04.02.1988
Sameinað þing: 44. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4312 í B-deild Alþingistíðinda. (2990)
Staðan í efnahags- og kjaramálum
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Það hefur verið komið víða við í umræðum á Alþingi í dag. Hér hafa verið til umræðu efnahags- og launamál. Síðasti ræðumaður endaði með því að segja að hér hefðu ekki verið lagðar fram tillögur af stjórnarandstöðu. Það er nú svo að við lögðum fram fjölda tillagna um efnahagsmál við umræður fyrir áramót og þar á milli um aðrar leiðir en núv. ríkisstjórn hefur kosið að fara. Þær voru að sjálfsögðu allar felldar þannig að við getum ekki farið að leggja fram nýjar tillögur nú sérstaklega í þeim sökum heldur hljótum við að ræða hvernig er komið og af hverju.
Hæstv. utanrrh. sagði í viðtali fyrir skömmu að Róm væri að brenna. Og þá var spurt: Hver kveikti í? Og ég spyr: Hver kveikti í Róm? Það er skoðun framsóknarmanna, virðist vera, að Róm sé að brenna. En hver kveikti í? Hæstv. fjmrh. kom inn á í ræðu sinni í dag að það ástand sem núna væri í efnahagsmálum væri allt fyrrv. ríkisstjórn að kenna og þá auðvitað stjórn fjármála og hæstv. forsrh. væri þá sérstaklega ábyrgur. Ég varð undrandi á því að hæstv. fjmrh. skyldi ráðast svo hörkulega á forsrh. og hefði viljað heyra í hæstv. forsrh. þegar hann svaraði fjmrh. því að hann var að ásaka hæstv. forsrh. fyrir að ástand í efnahagsmálum væri tilkomið vegna hans linku í stjórn. Og nú er spurningin: Hver spilar á fiðluna í ríkisstjórninni? Hver er fiðluleikarinn? Hver spilar á fiðluna á meðan Róm brennur?
Það var upplýst að hæstv. utanrrh. er á sólbaðsströnd og kannski verður hann sólbrenndur eða sólbrunninn. Hver veit. En það veit enginn. Það er spurning sem hefði verið gaman að bera fram ef hæstv. fjmrh. væri ekki enn einu sinni floginn því hann er ekki þrekmikill maður: Hver á Alþfl.? Þeir fóru í hundrað funda herferð sem frægt er orðið og spurðu: Hver á Ísland? Nú spyr ég: Hver á Alþfl.? (AG: Svíar og Danir.) Ég gæti ímyndað mér að það væru kannski kratar á Norðurlöndunum eftir hans tillögum að dæma. Það var gefin út bók um jólin sem bendir til þess að kratar á Norðurlöndum eigi Alþfl. Það er ekki að vita annað en að þeir stjórni þá félögum sínum vel.
Ég held að meginvandinn í stjórn peningamála og vaxtamála sé í rauninni stjórnleysi. Ég tek undir það sem bæði hæstv. sjútvrh. sagði í dag varðandi stöðu í sjávarútvegi og hv. 10. þm. Reykv. þar sem þeir komu inn á gengismálin. Sl. haust vakti ég máls á þessum atriðum við umræður um efnahagsmál sem urðu utan dagskrár og benti á þetta þá þegar og ítrekaði raunar þau sjónarmið við 2. umr. fjárlaga. Það er alveg ljóst að gengi íslensku krónunnar byggist ekki á því hvort ríkisstjórnin hefur ákveðið að það eigi að vera fast gengi eða ekki. Gengið byggist á því hvernig staðan er í efnahagsmálum hér innan lands. Útflutningsatvinnuvegirnir ráða þar miklu um og sú staða hvernig innflutningurinn er og jafnvægið á milli innflutnings og útflutnings er.
Það hefur verið upplýst að viðskiptahalli var 6,5 milljarðar, menn tala nú um 8 eða jafnvel 10 milljarða, á síðasta ári. Og nú er spurningin og það væri gaman að fá fjmrh. til að svara því ef hann er ekki sofnaður, hvort 10 milljarðar í óhagstæðum viðskiptajöfnuði þýði að við séum svo rík að þetta sé umframfé sem við séum að flytja inn. Það er spurning sem brennur á vörum fólks.
Ég held að það liggi ljóst fyrir að á síðasta ári hefur gjaldeyririnn verið á útsölu. Gjaldeyririnn er okkar eyðslueyrir gagnvart útlöndum og við getum ekki eytt honum eins og við höfum gert. Það verður að vera jafnvægi í viðskiptum við útlönd. Það er skylda að huga vel að þessu og þegar bandaríkjadollarinn fellur og dollurum fækkar fyrir frystu vörurnar á bandaríkjamarkaði lækkar auðvitað kaupið í frystihúsunum. Það er það sem við erum að glíma við núna. Frystihúsin, þar sem lægsta kaupið er í landinu, geta ekki greitt hærra kaup vegna þess að dollurum hefur fækkað og frystiiðnaðurinn stendur mjög illa. Á öðrum sviðum kemur þetta ekki eins við. Hér hafa verið framkvæmdir á síðasta ári sem hafa verið fjármagnaðar með dollaralánum. Ýmis verslunarfyrirtæki hafa hér byggt myndarlega fyrir það á miklu hagstæðari lánum en áður. Viðskiptajöfnuðurinn verður að vera hagstæður. Þegar gengið er rangt skráð, eins og það hefur verið, hleður þetta utan á sig eins og snjóbolti og endar með því að gengið verður fellt um tugi prósenta eins og hefur verið gert áður.
Það er hins vegar með ólíkindum hvað drottinn hefur verið okkur hollur í efnahagsmálum. Á síðasta ári vorum við með einhver hagstæðustu kjör sem við höfum nokkurn tímann fengið í sögu þjóðarinnar, mikinn afla, hagstætt verð fyrir aflann og afurðir, lágt olíuverð og núna er ein búbótin fallin til okkar, að loðnulýsið er hækkandi á heimsmarkaði vegna aflabrests við Perú, að ansjósuveiðar þar hafa brugðist. Þetta hefur áhrif á þjóðarbú okkar og þetta eru þau þrjú atriði sem mest hafa áhrif. Við verðum að taka tillit til þessara hluta.
Ég held að þegar maður lítur á þetta hljóti maður að telja að það sé algert stjórnleysi í vaxtamálum og þar hafi ríkissjóður Íslands gengið á undan með slæmu fordæmi með því að spenna vextina upp á skuldabréfum. Algeng ávöxtun á verðbréfamörkuðum er á milli 11 og 15% umfram verðbólgu. Hæstv. fjmrh. hélt því fram að þetta væru sambærilegir vextir við það sem væri erlendis. Þetta er svo mikil rangfærsla að eigendur Alþfl., kratarnir á Norðurlöndum, mundu ekki trúa því. Staðreyndin er sú að algeng ávöxtun er miklu nær því að vera 5% á eðlilegum mörkuðum og aðeins yfir það.
En hafa þm. leitt hugann að því hvernig gengisútreikningur á verðbréfamarkaðnum fer fram og hver er ábyrgur fyrir því? Það er að vísu búið að tilkynna að hér eigi að flytja frv. um þessa markaði samkvæmt því sem viðskrh. hefur sagt okkur, en það er svo samt að enginn hefur verið ábyrgur hingað til fyrir því. Það eru starfsmenn verðbréfamarkaðanna sjálfir sem spá fyrir um hækkun lánskjaravísitölu og hafa sjálfdæmi um hækkun og hvað þeir taka í eigin vasa. Þegar þeir t.d. áætla í byrjun mánaðar 2,5% hækkun á mánuði á lánskjaravísitölu bréfs kemur e.t.v. í ljós að 20. sama mánaðar, þegar Seðlabankinn birtir lánskjaravísitöluna, hefur vísitalan e.t.v. aðeins hækkað um 2%. Og nú spyr ég og væri gaman að hafa hér einn ráðherra Alþfl., en þeir eru náttúrlega horfnir af þingi eins og oft áður: Hver hirðir mismuninn, þetta hálfa prósent, af hinum seldu verðbréfum frá 1. hvers mánaðar til hins 20.? Eru það verðbréfasalarnir eða hvað? Enginn atvinnurekstur getur borið þessa vexti. Og þó er ástandið verra en komið hefur fram í þeim tölum sem ég nefndi hér. Það eru ljóst að á sumum bréfum er allt upp undir 20% vextir umfram verðbólgu áætlaðir og hafa aldrei verið svo háir nokkurn tímann.
Svo er það skattlagningin sem núna er dembt yfir þjóðina og hæstv. fjmrh. taldi það sér til ágætis og ríkisstjórn að þessi skattlagning væri dugnaður ríkisstjórnarinnar. Hún er nú áætluð 20% hærri en skattlagning ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens sem var þó talin ótæk af Sjálfstfl. Og nú spyr ég: Hvar eru þeir menn núna sem stóðu hérna og gagnrýndu harðlega þá skattlagningu? Hvar eru þeir? Sumir hafa komið hér upp og sagt: Við erum bara ánægðir með þetta. Við gleðjumst yfir þessari skattlagningu. Og þó eru það 20% að raungildi hærri skattar en voru lagðir á í þeirri tíð.
Þessir skattakóngar eru ánægðir og þeir telja að fólkið í landinu hafi bara eitthvað misskilið þetta. Hvernig halda menn að fólki líði núna þegar það stendur frammi fyrir því að borga alla þessa skatta? Það hefur verið komið aftan að fólkinu. Það hefur verið stungið rýtingi í bakið á kjósendum.
Í skattabreytingunum hefur t.d. það tapast að þeir húsbyggjendur sem fengu vaxtafrádrag fá nú smávegis bætur í staðinn sem eru ekki nærri sama tala. Þeir standa frammi fyrir verulegri kjaraskerðingu og sumir fá á milli 100 og 200 þús. kr. hærri skatta út af þessu og sjá vart fram á hvernig þeir eiga að greiða með þeim peningum og þeim launum sem þeir hafa í dag. Og barnabæturnar. Það er nú ein snilldin. Það er stórkostlegt að sjá hvernig hæstv. fjmrh. hefur talað um þetta. Hann er að auglýsa að þetta komi í staðinn fyrir matarskattinn. En þetta er ekki nema brot af því sem matarskatturinn er. Svo eru allir hinir sem fá engar barnabætur og verða samt að borga matarskattinn.
Það er stórkostlegt að sjá hvernig þessir menn koma fram. Þeir vita alls ekkert hvað þeir eru að gera. Og þó eigendur Alþfl., kratarnir á Norðurlöndum, hafi gefið þeim forskriftina held ég að þeim hefði aldrei dottið þetta í hug. Jafnvel Thatcher, sem sjálfstæðismenn, sérstaklega ungir sjálfstæðismenn, hafa verið svo hrifnir af að þeir titra þegar minnst er á hana af hrifningu, hefur þrátt fyrir mikla gagnrýni af hendi krata í Bretlandi og víðar aldrei dottið í hug að leggja á matarskatt. Þar eru matvæli ekki sköttuð. Og henni er líka ljóst að það verður að vera til ódýrt húsnæði. En þeir menn sem þykjast hafa verið að túlka hennar stefnu og gerðir leggja á þennan skatt vegna þess að þeir vita ekkert hvað þeir eru að gera. Sannleikurinn er sá að þær tekjur sem koma inn af matarskattinum verða engar þegar upp verður staðið. Þær verða núll! Það eina sem gerist er að þeir sem lökust kjörin hafa munu fara verst út úr því.
Ég held að hér hafi verið komið lítillega inn á að það hafi verið reiknað út nýlega af Seðlabankanum að sparifjáreigendur hafi verið féflettir um 3 milljarða af almennum sparisjóðsbókum og innlánsreikningum á síðasta ári. Það er ekki vansalaust að það skuli ekki betra eftirlit með því að það skuli vera raunvextir á innlánum eða a.m.k. að menn fái nokkurn veginn það fjármagn óskert sem þeir hafa lagt inn.
Hér hefur verið rætt um atvinnumál, sjávarútveginn. Það er eitt mál þar sem ætti kannski að koma til umræðu. Það er sala á ferskum fiski til Efnahagsbandalagsins. Það hefur töluverð áhrif á atvinnulífið í landinu þegar á sama tíma er lagður skattur á saltfisk. Verkunin færist úr landinu. Þetta kemur niður á þeim byggðarlögum úti á landi þar sem síst skyldi. Ég hef ekki heyrt á þessum svokölluðu utanbæjarþingmönnum að þeir hafi nokkuð ígrundað hvaða afleiðingar þetta hafi. Og iðnaðurinn. Hann er í miklum vanda. Það er alltaf talað um að það verði að láta það fara eins og fara vill. Ég tel að það hafi gerst slæmir hlutir þar. Það hefur verið minnst á ullariðnaðinn. Undir forustu Sjálfstfl. var myndaður nýr einokunarhringur þar þegar Sjálfstfl. afhenti SÍS Álafoss. Ég heyrði ekki einn einasta sjálfstæðismann standa upp og mótmæla því. Nú er búið að steypa þessu í einn einokunarhring sem er algerlega gegn öllu því sem sá flokkur hefur alltaf barist fyrir. Hafa þeir varla mátt heyra minnst á SÍS nokkru sinni fyrr en núna að þeir slá höndunum saman við þá og er þá ekkert slæmt við það. Er gaman að sjá samruna SÍS og Sjálfstfl. Það var gott að þeir skyldu sameinast í ullinni að lokum.
Svo er það landbúnaðurinn. Þar er þannig ástandið að það er mjög slæmt. Þar er verið að mynda einokunarhring í framleiðslu á kjúklingum og eggjum. Það er ekki gott að á þeim tímum þegar menn vilja heldur hafa meira frelsi skuli gengið líka í þessa veru til myndunar einokunarhrings sem á að skammta neytendum kjúklinga og egg á því verði sem þeim sýnist. Ég spyr: Er þetta minnisvarði um þessa ríkisstjórn, einokunarhringar? Það verða kannski fleiri einokunarhringar þegar líður á kjörtímabilið.
Og svo skulum við ekki gleyma einu, sem hér hefur ekki verið minnst á í umræðunni, og það er blessuð flugstöðin sem utanrrh. a.m.k. virðist helst vilja vera í frekar en í þingsölum. Það er eytt þar milljörðum fram yfir og hæstv. forsrh. sagði í ræðustól fyrir áramótin, ef ég man rétt, eða rétt eftir áramótin, að hann væri tilbúinn að láta landsdóm fjalla um sín mál þar. Og nú spyr ég: Er forsrh. búinn að láta ákæra sig fyrir landsdómi eða ætlar hann ekki að standa við þau orð? Það verður gaman að sjá þegar hann ætlar að standa við að hafa veitt 850 millj. án þess að væri til stafur um það í fjárlögum og þykist ætla að sleppa með það. Og ég spyr: Ætlar hann að ákæra sjálfan sig þannig að hann geti staðið fyrir framan landsdóm og fengið úrskurð um hvort hann hafi verið að brjóta stjórnarskrána eður ei?
Það hafa líka dembst yfir þjóðina skattar svo með ólíkindum er. Fasteignagjöldin eru hærri en nokkru sinni áður og skattar, sem hafa verið lagðir á þá húskofa sem fólk er búið að eyða ævinni í að koma yfir höfuðið, eru ógnvænlegir. Menn voru að tala um Reykjavíkurborg í þessum umræðum og þann tekjuafgang sem Reykjavíkurborg hefur, en sannleikurinn er sá að ein meginástæðan fyrir því að Reykjavíkurborg stendur svo vel eru allar þær fasteignir sem eru innan borgarinnar og þeir háu skattar sem eru á þeim. Það er ekki sérstaklega vegna góðrar stjórnar á þessu bæjarfélagi. Það eru heldur eignarskattarnir, fasteignaskattarnir, sem eru nokkurs konar stóreignaskattar núna hjá launafólki, sem skapa þetta.
Og við eigum von á meiru. Við eigum von á því að tryggingafélögin hækki bifreiðatryggingar yfir 50% ef við eigum að taka mark á fréttum og þó er ekki nema 30% verðbólga. Og talsmenn þess að stærri einingar geri betri útkomu eru horfnir hér. Þeir minnast ekki á þetta. Á síðasta ári hafa tryggingafélögin fengið fleiri bifreiðir til trygginga en nokkru sinni áður þannig að þeirra rekstur ætti að vera miklu betri og það ættu að vera lægri iðgjöld en á síðasta ári. Þetta ætti að þýða hagkvæmni, en þá eru þeir að biðja um 50% hækkun. Þetta hefur auðvitað áhrif á afkomu fólksins í landinu.
Allir þeir skattar sem við í Borgarafl. höfum margmótmælt hér í umræðum eru ógnvænlegir. Ég sá það í blöðunum um daginn að einn varaþm. Sjálfstfl. hafði ekki fylgst betur með umræðum en svo að hann hélt að enginn á Alþingi hefði mótmælt þessum sköttum. En það vil ég þó segja að bæði Borgarafl. og þeir aðrir sem voru í stjórnarandstöðu mótmæltu þessum sköttum í umræðum þó af ólíkum ástæðum væri. Við í Borgarafl. erum andvígir þessari skattastefnu og munum standa fast að því að það verði linað á þeim tökum ef við eigum kost á.
Hæstv. fjmrh. kom inn á í ræðu sinni að hann hefði unnið vel að öllum þessum skattlagningum. Hann hefði unnið ljóst og leynt að því að leggja meiri skatta á fólkið. Það er alveg makalaust að líta til þess hvernig hann hefur ráðist á fólkið með þessum sköttum og ætlast svo til þess að stjórnarandstaðan þegi. (Gripið fram í: Í ræðustól?) Í ræðustól jafnvel. Hann sagði ýmislegt sem stenst ekki og eru hreint og beint rangfærslur. Hann hélt því fram að við í stjórnarandstöðunni hefðum ekki mótmælt skattlagningu fyrirtækja. Þetta er alrangt. Við í Borgarafl. mótmæltum af hörku skattlagningu fyrirtækja alveg eins og á einstaklinga og munum gera það áfram. Það er sorglegt að tekjuöflunarkerfi ríkisins eða öllu heldur skattaáþján ríkisins skuli vera slík sem er nú og hefði verið nær að ráðast á gjaldahlið ríkisins og hafa lægri tekjur, en fjárlögin hafa hækkað 50% á milli ára. Þetta eru mestu skattar sem nokkurn tíma hafa verið lagðir á þjóðina og svo ætlast þeir til þess að launþegar skrifi undir hvað sem er og það á að kenna þeim um verðbólguna. Það eru ekki launþegarnir heldur ríkisstjórnin sem hefur skapað þá verðbólgu sem er núna.
Sú fjármálastjórn sem ríkisstjórnin stendur að er alröng. Ég ætla að vona að þessi ríkisstjórn vakni einhvern næstu daga og átti sig á því að þessi fjármálastjórn er alröng. Hún getur ekki gengið í landi eins og Íslandi. Þegar hæstv. fjmrh. fór að miða sig við ríki OECD í samanburði við skatta á launum er það alrangt vegna þess að það er ekki hægt að miða við það. Hér er vægi launþega allt annað og allt aðrar forsendur sem gefast en í hinum stóru milljónaþjóðfélögum. Þetta er svo alröng staðhæfing og samanburður að það stenst aldrei. Ég vona að ríkisstjórnin muni vakna og bæta sig af því að þjóðin á það skilið að hún verði ekki kaffærð í sköttum.