04.02.1988
Sameinað þing: 43. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4200 í B-deild Alþingistíðinda. (2948)
219. mál, rafskautaverksmiðja við álverið í Straumsvík
Iðnaðarráðherra (Friðrik Sophusson):
Hæstv. forseti. Með bráðabirgðasamningi milli ríkisstjórnar Íslands og Swiss Aluminium, dags. 23. sept. 1983, var samið um lausn deilu ríkisstjórnarinnar og Alusuisse varðandi framleiðslugjald, framtíðarstarfsemi Ísals og tímabundnar ráðstafanir, m.a. um breytingu á orkuverði og varðandi hugsanlega stækkun bræðslunnar. Grein 2.4 fjallar m.a. um rafskautaverksmiðju og hljóðar þannig orðrétt:
„Alusuisse mun gera hagkvæmnisathuganir á því að koma upp rafskautaverksmiðju á bræðslulóðinni og á stækkun steypuskála.“
Í framhaldi af gerð bráðabirgðasamningsins var megináhersla lögð á endurskoðun rafmagnssamningsins milli Landsvirkjunar og Ísals og lausn deilumála um framleiðslugjald. Eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda voru hinn 5. nóv. 1984 undirritaðir samningar um þennan þátt endurskoðunarinnar, þ.e. 3. viðauki rafmagnssamningsins og sáttargerðarsamningur milli ríkisstjórnar Íslands og Alusuisse. Sama dag var enn fremur undirritað bréf um samkomulag milli Alusuisse og ríkisstjórnarinnar er varðar framhald viðræðna aðila samkvæmt bráðabirgðasamningnum. Í 3. tölulið þessa samkomulagsbréfs segir orðrétt: „Eigi síðar en hinn 1. jan. 1985 mun Alusuisse hefjast handa um forathugun á hagkvæmni þess að koma upp rafskautaverksmiðju við bræðsluna sjálfa í samræmi við málsgrein 2.4 í bráðabirgðasamningnum.“
Snemma árs 1985 hófust viðræður aðila á ný og var unnið að heildarendurskoðun á ákvæðum aðalsamnings aðila um framleiðslugjald og lauk þeirri vinnu með undirritun á 4. viðauka við aðalsamninginn 11. nóv. 1985. Í þeirri endurskoðun var rætt um verðlagningu á rafskautum og kynnti Alusuisse þá frumniðurstöðu að eigi væri hagkvæmt að ráðast í byggingu rafskautaverksmiðju í Straumsvík. Enn fremur kom fram að ekki yrði ráðist í byggingu rafskautaverksmiðju nema í tengslum við stækkun álversins. Þá fékk samninganefndin upplýsingar frá norskum álframleiðendum um að þeir hefðu gert sjálfstæða rannsókn á hagkvæmni þess að byggja rafskautaverksmiðju í Noregi í stað þess að kaupa rafskaut frá rafskautaverksmiðju Alusuisse í Rotterdam svo sem Ísal gerir. Niðurstaða Norðmanna var sú að hagkvæmara væri að kaupa rafskaut frá verksmiðjunni í Rotterdam.
Í ljósi þessa og þegar ljóst var orðið að Alusuisse hafði ekki a.m.k. fyrst um sinn aðstæður til að taka þátt í stækkun álversins, var af Íslands hálfu ekki óskað eftir því að Alusuisse legði fram formlega skýrslu um hagkvæmni þess að koma upp rafskautaverksmiðju á bræðslulóðinni.
Hin nýja regla um mat á kostnaði á rafskautum til Ísals er sett fram í málsgrein 27.04 í aðalsamningi. Ekki voru tök á að semja þar um jafnákveðna viðmiðun og varðandi súrál og ál, m.a. af því að rafskaut eru ekki markaðsvara í sama mæli og súrál og ál. Hins vegar var ljóst að sala á rafskautum til þriðja aðila frá rafskautaverksmiðjum Alusuisse er orðin mikilvægur þáttur í starfsemi þessara verksmiðja þannig að marktækt er og hagkvæmt að styðjast við verð til þessara aðila sem hámark þess verðs er setja megi upp gagnvart Ísal. Eru reglur málsgreinar 27.02 á þessu byggðar og voru teknar upp vegna þess að óháð viðskipti með rafskaut höfðu aukist mjög verulega árin á undan. Þar sem þessi nýja viðmiðun studdist ekki við framleiðslukostnað þótti enn fremur síður vera ástæða til að fá skýrsluna lagða fram.
Hvað steypuskálann varðar skal eftirfarandi tekið fram: Ráðgert er að bæta við einni svokallaðri sísteypuvél í steypuskála álversins til að mæta kröfum viðskiptavina félagsins um meira af börrum og stöngum. Árið 1987 var u.þ.b. 66% af framleiðslu Ísals málmur sem viðskiptavinurinn notar beint í eigin framleiðslu án umbræðslu. Nýja steypulínan á að hafa u.þ.b. 80 þús. tonna afkastagetu á ári. Með þessari viðbót verður hægt að steypa alla framleiðsluna í völsunarbarra og þrýstimótunarstangir sem notendur vinna úr án umbræðslu. Með þessum hætti eykst verðmæti framleiðslu Ísals verulega, þ.e. þegar allur málmur verður steyptur til beinvinnslu án umbræðslu. Nýja steypulínan krefst stækkunar húsnæðis og verður viðbygging við steypuskála rúmlega 1000 m að stærð. Áætlað er að þessi framkvæmd kosti um 380 millj. kr. og að verkinu ljúki á tveimur árum. Þess má geta að af hálfu Alusuisse er ekki fyrirhugað að stækka kerskálana frekar nú, hvað sem síðar kann að verða. Hins vegar hefur Alusuisse lýst sig reiðubúið til samstarfs við aðila sem vildu fjármagna stækkun álversins og gætu séð um sölu á viðbótarframleiðslu sem með stækkuninni fengist.