27.10.1987
Sameinað þing: 9. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í B-deild Alþingistíðinda. (299)
Stefnuræða forsætisráðherra
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Góðir Íslendingar. Á stundu sem þessari er rétt að rifja það upp í örfáum orðum hvernig staðið var að stjórnarmyndun eftir kosningarnar á þessu ári.
Það kom fljótlega í ljós að bæði Sjálfstfl. og Alþfl. töldu að erfitt væri að semja við framsóknarmenn. Áhuginn var mestur á að snúa sér að Kvennalista sem tilkynnti þeim með bros á vör að þær mundu selja sig dýrt. Það kom hik á þetta lið. Þeir leituðu ýmissa annarra leiða. Niðurstaðan varð sú að þeir gáfust upp í stjórnarmyndunarviðræðum og sáu að án framsóknar gætu þeir ekki myndað ríkisstjórn. En þeir vissu jafnframt að Framsfl. væri ekki til sölu. Þeir vissu að það þýddi mjög ákveðið að stefnumál Framsfl. yrði að virða í þeirri ríkisstjórn sem tæki við.
Þá var mest lagt upp úr útlitinu. Menn trúðu því að ákveðnir ráðherrastólar gerðu menn stóra, aðrir ráðherrastólar mundu gera menn minni. Nú er það svo að ég hygg að sagan muni dæma það á þann veg að sumir ráðherrastólar stækki við það að ákveðnir menn sitja í þeim en öðrum ráðherrastólum hætti til að minnka ef mennirnir eru ekki nægilega stórir fyrir þá stóla sem þeir setjast í.
Seinasta ríkisstjórn skilaði Íslandi hagvexti og framförum. Hún skilaði einnig efnahagslegu jafnvægi. En nýgræðingurinn sem fór af stað í atvinnulegu tilliti í seinustu ríkisstjórn er ekki enn orðinn svo traustur að hann þoli að standa óstuddur. Þar á ég bæði við fiskeldið sem á eftir að færa þessari þjóð mikinn auð og einnig loðdýraræktina.
Ég vil ekki trúa því að óreyndu þrátt fyrir tillögur í fjárlagafrv. að Alþingi Íslendinga hiki við að sjá til þess að viðhalda vísindastarfsemi og rannsóknum til þess að tryggja framgang nýrra atvinnugreina í landinu. Ég trúi ekki öðru en að Alþingi tryggi slíkt hvað sem líður tillögum í fjárlagafrv.
Það eru viss hættuatriði sem blasa við í íslensku efnahagslífi. Sumir telja að þá sé aðalatriðið að binda sig fastan við viss markmið, vissa stefnu, og það er stagast á því að það eigi að vera fast gengi á íslenskri krónu. Það er nú svo að mikil mega þau völd vera hjá íslenskum ráðherrum ef þeir telja sig hafa alla þá þætti í hendi, stjórnunarlega séð, sem þarf til þess að tryggja fastgengisstefnu. Það eru meiri völd en nokkrir ráðherrar annars staðar í heiminum hafa. Ég vona að þeir geri sér grein fyrir þessu þegar þeir fara að skoða þetta betur.
Athyglisvert er að þegar borin er saman þróun lánskjaravísitölunnar og meðalgengis íslensku krónunnar frá 1979 til dagsins í dag kemur í ljós að lánskjaravísitalan hefur hækkað úr 100 stigum í tæp 1800 stig á sama tíma og meðalgengi krónunnar hefur tekið þeim breytingum að færast frá 100 upp undir 800. Hver mundi trúa því að þetta ætti eftir að gerast sem samþykkti lánskjaravísitölu á sínum tíma? Það hefði verið betra að bjóða gulltryggingu krónunnar en þá hringavitleysu sem þetta leiðir til.
Og þegar hæstv. félmrh. stendur upp ákveðinn og kvartar yfir því að erfiðleikar blasi við húsbyggjendum þessa lands væri hyggilegast að snúa sér að viðskrh. og fjmrh. og spyrja: Hvert ætlið þið með arðinn af fjármagninu? Hvað ætlið þið að fara hátt með vextina? Hvernig haldið þið að fari fyrir þeim einstaklingum sem þyrftu að borga 8,5% ofan á vísitöluna til þess að halda sínu húsnæði eða ganga að enn þá meiri afarkostum?
Nei, hún hefur þá báða Jónana til að tugta til og ég vona að hún dugi vel til þeirra hluta en vissulega ætlast ég til þess að mínir samflokksmenn í þingflokknum þoli það einnig þó að þar hvessi á milli.
Ég vil undirstrika að þessari ríkisstjórn stendur hætta af því hvað stjórnarandstaðan er léleg. Hættan stafar af því að harðskeytt stjórnarandstaða hefur löngum orðið til þess að berja stjórnarsinna saman.
Það virðist hins vegar vera þannig ástandið núna að þeim stafi svo lítil hætta af stjórnarandstöðunni að þeir rífist óhóflega innbyrðis. Auðvitað er það svo að þegar sá stjórnarandstöðuflokkurinn sem hefur nú einna mestu reynsluna, Alþb., býr við það innanmein að slátra sínum foringja til heimabrúks samkvæmt lögum sem þeir hafa sjálfir sett sér og sitja uppi með harðvítugar deilur um hver eigi að taka við blasir það við þjóðinni að flokkur sem ekki fær stjórnað sjálfum sér er að sjálfsögðu óhæfur til að fara í ríkisstjórn.
En hvað sem því líður er það grundvallaratriði að þeir sem standa að þessari ríkisstjórn verða að gera sér grein fyrir að íslensk þjóð líður þeim sem fara með völd í þessu landi engan leikaraskap. Það verður að vinna að réttlætismálum og það verður að ná sáttum í mörgum deilumálum milli þeirra aðila sem mynda þessa ríkisstjórn. Það skyldi engan undra að jafnólíkir flokkar hafi ólíkar skoðanir. En ég hef ekki trú á að það verði þessum flokkum til gæfu eða gengis ef menn ekki reyna að stilla saman strengina og ná árangri til hagsbótar fyrir land og lýð. Þá hefði verið betra að standa ekki að ríkisstjórn ef menn ekki treysta sér til að vinna þannig og ég vil ekki trúa öðru um íslenska ráðherra en að þeir reyni að láta þetta stjórnarsamstarf verða til gæfu fyrir íslenska þjóð. — Lifið heil.