27.10.1987
Sameinað þing: 9. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í B-deild Alþingistíðinda. (293)
Stefnuræða forsætisráðherra
Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Að breyta orðum í athöfn er list skapandi stjórnmála. Með fjárlagafrv. og fylgifrv. þess er lagður grundvöllur að varanlegum umbótum í íslensku stjórnkerfi. Um nauðsyn þessara umbóta hafa menn úr öllum flokkum talað árum og áratugum saman. Nú er tími til kominn að breyta orðum í athafnir. Tímans vegna nefni ég aðeins tvö dæmi af mörgum, heildarendurskoðun á skattakerfinu og breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Bæði þessi stórmál hefur stjórnarandstaðan reynt að gera tortryggileg illu heilli og að ósekju. Er stjórnarandstaðan búin að gleyma skattsvikaskýrslunni frægu, þessari hérna?
Leyfist mér að rifja upp: Þann 3. maí 1984 fékk Alþfl. samþykkt á Alþingi að láta gera úttekt á umfengi skattsvika. Tæpum tveimur árum síðar, 18. apríl 1986, lagði þáverandi fjmrh. fram niðurstöður nefndarinnar, þessa skýrslu. Formaður nefndarinnar er Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, nánasti samstarfsmaður Guðmundar J. Guðmundssonar, formanns Verkamannasambands Íslands, fyrrverandi aðstoðarráðherra Ragnars Arnalds og trúnaðarmaður Alþb. í nefndum og ráðum. Nautarnir að skýrslunni eru því góðir.
Og hvaða niðurstöður komu út úr starfi Þrastar og félaga? Að tekjutap ríkissjóðs vegna vangoldinna skatta megi áætla framreiknað til núvirðis á bilinu 56 milljarðar kr., þar af í söluskatti milli 2 og 3 milljarðar. Hvaða tillögur lagði nefndin fram til úrbóta? Rauði þráðurinn gegnum alla skýrsluna er þessi og þeir hamra á niðurstöðunni: Einföldun skattalaga og fækkun undanþága er forsenda allra umbóta í átt til réttláts og skilvirks skattakerfis.
Núverandi ríkisstjórn hefur tekið þessar rækilega rökstuddu umbótatillögur allar eins og þær leggja sig og gert að sínum. Allar. Það stendur svart á hvítu í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar og því verður fylgt eftir. Þá bregður svo kynlega við að stjórnarandstaðan, jafnvel einstaka stjórnarliðar, mega ekki til þess hugsa að þessi nauðsynlega hreingerning á úreltu, ranglátu og götóttu skattakerfi nái fram að ganga. Hvernig væri að hin hagsýna húsmóðir tæki stjórnarandstöðuna, og gleymum nú ekki kvennalistakonunum, með sér í búðarleiðangur í venjulega verslun? Þær ættu að hafa skattsvikaskýrsluna með sér. Þær mættu gjarnan velta fyrir sér eftirfarandi spurningum t.d.: Hvernig er farið að því að skipta sölu í undanþegna sölu og skattskylda? Hvernig er farið að því að greina á milli sölu undanþeginna matvæla og sölu tilbúinna rétta? Hvernig á að greina á milli framleiðslu eða þjónustu sem er unnin innan fyrirtækis og aðfenginnar? Hvaða afleiðingar hafa handahófskenndar undanþágureglur, t.d. að vinna sem er unnin á byggingarstað er undanþegin en sömu verk ekki séu þau unnin á verkstæði?
Svo mættu menn gjarnan fletta upp í skattsvikaskýrslunni á bls. 38, en þar er söluskattskerfinu lýst í hnotskurn, með leyfi forseta:
„Mikil fjölgun undanþága og aukin sérhæfing í atvinnulífinu samhliða margföldun skatthlutfallsins veldur því að skattyfirvöld eiga í sívaxandi erfiðleikum með að koma á eðlilegri og réttlátri innheimtu skattsins. Gjaldendur eru í sífellt meiri óvissu um skattskyldu og markatilfellum fer ört fjölgandi. Það nálgast því að innheimta söluskatts í núverandi mynd verði óframkvæmanleg“ — óframkvæmanleg.
Þetta er niðurstaða tveggja ára rannsókna á söluskattskerfinu, langsamlega stærsta tekjustofni ríkisins, eftir að góðviljað Alþingi og ríkisstjórnir hafa borað á það þúsund göt á undanförnum áratugum. Það er alveg sama hversu lengi menn klappa þennan stein. Menn komast allir að sömu niðurstöðu og þeir sem skoðað hafa málið til botns. Núverandi söluskattskerfi er ónýtt. Svo einfalt er það.
Af því tilefni nokkrar spurningar til stjórnarandstöðunnar: Ætlar stjórnarandstaðan að stilla sér upp til varnar úreltu og ónýtu skattakerfi? Á það að verða hlutskipti formanns Alþb. eða leifanna af því, þess sem talaði áðan, í blóra við rökstudda greinargerð framkvæmdastjóra Dagsbrúnar? Hvað með Kvennalistann? Ætlar hann að leggja blessun sína yfir skattundandrátt sem nemur mörgum milljörðum króna? Býst stjórnarandstaðan virkilega við því að verða slegin til riddara vegna lýðskrums af þessu tagi?
Herra forseti. Hvað svo sem lýðskrumi stjórnarandstöðu og annarra líður mun þessi ríkisstjórn standa við áform sín um að hrinda tillögum skattsvikanefndarinnar í framkvæmd. Upp úr næstu áramótum verður undanþágum frá söluskatti fækkað, skattstofninn breikkaður og söluskattsprósentan lækkuð. Samtímis verða tollar á aðföng útflutnings og samkeppnisiðnaðar afnumdir og aðrir tollar lækkaðir. Þar með mun verð á u.þ.b. þremur fjórðu hlutum af neysluvörum almennings lækka í verði. Ríkissjóður mun jafnframt verja bróðurpartinum af auknum söluskattstekjum til að bæta þeim sem þess raunverulega þurfa með verðhækkunaráhrif vegna þeirra vara sem ekki verða lengur undanþegnar. Þetta verður gert með því að hækka skattfrelsismörk í staðgreiðsluskatti, með því að greiða út til barnmargra fjölskyldna barnabætur og tekjutengdan barnabótaauka ársfjórðungslega. Jafnframt verða bótagreiðslur almannatrygginga hækkaðar.
En hvað spyrja menn með þau áform ríkisstjórnarinnar að flýta hluta af þessum breytingum fram til 1. nóv. um leið og verðhækkunaráhrifin áttu að bætast með niðurgreiðslum á búvörum? Svarið við því fæst innan örfárra daga. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að hún sé reiðubúin að falla frá þeim áformum ef það mætti verða til þess að greiða fyrir samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins og launþegahreyfinguna í landinu um launastefnu á næsta ári innan ramma þeirrar heildarstefnu sem ríkisstjórnin hefur mótað. Ég er hóflega bjartsýnn á að það kunni að takast.
Herra forseti. Kjarni málsins er þessi: Með staðgreiðslu beinna skatta einstaklinga frá og með áramótum, með breikkun söluskattsstofns, lægri söluskattsprósentu og tekjujöfnunaraðgerðum um leið, með lækkun tolla, fækkun frádráttarliða í tekjuskatti fyrirtækja og upptöku virðisaukaskatts áramótin 1988–1989, með öllum þessum aðgerðum er ríkisstjórnin að framkvæma róttækustu umbætur á skattakerfinu í anda þeirra tillagna sem skattsvikanefndin mælir með. Eftir þessar breytingar verður skattakerfið einfaldara, réttlátara og skilvirkara en það hefur verið hingað til.
Stjórnarandstaðan mætti gjarnan hugleiða það líka að svo lengi sem tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs er í molum og ríkissjóður rekinn með sívaxandi halla mun verða þungt undir fæti að fá samþykkt hér á Alþingi hækkandi framlög til þeirra velferðarmála sem allir þm., hvar í flokki sem þeir standa, vilja gjarnan beita sér fyrir. Með þessum umbótum er þessi ríkisstjórn þess vegna að búa í haginn fyrir framtíðina.
Herra forseti. Annað stórmál sem vissulega má flokka undir varanlega stjórnarbót og ríkisstjórnin hyggst nú beita sér fyrir varðar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Áratugum saman hafa sveitarstjórnarmenn og íbúar landsbyggðarinnar knúið á um valddreifingu til sveitarfélaga. Sá sem hér stendur þekkir það vel af eigin reynd sem sveifarstjórnarmaður í tæpan áratug í höfuðstað Vestfjarða. Það voru vissulega þung spor að þurfa sífellt að leita suður til nefnda, ráða og stofnana til að fá leyfi og mótframlög til framkvæmda í heimabyggð. Þetta er sú betlistafsbyggðastefna sem Samtök um jafnrétti milli landshluta vilja gjarnan kveða niður.
Á sl. vori tókst góð samstaða milli fulltrúa Sambands ísl. sveitarfélaga og ríkisvaldsins um tillögur um breytingar á þessari verkaskiptingu. Ríkisstjórnin hyggst beita sér fyrir framkvæmd þessara tillagna með samstarfi og í nánu samráði við samtök sveitarfélaga í tveimur áföngum, 1988 og 1989. Þetta er umbótamál landsbyggðarinnar og það á ekki að vera ágreiningsmál. Það er létt verk og löðurmannlegt en um leið illt verk og óþarft að vekja upp úlfúð og tortryggni um framkvæmd þessa máls að óþörfu.
Í fjárlagafrv. kemur fram að kostnaðarauki sveitarfélaga á næsta ári vegna þessa verkefnaflutnings verður bættur, ekki aðeins að fullu heldur miklu meira en það. Í undirbúningi eru breytingar á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Skerðing á framlögum til hans verður afnumin í tveimur áföngum. Sérstök deild mun starfa innan Jöfnunarsjóðsins, en tekjum hans verður varið til jöfnunar milli sveitarfélaga vegna flutnings verkefna frá ríkinu. Það eru þess vegna hreint og sagt fráleit orð þegar menn eru að tala um að þessar tillögur þýði að ekki verði lengur byggð félagsheimili, ekki starfrækt dagvistarheimili og annað slíkt fjas. Þetta eru verkefni sem eiga með réttu heima á vettvangi sveitarstjórna og sveifarstjórnirnar munu ekki tapa á þessum viðskiptum. Þessar tillögur verðskulda vissulega velvild og stuðning allra þeirra sem af einlægni telja sig baráttumenn fyrir sjónarmiðum og hagsmunum hinna dreifðu byggða.
Herra forseti. Dæmi um ómótstæðilega löngun sumra til að slá sig til riddara eru brigslyrði sem látin eru falla um meintan skilningsskort á gildi íþrótta sem á að endurspeglast í fjárlagafrv. Staðreyndirnar eru þær að fyrir tilstuðlan laga sem Alþingi hefur samþykkt hafa fjárráð íþróttahreyfingarinnar a.m.k. fimmfaldast frá því sem var t.d. í fjármálaráðherratíð Alberts Guðmundssonar. Á þessu og næsta ári mun íþróttahreyfingin hafa úr að spila a.m.k. 113 millj. og 120 millj. hvort árið, en árin 1984 og 1985 voru þessi framlög 101/2 og 19 millj. kr. hvort árið. Ekkert verkefni á fjárlögum hefur fengið svo stórkostlega bættan fjárhag. Það skiptir ekki máli hvaðan peningarnir koma, hvort þeir koma í framlögum á fjárlögum eða sem tekjur frá lottói. Það sem skiptir máli er að peningarnir séu til ráðstöfunar.
Herra forseti. Ríkisstjórnir eru ólíkrar náttúru. Íslendingar hafa fengið að reyna það á sjálfum sér ótæpilega á undanförnum áratugum hvernig þær ríkisstjórnir reynast sem þykjast í upphafi vilja vera öllum allt, sem vilja sitja, vilja vera en ekki gera. Þær hafa allar endað feril sinn á eina og sömu lund. Þær hafa reynst þeim verst sem þær þóttust vilja best. Dapurleg reynsla af ríkisstjórnarþátttöku Alþb. á liðnum árum er þar enn víti til varnaðar. Ég leyfi mér að vona, herra forseti, að þessi ríkisstjórn reynist þegar upp er staðið annarrar gerðar því að til þess eru vítin að varast þau.