27.10.1987
Sameinað þing: 9. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (291)
Stefnuræða forsætisráðherra
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Hér talaði ungur forsrh. fyrir nýmyndaðri ríkisstjórn. Hvar kom fram í þessari ræðu eldmóður landnemans? Hvar voru nýjungarnar og framfarahugurinn? Hvar var sigurvissa samstæðrar sveitar sem er að byrja að taka á verkunum?
Svar: Það kom hvergi fram neitt af þessu tagi í ræðu forsrh., af því tagi sem kenna má við eld, neista, baráttu eða starfsgleði, nema helst þegar hann boðaði aukin umsvif útlendinga í atvinnulífi hér á landi. Í eina skiptið sem ráðherrann hvessir sig í ræðunni er þegar hann veitist að utanrrh. eigin ríkisstjórnar og kallar stefnu utanrrh. hvorki meira né minna en þjóðhættulega sýndarmennsku. Og vissulega eru skot forsrh. á utanrrh. í samræmi við annað það sem komið hefur frá stjórnarflokkunum undanfarna daga.
Stjórnin hefur lagt fram samtals hvorki meira né minna en tvö meiri háttar stjfrv. á Alþingi og um þau bæði er verulegur ágreiningur í stjórnarflokkunum. Ég tel að þessi stjórn geti ekki orðið langlíf ef hún heldur svo fram sem nú horfir. Vinnubrögðin innan stjórnarinnar eru með eindæmum. Þau minna mig á stjórnina 1978–1979 og ýta undir þá almennu skoðun að Alþfl. sé tæplega stjórnhæfur flokkur.
Það ber hins vegar að þakka að forsrh. talar oft fagurlega um menningarmál í ræðum sínum, en skammt duga orðin. Í stjórnmálum er spurt um efndir og athafnir. Dæmi: Innheimta skatts vegna Þjóðarbókhlöðunnar á að gefa 177 millj. kr. á næsta ári, en af þeirri upphæð eiga aðeins 50 millj. kr. að fara til byggingar Þjóðarbókhlöðunnar. Hitt virðist eiga að renna í ríkissjóð. Þannig er langt frá orðum til athafna í þessari ríkisstjórn og það er víðar en í menningarmálum eins og síðar verður að vikið.
Góðir hlustendur. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hélt í raun velli sl. vor að meðtöldum þm. Stefáni Valgeirssyni sem hafði stutt ríkisstjórnina, að ekki sé minnst á Borgaraflokkinn sem var tilbúinn til þess að framlengja síðustu ríkisstjórn algjörlega óbreytta og studdi því stefnu hennar. Þegar kosningaúrslitin lágu fyrir kom fram að Alþb. hafði tapað fylgi, svo og Sjálfstfl., en Kvennalistinn og Borgaraflokkurinn höfðu fengið verulegt fylgi. Niðurstaðan varð svo framlenging íhaldsstjórnarinnar. Breytingin er sú ein að inn í stjórnina koma þrír ráðherrar Alþfl.
Það er ljóst af kosningaúrslitunum 1983 og 1986 að íhaldsstjórn verður mynduð aftur og aftur í þessu landi nema Alþb. komi sterkt út úr kosningum. Eina leiðin til að koma í veg fyrir íhaldsstjórn er sterkt Alþb. Kvennalistinn jók verulega fylgi sitt í kosningunum sl. vor. Sú fylgisaukning dugði þó ekki til þess að koma í veg fyrir myndun íhaldsstjórnar, enda vandséð hvernig þverpólitísk samtök, sem hvorki eru til hægri eða vinstri, geta ráðið úrslitum í orrahríð íslenskra stjórnmála. Þar þarf fyrst og fremst öflugan flokk með einbeittan pólitískan vilja.
En hvað hefur breyst í fari stjórnarinnar með tilkomu Alþfl.? Hvað um kjaramálin? Þar er sagt að fylgt sé fastgengisstefnu. Hún byggist á því, sú stefna, að kaupmáttur kauptaxta verði óbreyttur á næsta ári. Það er stefna sem í rauninni er ekki hægt að líða. Það er ekki jafnaðarstefna í kjaramálum.
Er fylgt jafnaðarstefnu í skattamálum? Svarið er nei. Þar er byrjað á því að leggja skatt á matvörur, en það eru ekki lagðir skattar á vaxtatekjur, ekki lagðir skattar á stóreignir, ekki lagðir skattar á fjármagnseigendur eða þá sem hafa rakað saman gróða í góðærinu. Það er ekki jafnaðarstefna að byrja á því að leggja skatt á matvörur.
Það er ekki heldur jafnaðarstefna sem fylgt er t.d. í peningamálum þar sem ákveðið er að gefa peningamönnum kost á að kaupa erlend skuldabréf, en það munu vera þeir einu fjármagnseigendur í landinu sem hafa sérstaklega fagnað stefnu núverandi ríkisstjórnar og hafa tekið tappa úr kampavínsflösku til þess að skála fyrir Jóni Baldvini Hannibalssyni.
En í byggðamálum? Er fylgt jafnaðarstefnu þar? Nei, það er ekki því eini atvinnuvegurinn sem ríkisstjórnin leggur á skatta er sjávarútvegurinn og nemur sá skattur mörgum hundruðum milljóna króna og er sérstakur landsbyggðarskattur.
Er fylgt jafnaðarstefnu í uppeldis- og skólamálum? Svarið er nei því að ríkisstjórn sem byrjar á því að fella niður framlög til barnaheimila, strikar þau algjörlega út úr ríkissjóði, fellir niður framlög til tónlistarskóla, er ekki ríkisstjórn sem er sérstaklega vinsamleg menningunni né heldur börnunum og uppeldisskilyrðum þeirra.
Þannig er ljóst eftir aðeins þriggja mánaða stjórnarsetu að Alþfl. hefur yfirgefið jafnaðarstefnuna í verki og kosningaloforðin líka.
Í utanríkismálum hefur borið á því að farið er nýjar leiðir og það er fagnaðarefni, enda kom í ljós í skoðanakönnun í sumar að þjóðin fylgir í vaxandi mæli þeirri stefnu í utanríkismálum sem Alþb. eitt flokka hefur staðið fyrir og mun standa fyrir. En forsrh. kallaði stefnu Steingríms Hermannssonar áðan þjóðhættulega sýndarmennsku. Þannig er innan stjórnar sem Sjálfstfl. veitir forustu í fyrsta sinn grundvallarágreiningur um veigamikla þætti í utanríkismálastefnunni.
Þegar þessi ferill undanfarinna mánaða er skoðaður er hin pólitíska niðurstaða skýr:
1. Það verður mynduð hér íhaldsstjórn aftur og aftur uns Alþb. verður sterkt forustuafl í íslenskum stjórnmálum.
2. Alþfl. ber ekki fram í verki jafnaðarstefnu, hvorki í kjaramálum, skólamálum, menningarmálum, skattamálum, atvinnumálum né í byggðamálum.
3. Það er ljóst af umræðum undanfarinna mánaða að nú er lag til að fylkja þjóðinni um róttæka íslenska utanríkisstefnu.
Öll þessi verkefni kalla á Alþb. því reynslan sýnir að þverpólitísk samtök og miðjumoðsflokkar duga skammt.
Góðir hlustendur. Ég hef tekið eftir því undanfarna daga að andstæðingar okkar eru að gera sér vonir um að Alþb. liðist í sundur á landsfundi flokksins í næstu viku. Ég vil hryggja andstæðinga okkar með því að Alþb. mun koma heilt frá þessum landsfundi. Alþb. verður að styrkjast sem róttækur vinstri flokkur, flokkur sem er í senn trúr hugsjónum sósíalismans og hugsjóninni um frjálst og fullvalda Ísland. Verkefnin sem bíða Alþb. eru svo stór og möguleikarnir svo miklir að við megum engan tíma missa. Landsfundur okkar skiptir máli fyrir alþýðuhreyfinguna í landinu. Þar munum við búa okkur betur en áður til að sækja þá sigra sem við getum unnið. Þá verður til það róttæka afl í íslenskum stjórnmálum sem nú er kallað á úr öllum áttum, róttækt afl með skýra og afdráttarlausa vinstri stefnu, afl sem vísar veginn til betra samfélags, mannúðar og félagshyggju, samfélags sósíalisma, lýðræðis og jafnréttis.