofnunarinnar á næstu þremur árum rannsóknarstarfsemi er lýtur að efnarannsóknum vegna heilbrigðiseftirlitsins, t.d. vegna matvæla. Um þessi atriði er fjallað í ákvæðum til bráðabirgða í frv. Þessum þáttum er því miður lítið sinnt í dag og hvað innflutningseftirlitið snertir er það ekkert fyrr en varan er komin út í verslanir. Slík skipan býður m.a. upp á að til landsins komi vörur sem nágrannaþjóðirnar hafa jafnvel hafnað innflutningi á. Er því hér um mjög alvarlegt mál að ræða sem er okkur til mikils vansa. Ég tel að ekki verði lengur undan þeirri ábyrgð skotist að koma á slíkri starfsemi hér á landi og er hér gert ráð fyrir að innan eins árs frá gildistöku laga þessara skuli þessu innflutningseftirliti komið á.

Að lokum langar mig að benda á að í 33. gr. frv. þar sem fjallað er um gildistöku laganna segir svo: „Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1988.“ Þetta bið ég nefnd, sem fær málið til umfjöllunar, að taka til athugunar, en hér á að sjálfsögðu að standa 1989. Þegar ég áttaði mig á þessu reyndi ég að fá þetta prentað upp, en það var því miður komið svo nærri umræðu og orðið of seint og tillaga er því hér gerð um að nefndin breyti dagsetningunni um gildistökuákvæðið í 1. janúar 1989 og bið ég hv. nefndarmenn, sem fjalla um frv., að taka það til athugunar.

Hæstv. forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara frekari orðum um frv. þetta, en vísa aftur til ítarlegrar grg. og athugasemda með frv. og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.