02.02.1988
Efri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4110 í B-deild Alþingistíðinda. (2888)

228. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Valgerður Sverrisdóttir:

Hæstv. forseti. Mig langar í nokkrum orðum að fjalla um það frv. til l. sem hér er til 1. umr. í hv. Ed., en þar sem ég sit í landbn. deildarinnar gefst mér tækifæri til að fjalla frekar um málið þar.

Í fljótu bragði virðist hér vera um hið besta mál að ræða, en það er að sauðfjárbændur fái greitt fyrr fyrir afurðir sínar en verið hefur og út af fyrir sig er ég sammála hv. flm. hvað það snertir. Það kemur fram í grg. að það sé reyndar ekkert því til fyrirstöðu að sömu reglur gildi um greiðslur fyrir sauðfjárafurðir og gilda í mjólkurframleiðslu. I grundvallaratriðum er hægt að vera samþykkur því, en þó er um verulega ólíkar aðstæður að ræða þar sem sauðfjárafurðir verða eins og allir vita til svo til allar í einum mánuði ársins en mjólk dreifist tiltölulega jafnt yfir allt árið. Ég vil taka undir það með flm. að það er mjög til hagsbóta fyrir bændur þegar ákveðið var að staðgreiða landbúnaðarafurðir, en til þess að svo gæti orðið þurfti kannski ekki endilega lagasetningu heldur aukið fjármagn eða aukna fjármagnsfyrirgreiðslu. Það er einmitt þetta sem hefur ekki tekist að koma í höfn af hálfu löggjafans.

Búvörulögin voru samþykkt á Alþingi 1985. Með þeim var afurðastöðvum gert skylt að greiða fullt verð til bænda án þess að fyrir því væri séð nægilega vel að fjármagnsfyrirgreiðsla gerði þeim það kleift.

Hér er í grg. með frv. vitnað í umsögn nokkurra merkra lögmanna. Þar kemur m.a. fram að inni afurðastöð ekki lögmæltar greiðslur af hendi á réttum gjalddaga beri henni að greiða framleiðanda dráttarvexti. Þetta er gott og gilt, en þá kemur á móti að fjmrn. greiði dráttarvexti þegar greiðslur þaðan til afurðastöðva skila sér ekki á réttum tíma.

En þar sem fjallað er í grg. um rekstrarfjárþörf heildsölukostnaðar sláturafurða finnst mér að séu ekki réttar forsendur lagðar til grundvallar. Þar kemur fram að birgðir kindakjöts af framleiðslu síðasta árs þann 1. nóv. hafi verið 10 946 tonn. Síðan tekur hv. flm. birgðastöðuna og reiknar út að 2/3 hlutar heildsölukostnaðar þeirra birgða hafi numið að verðmæti 703 millj. kr. Þess í stað tel ég að réttara væri að miða heildsölukostnaðinn við heildarslátrun og væri það gert kæmi allt annað út úr dæminu.

Síðan er það varðandi vaxta- og geymslugjaldið, en á síðasta ári var breytt um fyrirkomulag varðandi greiðslu þess sem er sláturleyfishöfum mjög í óhag. Núna fer greiðsla fram samkvæmt sölu en ekki samkvæmt birgðum eins og áður var. Með þessu binda sláturleyfishafar verulegt fjármagn í birgðunum.

Það er fleira sem ástæða væri til að nefna varðandi frv., en ég sit í landbn. eins og kom fram í upphafi og fæ ég þá tækifæri þar til að fjalla frekar um það. Eins og hv. þm. er eflaust öllum í fersku minni hafa farið fram miklar umræður í fjölmiðlum einmitt um þetta mál að undanförnu og þá miklu erfiðleika sem sláturleyfishafar hafa átt við að stríða. Þessir sláturleyfishafar eru flestir innan kaupfélaganna. Kaupfélögin eiga í miklum erfiðleikum. Ég er sannfærð um að allir sem vilja landsbyggðinni vel og þar á meðal hv. flm. gera sér grein fyrir því að með því að kaupfélögin missi rekstrargrundvöll og fari um er landsbyggðin í verulegri hættu. Þess vegna vil ég að full aðgát sé höfð varðandi þetta mál og menn átti sig á því að það er ekki forsvaranlegt fyrir okkur hér á hinu háa Alþingi að setja lög um að þriðji aðili greiði fullt verð til bænda öðruvísi en að við gerum honum það fullkomlega fært með fjármagnsfyrirgreiðslu.