04.02.1988
Sameinað þing: 43. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4205 í B-deild Alþingistíðinda. (2953)

230. mál, innflutningur á gölluðum Subaru-bifreiðum

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Hv. 3. þm. Suðurl. beinir þeirri fsp. til mín sem viðskrh. og dómsmrh. hvers vegna heimilaður hafi verið innflutningur, skráning og skoðun á tjónabílum af gerðinni Subaru sem ekki hafi fengist skráðir í Noregi.

Spurningin er villandi, misvísandi að því leyti að í henni er fullyrt að bílarnir hafi ekki fengist skráðir í Noregi Hv. fyrirspyrjandi ítrekaði þetta í sinni ræðu. Ég vil taka það skýrt fram að þetta er ekki rétt og ég mun víkja að því hér á eftir.

Varðandi innflutning bílanna almennt er það að segja að samkvæmt reglugerð viðskrn. um innflutnings- og gjaldeyrisleyfi er innflutningur á vörum til landsins almennt frjáls, þar á meðal á nýjum og notuðum fólksbifreiðum. Það kom því auðvitað ekki til neinnar sérstakrar skoðunar af hálfu innflutningsyfirvalda hvort heimila ætti innflutninginn eða ekki á grundvelli þessarar reglugerðar.

Svo ég snúi mér þá að bifreiðaeftirlitshliðinni, þá er það rétt að Bifreiðaeftirlit ríkisins mun hafa haft af því spurnir að til stæði að flytja hingað þessa bíla sem lent hefðu í vatnsflóði þegar óveður gekk yfir bæinn Drammen í Noregi 16. okt. sl. Það fylgdi sögunni að framleiðandi bílanna hefði lýst þá ónýta og í framhaldi af því lýsti umboðsmaður bílanna hér á landi því yfir að hér væri um skemmda bíla að ræða sem óhæfa væri að setja á markað, en þá er reyndar rétt að geta þess að annar innflytjandi hafði fest kaup á þessum bílum.

Það er verkefni Bifreiðaeftirlitsins að fylgjast með því að öryggisbúnaður bifreiða sé í lagi og í ljósi framangreindra upplýsinga mun forsvarsmaður Bifreiðaeftirlitsins hafa sagt við fjölmiðla að bifreiðarnar mundu ekki fást skráðar hér á landi. Síðan gerist það að hingað til landsins voru fluttir japanskir bílar af annarri gerð sem höfðu lent í sama vatnsflóðinu. En í því tilfelli lýstu bæði framleiðandi og umboðsmaður því yfir að bílarnir yrðu í góðu lagi þegar búið væri að fara yfir nokkur atriði sem hugsanlega kynnu að hafa skaðast í vatnsflóðinu. Bílarnir yrðu seldir með verulegum afslætti frá verði nýrra bíla, enda hefði tryggingafélag norsks innflytjanda þegar bætt honum tjón á bílunum, en vegna norsku tollareglnanna væri ekki hagkvæmt að selja bílana í Noregi.

Ég átti viðræður við alla aðila þessa máls, þar með talda fulltrúa framleiðendanna frá Japan, og eftir að Bifreiðaeftirlitið hafði skoðað úrtak úr þessum bílum af báðum gerðum nákvæmlega og sett nánari reglur um þau atriði sem sérstaklega skyldi yfirfara þegar svona stendur á, voru bílarnir teknir til skráningar. Þá vaknaði auðvitað sú spurning hvort það væri hægt að neita skráningu á Subaru-bílunum á grundvelli yfirlýsinga framleiðenda þeirra ef bílarnir væru engu að síður í svipuðu ástandi og bílar af öðrum gerðum sem hefðu lent í sömu rigningunni. Niðurstaðan varð auðvitað sú að úrtakið úr Subaru-

bílunum yrði skoðað nákvæmlega og reyndar enn nákvæmar en hið fyrra. Þá kom í ljós að það var verulega ofsagt, ef ekki ósatt, að bílarnir væru ónýtir eins og áður hafði verið lýst yfir af framleiðandanum. Reyndar vil ég geta þess að það var ekki framleiðandinn sjálfur heldur sölufyrirtæki hans sem skilaði þessum yfirlýsingum til innflytjanda hér og dómsmrn. Bifreiðaeftirlitið hefur síðan sett um þetta ítarlegar yfirlýsingar og reglur um það hvernig standa ætti að skoðun hvers bíls og þeir hafa síðan verið skráðir hver fyrir sig eins og gildir yfirleitt um notaða bíla. Það er sá munur á þessum bílum og öðrum innfluttum bílum sem notaðir hafa verið eða lent hafa í einhverju sem kynni að hafa rýrt þeirra verð, að það er vitað nákvæmlega hvað fyrir þá kom.

Það er alls ekki rétt að það hafi verið neitað um skráningu á þessum bílum í Noregi. Hið sanna í málinu er að innflytjendur þar í landi vildu ekki setja þá á markað eftir flóðið, einfaldlega af því að þeir hefðu orðið að greiða óbreytt aðflutningsgjöld eins og um nýja bíla væri að ræða þrátt fyrir þá verðlækkun sem þeir yrðu að þola ef seldir væru þar í landi vegna þess að tollyfirvöld þar fylgja faktúruverðinu eins og bílarnir koma fyrst inn í landið. Þetta er ástæðan fyrir því að óhagkvæmt þótti að selja þá þar í landi.

Ég vil taka það alveg skýrt fram að Bifreiðaeftirlit ríkisins er ekki almennt gæðaeftirlit á bílum og má ekki mismuna milli innflytjenda eða taka afstöðu í viðskiptalegum ágreiningi eins og ég tel að hér hafi verið um að ræða. Bifreiðaeftirlitið á að fjalla um skráningu á bílum af öllum gerðum, þar með bílum sem fluttir eru inn notaðir. Bifreiðaeftirlitið á að fylgjast með því að ákveðinn öryggisbúnaður bílanna sé í fullkomnu lagi. Það er auðvitað þannig að þeir sem kaupa ódýra bíla eða bíla með afslætti sökum þess að þeir eru notaðir eða hafa orðið fyrir einhverjum skakkaföllum hljóta að gera sér grein fyrir því að þær bifreiðir séu ekki líklegar til sama langlífis og dýrari bílar eða bílar sem ekki hafa lent í neinu skakkafalli. Þetta er hins vegar ekki mál sem Bifreiðaeftirlitið á að fjalla um. Verkefni þess er eingöngu að sjá um að öryggisbúnaður bílanna sé í lagi og að það sé engin hætta af þeim frá öryggissjónarmiði.

Fullyrðingum hv. fyrirspyrjanda um það að með þessu hafi Ísland skipað sér á bekk með vanþróuðum þjóðum vísa ég frá sem fullkominni rökleysu. Hér er eingöngu verið að gefa Íslendingum kost á því að taka sjálfir ákvarðanir um það, hvað þeir telji sér hagkvæmt að kaupa, en þess jafnframt gætt að jafnræði sé með þeim sem flytja inn vörur til landsins og allra öryggissjónarmiða sé gætt til hins ýtrasta.