02.02.1988
Neðri deild: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4138 í B-deild Alþingistíðinda. (2904)

207. mál, barnalög

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta mál, ekki efnislega. Við erum að fjalla um stórmál að mínu mati, frv. til barnalaga. Hér hafa tekið til máls þrjár konur sem hafa greinilega kynnt sér efni frv. vel, aðeins einn af hv. þm. af karlkyni hefur tekið til máls um þetta og þá örstutt, aðeins til varnar kerfinu sem hann vill ekki meina að sé fjandsamlegt börnum. Vafalaust hafa þingbræður okkar sínar ástæður fyrir því að ræða ekki þetta mál við 1. umr. og eiga sjálfsagt ýmislegt í pokahorninu við síðari umræður, en ég vil aðeins vekja athygli á því að þetta varðar börnin okkar og aukinn rétt beggja foreldra til að hafa sameiginlega forsjá. Það er kannski athyglisvert að þm. af karlkyni hafa ekki séð ástæðu til að ræða þetta ítarlega við 1. umr.