02.02.1988
Efri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4112 í B-deild Alþingistíðinda. (2890)

228. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Ég held að ég sé ekki að ljóstra upp neinum leyndarmálum þó að ég segi að mér var nokkuð kunnugt um frv. áður en það kom fram á hv. Alþingi og ég taldi nokkrar líkur fyrir því á tímabili að það mundi verða flutt af fleirum en hv. flm. og að það yrði jafnvel samstaða um í hv. deild að flytja frv. sem kvæði ákveðnar á um skyldur afurðastöðva til greiðslna en raun hefur orðið á er hér kemur frv. eins manns.

Það er nú svo að hv. flm. stóð að samþykkt afurðasölulaganna 1985 og var hann að miklu leyti höfundur þeirra og hefur á undanförnum missirum og sjálfsagt í kosningabaráttunni talið það eitt af því sem hann hafi gert vel hér á hv. Alþingi og flokkur hans staðið að, að koma á staðgreiðslu í afurðasölumálum og ekki síst fyrir sauðfjárafurðir.

Því miður finnst mér að þegar frv. eins og þetta kemur til umræðu á hv. Alþingi og það er ekki betur tryggt áður en það kemur fram, en flutt af einum þm. eins stjórnarflokksins, þá sé á því svipur þess að það sé verið að koma með mál sem síðan sé hægt að leggja fram í umræðum og segja: Þetta var mál sem ég barðist fyrir á hv. Alþingi. En því miður. Þingið sýndi því ekki það mikinn áhuga að það kæmist í gegn. Ég vona þó að þetta mál fari ekki þannig.

Ég tel að hér sé um sanngirnismál að ræða. Það er nefnilega ekki eins og hv. 5. þm. Norðurl. e. sagði áðan um sauðfjárafurðirnar. Þær eru ekki að verða til á einum mánuði. Samanborið við mjólkurframleiðendurna á sauðfjárframleiðandinn kannski mikið meiri rétt á síðustu mánuðunum, þegar afurðirnar eru að komast til afurðasölustöðvanna, að fá greiðslu fyrir sínar afurðir, jafnvel meiri rétt en sá framleiðandi sem er í mjólk og framleiðir dag frá degi. Sauðfjárbóndinn er búinn að eyða öllu árinu, uppsöfnuðum kostnaði til að koma þessum afurðum á markað í lok framleiðsluársins. Ég tek undir það með flm. að vitaskuld er nauðsynlegt að réttur þessara framleiðenda sé ekki síðri en mjólkurframleiðendanna. Eins og aðrir ræðumenn hafa sagt og tekið fram að þeir væru í landbn., þá er það eins með mig og ég veit að við skoðum þetta mál vel í landbn. Ég hef tilfinningu fyrir því að hv. flm. muni hafa þó nokkurn stuðning stjórnarandstöðunnar til að þrýsta á þetta. Það væri gaman að heyra frá hæstv. landbrh., hvernig hans afstaða væri í þessu máli. Mér fannst nefnilega að hv. 5. þm. Norðurl. e. væri ekki alveg á því að frv. yrði samþykkt og vildi tengja það því að með því væri verið að leggja sérstakar byrðar á kaupfélögin. Ég vil ekki taka undir það að svo sé. Með afurðasölulögunum og með fyrirheitunum um að staðgreiðsla skyldi eiga sér stað á landbúnaðarafurðum með afurðasölulögunum var vitaskuld ætlast til þess að afurðasölufyrirtækin fengju eðlilega fjármagnsfyrirgreiðslu til að standa fyrir því loforði sem bændum var gefið. Það er ekki ætlast til þess að kaupfélögin eða hver önnur afurðasölufyrirtæki taki úr sínum sjóðum fjármagn til að standa við þau lög sem samþykkt eru á hv. Alþingi. Löggjafinn og framkvæmdarvaldið verða að sjá fyrir því að afurðasölufyrirtækin geti staðið við það sem þeim er ætlað að gera.

Það kemur fram í frv. í álitsgerð þeirra stórlögfræðinga sem nefndir eru, Benedikt Blöndal, Jón Þorsteinsson og Gaukur Jörundsson, að afurðasölufyrirtækjum verði gert skylt að greiða dráttarvexti af ógreiddum afurðum. Ég get að vissu leyti mótmælt því að þar sem afurðasölufyrirtækin eru í höndum bænda sjálfra sé það einhver siðferðisleg skylda. Fyrst og fremst er það skylda framkvæmdarvaldsins og löggjafans að tryggja að þessir aðilar geti staðið í stykkinu. En aftur á móti er það sem snýr beint að hinu opinbera, fjmrn., eins og hv. þm. nefndi. Þar tel ég alveg höfuðatriði að það sé staðið í stykkinu og afurðasölufyrirtækjunum og bændum greiddir fullir dráttarvextir af öllum þeim vanskilum sem þar eiga sér stað vegna þess að það er fyrst og fremst sá aðili sem ber ábyrgð á því hvernig hlutirnir standa.

Þessi umræða gæti kannski leitt til þess og væri ekki óeðlilegt að við fengjum að heyra aðeins frá ráðherra og frekari umræða yrði um stöðu þessara mála í dag. Við höfum orðið varir við að sláturleyfishafar hafa talið sig eiga allmiklar fjárhæðir inni hjá ríkissjóði og við höfum heyrt um það líka að bændur telji að það hafi verið staðið við staðgreiðsluna á þann máta að þetta hafi verið reikningsfært en ekki bein staðgreiðsla átt sér stað. Fyrst og fremst hljótum við þó að spyrja um hvort sláturleyfishafar hafi fengið þá fyrirgreiðslu sem þeir telja sig eiga og eiga frá hendi ríkisins.