02.02.1988
Efri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4113 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)
228. mál, framleiðsla og sala á búvörum
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þm., sem hér hafa rætt þetta frv., að hér er um mikilsvert málefni að ræða sem skiptir þessa atvinnugrein miklu máli.
Það hefur aðeins verið vikið að þeirri stöðu sem var á sl. hausti og vetri í sambandi við uppgjör þessara mála. Þá vil ég benda á að í grg. þessa frv. er skýrt tekið fram hvernig af hálfu ríkisins hefur verið staðið við það sem gert var ráð fyrir í sambandi við fjármagnsútvegun. Ég held að með því að athuga það sé ekki hægt að halda því fram að þar hafi ekki verið staðið við það sem gert var ráð fyrir.
Hins vegar hefur það ekki farið fram hjá neinum vegna umræðu að vandi sláturleyfishafa hefur verið ærinn við að hafa nægilegt fjármagn til að inna greiðslur af hendi og þá talað um að á vantaði hjá ríkinu að það hefði innt allar sínar skyldur.
Það sem gerðist á sl. ári var má segja að fyrrv. ríkisstjórn ákvað að standa að því að reyna að fá fullt verð fyrir allar þær birgðir sem til voru af kindakjöti í landinu þegar búvörulögin komu til framkvæmda í upphafi verðlagsárs 1985–1986 og voru þá á ábyrgð sláturleyfishafa og framleiðenda vegna umboðssölukerfis. Þessar birgðir voru í upphafi verðlagsárs 1987–1988 1. sept. sl. aðeins minni, þannig að það hafði gengið í rétta átt. Það var fyrst og fremst vegna þess að á sl. ári var gert meira átak en nokkru sinni fyrr í framhaldi af samþykkt ríkisstjórnarinnar til að minnka þessar birgðir og koma birgðastöðunni í viðunandi horf.
Það var gert annars vegar með auknum niðurgreiðslum sem höfðu í för með sér aukna sölu á árinu. Sala á sl. ári var um 9100 tonn sem er um 1100 tonnum meira en árið áður, en líka með auknum útflutningi og til þess útflutnings þurfti mikið fjármagn. Það var útvegað fjármagn til þess að standa undir þeirri greiðslu þannig að í desembermánuði var búið að greiða alla útflutningsbótareikninga vegna þessa umframútflutnings. Hins vegar fór sú greiðsla ekki fram jafnóðum og útflutningur fór fram þar sem greiðsluþörfin varð umfram fjárlög og því var vaxtakostnaður vegna þess dráttar. Sú upphæð var hærri en menn reiknuðu með vegna þess hvað vextir fóru hækkandi þegar leið á verðlagsárið. Það þurfti þar af leiðandi meira fjármagn. En líka var það að þetta uppgjör var allflókið, þessi vaxtareikningur, og hefur tekið miklu lengri tíma að komast alveg að niðurstöðu um það en ætlað var, en ég held að það megi segja að nú sé búið að ljúka þeim útreikningi til fulls þannig að það sé ljóst hvað þar stendur út af. Það munu vera í mesta lagi einhverjir tugir milljóna, 10–20 millj., sem þar stóðu út af.
En vegna þess að það var bæði unnið að aukinni sölu og minnkun birgða með auknum útflutningi og auknum niðurgreiðslum og markaðsátaki innan lands varð árangurinn sá, sem bent er á í grg., að birgðir 1. des. sl. voru 2300 tonnum minni en árið áður. Þetta og eins það að minnka birgðirnar og birgðir sem upphaflega voru á ábyrgð sláturleyfishafa held ég að sé alveg ómetanlegt fyrir sláturleyfishafana og því margfaldur ávinningur fyrir þá þó að eitthvert lokauppgjör á síðustu vaxtagreiðslum drægist einhverjar vikur. Ég held að það fari ekki milli mála.
En núna er verið að ganga frá því að finna út hvað er mikið eftir af framleiðslu 1986. 1. des. voru það rúm 500 tonn sem var um 400 tonnum minna en árið áður. Það var verið að leita eftir því í lok janúarmánaðar að fá alveg á hreint hvað mikið þar væri eftir til þess að slíkt uppgjör færi endanlega fram. Ég þori því að fullyrða að í þessum málum hafi verið unnið, a.m.k. af hálfu ráðuneytisins, meira en nokkru sinni fyrr til að hreinsa þarna til og ná saman endum.
Svo er hitt sem hér hefur verið minnst á. Það er breyting sem gerð var á greiðslu vaxta- og geymslugjalds á sl. vetri þegar niðurgreiðslur voru auknar. En þar sem sú niðurgreiðsla fer nú ekki fram fyrr en við sölu, þá er þar um fjárbindingu að ræða þar sem viðskiptabankarnir reikna vexti mánaðarlega af afurðalánum, enda þótt þau séu ekki gjaldfallin. Ég óskaði eftir því við viðskiptabankana fyrir áramót að þeir mundu þá ekki krefja sláturleyfishafa um greiðslu á þessu heldur færa það til reiknings og a.m.k. sumir bankarnir lýstu því yfir að þeir hefðu gert það eða þá komið á annan hátt til móts við þessa fjárþörf. En það sem veldur tvímælalaust erfiðleikum sláturleyfishafanna og hefur gert síðustu vikurnar eru hinir háu vextir sem fylgt hafa í kjölfar meiri verðbólgu.
En svo er aftur spurningin um hvernig þetta verður í framtíðinni. Það mál hefur verið mjög til umræðu bæði í fjmrn. og landbrn. að undanförnu hvort ekki væri rétt að leita þarna nýrra leiða til að tryggja örari eða beinni greiðslur til bænda á því fjármagni sem til þessa er varið. Ég vonast til þess að eftir þá athugun, sem nú stendur yfir á því, skýrist betur hvernig þessu verður best hagað. Ég held að það sé því mjög gott að Alþingi fjalli um þetta mál og taki það þá inn í þá umræðu í landbn.
Það hefur farið svo að uppgjör, skýrsluskil frá sláturleyfishöfum hafa tekið alllangan tíma þannig að það hefur reynst nokkuð erfitt að fá allt til Framleiðsluráðs og þar útreiknað fyrir 15. des. Vegna þess að þarna er um að ræða framleiðsluvöru sem er á verðábyrgð ríkissjóðs að vissu marki verður að liggja fyrir, áður en hægt er að greiða að fullu, hvort varan er innan þess fullvirðisréttar eða ekki. Það er dálítið öðruvísi með kindakjöt en t.d. mjólk. Framleiðendur geta lagt kindakjöt inn á fleiri en einum stað og jafnvel fleiri en tveimur þannig að einn sláturleyfishafi veit ekki hvað mikið viðkomandi framleiðandi er búinn að leggja inn þó hann hafi tölur um það frá sjálfum sér.
Ég bendi á þetta sem eitt atriði sem þarf að hafa í huga, en með því að leita annarra leiða um þetta fjárstreymi, eins og sagt er, getur verið að þarna sé hægt að greiða úr slíkum atriðum sem þó verða alltaf að liggja endanlega fyrir áður en lokauppgjör fer fram vegna þess að þarna er um takmarkað magn að ræða sem hver hefur tryggingu fyrir að fá greitt fullu verði.
En ég tek undir að hér er um mikilvægt mál að ræða og nauðsynlegt að koma í það horf að allir geti orðið sammála og sáttir við þá niðurstöðu og þá afgreiðslu sem þessar greiðslur fá.