02.02.1988
Efri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4119 í B-deild Alþingistíðinda. (2893)

228. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Það er sjálfsagt ekki algengt á hv. Alþingi að það sé farið að fjalla um mái úr ræðustól í deild áður en búið er að tilkynna dreifingu þeirra, en svo var um 242. mál þingsins sem forseti var rétt að enda við að kynna úr forsetastól. Það er hið ágætasta mál. — Ja, ég held að ég hafi sagt kannski heldur mikið þarna. Ég vil ekki segja að það sé hið ágætasta mál fyrr en við höfum fjallað svolítið um þetta í landbn. Ég er ekki viss um nema þetta mál þurfi að skoða vel áður en lagt verður að hæstv. ráðherra að samþykkja það skilyrðislaust, jafnvel þótt það séu flokksmenn hans sem eru að flytja þetta. Ýmiss konar vandamál hafa nú verið í kringum innflutning dýra og þó að það sé kannski einhvern veginn svolítið öðruvísi í sambandi við loðdýrainnflutning en aðrar skepnur held ég að þurfi eitthvað að skoða þetta og fjalla um það áður en beinlínis er lýst yfir skilyrðislausu samþykki. En sjálfsagt er málið þarft til athugunar.

En það væri ekki úr vegi fyrst farið er að tala um loðdýrin, þennan bjargvætt sem átti að bjarga íslenskum landbúnaði og ekki kannski aðeins íslenskum landbúnaði heldur íslenskum sjávarútvegi líka vegna þess að þar átti að skapast næstum því ótæmandi markaður fyrir úrgangsafurðir sjávarútvegsins, að kanna hvort uppi séu einhver áform innan stjórnarflokkanna um að aðstoða nú myndarlega þessa atvinnugrein sem núna stendur frammi fyrir því og hefur þegar fengið mjög mikinn skell og margir hverjir sem hlýddu kalli forustumanna bænda um að breyta búháttum hafa lagt þarna í allar eigur sínar og standa frammi fyrir því nú að verða jafnvel að hverfa frá þessum búskap ef eitthvað mikið verður ekki gert fyrir þennan atvinnuveg.

En ég stóð ekki upp til að fjalla um þetta sérstaklega heldur kom þetta í hug þegar kom að lokaorðum hv. flm. Það sem kom mér fyrst og fremst upp voru yfirlýsingar hæstv. ráðherra og flm. um ákveðna þætti landbúnaðarmálanna og þá fyrst og fremst, sem ég er ekki viss um að allir bændur eða forstöðumenn afurðastöðva séu alveg sannfærðir um að sé rétt, yfirlýsingu ráðherra um að jafnvel aldrei fyrr hafi verið unnið meir og betur í þessum málum en núna. Alveg fram á síðustu daga hef ég heyrt ákveðnar óánægjuraddir frá forstöðumönnum afurðastöðva um að þeirra hlutur sé ekki sem skyldi. Það má vera að það sé rétt sem ráðherra segir, en það getur verið af einhverjum öðrum ástæðum sem afurðastöðvarnar standa svo illa, kannski bein tengsl þeirra við kaupfélögin og þar komi heim og saman það, sem hv. 5. þm. Norðurl. e. var að ræða um hér áðan, að ekki mætti ganga mjög hart að afurðastöðvunum vegna kaupfélaganna. Það þurfa að vera ákveðin skil á milli kaupfélaganna sem verslunarfyrirtækja, jafnvel þó það sé verslunarfyrirtæki bænda, og kaupfélaganna sem afurðastöðva framleiðsluþáttar bændanna. Hvorugur þátturinn má fyrir öðrum skemma. Sök sér að búa við að annar þátturinn lyfti undir hinn þegar gengur sérstaklega vel hjá öðrum.

En ráðherra lýsti því reyndar líka yfir að það væri unnið bæði í landbrn. og fjmrn. að því að finna nýjar leiðir, leita að nýjum leiðum, hvernig háttað skuli þeim málum sem er lagt til í þessu frv. að renni í einn ákveðinn farveg. Er það gott og væntanlega fáum við í landbn. að heyra frá því starfi og sjálfsagt hægt að einhverju leyti að samræma það þessu frv. eða taka það jafnvel gildara en frv. ef hér mætti betur að vinna eða koma á betra formi en nú er.

Aðallega var það sem kom mér í ræðustól aftur sú yfirlýsing flm. að afurðastöðvarnar hefðu aldrei skilað aftur afurðalánunum. (EgJ: Ég ætlaði að segja staðgreiðslulánum.) Jahá. (EgJ: Hafi ég ekki sagt það var það meiningin.) Staðgreiðslulánunum. Jæja. (VS: Hann sagði það nú ekki.) Nei, ég skrifaði a.m.k. niður afurðalánum. Mér fannst það ansi stórt og ætlaði þá að vísa til minnar reynslu í sambandi við sjávarútveg. Það gengi ekki upp í sjávarútveginum. Við yrðum að skila afurðalánunum um leið og sala færi fram. Ég hef ekki alveg í kollinum muninn á staðgreiðslulánunum og afurðalánunum. Staðgreiðslulánin eru þá að minni tilfinningu viðbótarlán við grunnafurðalán. Ef þessum lánum er aldrei skilað sé ég ekki að þarna geti verið fjár vant. En mér finnast þetta vera svo stór orð að það þurfi svolítið meira en beina yfirlýsingu, jafnvel úr ræðustól á hv. Alþingi, að það geti átt sér stað að afurðastöðvarnar liggi með ákveðin lán sem lánuð eru út á afurðirnar fram yfir þann tíma sem varan er seld. Ég hef ekki trú á öðru, fyrst þessi yfirlýsing er komin fram á hv. Alþingi, en að það verði um þetta einhver umræða úti í þjóðfélaginu. Það er vitaskuld alveg nauðsynlegt að fá þá mjög góðar upplýsingar um hvernig svona hlutir geta átt sér stað.

Flm. sagði einnig, sem kom nokkuð á skjön við það sem hæstv. ráðherra sagði, að það væri lánaður fjármagnskostnaður. Það væri séð fyrir 2/3 hluta fjármagnskostnaðar. (Landbrh.: Sláturkostnaðar, sagði hann.) Er það sláturkostnaður? Já. Það er sláturkostnaðurinn. Þá fellur það ekki heim og saman við það sem ráðherra var að segja. Það er annar þáttur sem ráðherrann gerði grein fyrir, þ.e. fjármagnskostnaður sem safnaðist upp og ekki væri lánað út á. Það er annar þáttur þessa máls.