02.02.1988
Efri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4108 í B-deild Alþingistíðinda. (2885)

229. mál, hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður, enda á ég sæti í heilbr.- og trn. þessarar hv. deildar og þar mun verða fjallað um þetta frv. En ég vildi vekja athygli á því að í 9. gr. frv. hefur mönnum orðið heldur á í messunni og virðast vera nokkuð aftarlega í tímanum því að þar er talað um starfssvæði og tilgreindur Seltjarnarneshreppur og Mosfellshreppur. Sjálfri þykir mér afskaplega vænt um þetta nafn og hefði svo sem ekkert á móti því að eiga enn þá heima í hreppi, en þar sem það hefur nú gerst að Mosfellshreppur er orðinn að Mosfellsbæ og sömuleiðis er Seltjarnarneskaupstaður eins og hann er réttilega tilgreindur aðeins fyrr í setningunni tel ég að frv. sé svolítið flausturslega unnið að þessu leyti og þarna hefði verið nauðsynlegt að leiðrétta og hlýtur því að verða gert í nefndinni.