02.02.1988
Neðri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4137 í B-deild Alþingistíðinda. (2903)

207. mál, barnalög

Kristín Einarsdóttir:

Herra forseti. Ég hef greinilega ekki verið nógu skýr þegar ég sagði að það mælti ekkert gegn því í núgildandi lögum að fólk gæti meðhöndlað þessa, sem ég taldi upp, persónulegu hagi barnsins, geti samið um það eins og um sameiginlega forsjá væri að ræða. Ég skildi mjög vel að samkvæmt núgildandi lögum er ekki heimilt að hafa sameiginlega forsjá, en það mælir ekkert gegn því að foreldrar hafi samvinnu um öll þau atriði sem þar eru upp talin að felist í sameiginlegri forsjá. Það var það sem ég átti við að ég teldi enga nauðsyn á því að festa þetta í lög þar sem það væri hægt eftir sem áður að hafa samvinnu eins og gert er ráð fyrir að felist í forsjánni.

En ég vildi taka undir með hv. 13. þm. Reykv. mikilvægi þess að bæði umboðsmaður barna verði skipaður og eins mikilvægi þess að taka upp foreldraráðgjöf og meiri ráðgjöf fyrir fólk sem skilur. Ef þetta frv. verður að lögum er mjög nauðsynlegt að fólk hafi einhverja möguleika á aðstoð varðandi svona mál og þyrfti hún að vera meiri nú þegar. Það er oft miklum erfiðleikum bundið að taka ákvarðanir og mjög erfitt að fá nokkra hjálp. Það er kannski ekki síst vegna 17. gr. þar sem talað er um að foreldrar geti ávallt samið um breytingu á forsjánni. Það getur orðið viðvarandi vandamál þannig að það þarf stöðugt að vera að hafa áhyggjur af því sem verður barninu fyrir bestu ef aðstæður breytast. Það er þá betra a.m.k. að reyna að gera aðstæðurnar í þjóðfélaginu þannig að breytingin geti átt sér stað. Það getur verið mikilvægt að setja lög sem eru á undan sinni samtíð, sem þessi lög kannski yrðu, en ekki ef viðfangsefnin eru börn sem geta ekki varið sig gegn duttlungum foreldra eða allsherjarvaldsins. Það er fyrst og fremst það sem verið er að vara við. Ég er að hugsa um velferð barna eins og allir sem hér hafa talað.

Ég sagði að þjóðfélagið væri börnum fjandsamlegt. Það var alveg rétt eftir haft hjá hv. 2. þm. Vesturl. að ég sagði það og síðan taldi ég upp hvers vegna ég teldi það. Hann hefur kannski ekki heyrt það. Fæðingarorlofið er allt of stutt. Hann veit það sjálfur jafnvel og ég. Þó að það hafi lengst aðeins núna er það enn of stutt og jafnvel þó að það verði sex mánuðir tel ég það enn of stutt og það komi verst niður á börnum. Skóladagurinn er sundurslitinn og það er mjög erfitt fyrir mörg börn. Úti á landi þurfa mörg börn að búa fjarri foreldrum sínum. Þau eru í bíl kannski lengstan hluta dagsins til þess að komast í skóla. Það eru ýmis slík atriði sem ég hef í huga. Það má vel vera að honum finnist „fjandsamlegt“ vera of sterkt til orða tekið, en það voru mín orð og ég held við það enn þá. Það getur vel verið að við getum sameinast um eitthvert annað orð, en þetta er alla vega ekki gott fyrir börn, það sem við bjóðum þeim í þessu þjóðfélagi. Ég held að hann sé mér alveg sammála í því.

Mér sýnist á öllu að þetta frv. fari til allshn. Kvennalistinn hefur ekki fulltrúa í allshn. deildarinnar. Ég óska eftir því að við fáum áheyrnarfulltrúa og fáum að fylgjast með málinu í þeirri nefnd, ef það fer til hennar, til að geta þá fylgst með framgangi þess og fengið allar þær upplýsingar og unnið með nefndinni að þessu mikilvæga máli.