04.02.1988
Sameinað þing: 44. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4317 í B-deild Alþingistíðinda. (2991)

Staðan í efnahags- og kjaramálum

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Hér í dag hafa farið fram miklar umræður um efnahags- og atvinnumál og er það að sjálfsögðu af hinu góða. Hér hafa flutt mjög góðar ræður ráðherrar, forsrh. í upphafi þegar hann svaraði málshefjanda. Í ræðu sinni kom forsrh. m.a. inn á að það steðjuðu miklir erfiðleikar að útflutningsatvinnuvegunum og ríkisstjórnin væri nú að athuga með hvaða hætti hún gæti mætt þessum vandamálum og styrkt stöðu útflutningsatvinnuveganna, þ.e. sérstaklega þeirra fyrirtækja sem þar starfa og ekki hvað síst einnig stöðu þess launafólks sem vinnur við sjávarútveg og fiskiðnað á Íslandi.

Hæstv. forsrh. gat um m.a. nokkur atriði sem ríkisstjórnin hefði til meðferðar. Ástæðulaust er að tíunda frekar allt það sem hæstv. ráðherra sagði í sinni ræðu um með hvaða hætti ríkisstjórnin hygðist bregðast við án þess að geta farið nákvæmlega út í það þar sem það er ekki tímabært vegna þess að samningar hafa ekki enn tekist á vinnumarkaðnum í heild. Það sem hæstv. ráðherra kom inn á er vissulega spor í rétta átt.

Það sem mér finnst hafa vantað nokkuð inn í umræður í dag hjá ýmsum hv. þm. er að mér finnst þeir ekki hafa gert sér nægilega grein fyrir meginatriðum þess máls sem við erum að fjalla um. Þeir hafa margir hverjir dvalist í aukaatriðum, vil ég segja. Að vísu hafa sumir farið mjög nákvæmlega í saumana á einstökum undiratriðum þess máls sem hér er til umræðu, en þeir hafa forðast það eins og heitan eld að ræða um það, sem er meginatriði málsins, með hvaða hætti hv. Alþingi eða hv. alþm. geti tryggt íslenskri þjóð að óðaverðbólga dynji ekki yfir hana.

Það er kannski til of mikils mælst að ætlast til þess af hálfu sumra þm., sem hér hafa talað, að þeir skilji og skynji með hvaða hætti verðbólga verður til og hver eru áhrif óðaverðbólgu í flóknu nútímasamfélagi. Ég ætla ekki að reyna í stuttu máli að koma með þau atriði sem máli skipta frá hagfræðilegu sjónarmiði er menn hafa í huga þegar þeir ræða um þetta, enda væri það of í lagt úr því sem komið er, en hins vegar held ég að það sé nauðsynlegt að menn geri sér grein fyrir því að öll barátta og viðleitni stuðningsmanna ríkisstjórninnar beinist að því að vernda og verja fólkið í landinu fyrir því að lenda í óðaverðbólguástandi á næstu árum.

Það er staðreynd sem allir hv. þm. viðurkenna að óðaverðbólguástand mundi koma sérstaklega hart niður á launafólki og það er margviðurkennt, bæði af sérfræðingum sem og forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar, að engum kemur það verr en láglaunafólki í verkalýðshreyfingunni eða öryrkjum og öldruðum ef óðaverðbólga geisar á Íslandi.

Þá er það atriði líka fyrir sig að gera sér grein fyrir hvaða áhrif óðaverðbólga hefur á stöðu fyrirtækja og þjóðarbúsins í heild. Óðaverðbólga þýðir í stuttu máli lakari lífskjör, eignaskerðingu og hrun atvinnuveganna. Það sem við stjórnarstuðningsmenn leggjum áherslu á er fyrst og fremst að við viljum tryggja atvinnuöryggi í landinu. Það gerum við ekki nema halda verðbólgunni niðri. Við viljum ótruflaða framleiðslu til sjávar og sveita og við viljum tryggja að útflutningur helstu sjávarafurða og annarrar vöru frá Íslandi sé stöðugur. Við leggjum áherslu á og þjóðin í heild að Íslendingar búi við öruggar gjaldeyristekjur, ekki bara af vöruútflutningi heldur einnig vegna þjónustu og annarra möguleika sem við höfum á þeim sviðum sem eru duldar tekjur. Allar truflanir, óábyrg stjórnmálastefna, mundu skaða íslensku þjóðina ómælanlega í því ástandi sem við blasir ef aðhaldsstefna ríkisstjórnarinnar verður brotin til baka. Þetta eru helstu forsendur jafngóðra lífskjara á Íslandi, þ.e. þess velferðarríkis sem við viljum allir berjast fyrir og tryggja.

Það er óvefengjanlegt að Ísland er fyrirmyndarþjóðfélag og Íslendingar eru gott fólk. Þetta er góð þjóð sem leggur áherslu á að tryggja almenna afkomu og almenna velferð. En það kostar mikla fjármuni fyrir fámenna þjóð að viðhalda og byggja upp nútímalegt heilbrigðiskerfi og tryggja öllum jafnan rétt til hjúkrunar. Það kostar einnig mikið fyrir fámenna þjóð að búa við almannatryggingakerfi og lífeyrissjóðakerfi sem tryggir öllum mannsæmandi lífeyri í ellinni. Þrátt fyrir ýmsa ágalla þess kerfis er staða aldraðra og öryrkja mun betri á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum. Þetta er viðurkennd staðreynd. Þeir sem hafa staðið að því að tryggja þetta eru m.a. hið opinbera í gegnum hið háa Alþingi með sínum ákvörðunum í sambandi við fjárlög og almannatryggingakerfið og svo hins vegar eru það forustumenn verkalýðshreyfingarinnar og þeirra sem koma og eiga aðild að atvinnulífi landsmanna.

Elli- og örorkumál á Íslandi eru í flestu til fyrirmyndar. Eru einhverjir hv. þm. að biðja um að með óábyrgri stefnu í efnahagsmálum verði öll þessi uppbygging brennd upp í báli óðaverðbólgu? Hvað um íbúðaeigendur, lántakendur? Eru hv. þm. að biðja um óábyrga stefnu í efnahags- og atvinnumálum til að gera íbúðaeigendum enn örðugra að standa í skilum og eignast sínar íbúðir? Nei, góðir þm. Orðaflaumur og sýndarmennska í sölum hins háa Alþingis tryggir ekki öryggi sjúkra og aldraðra né lífskjör láglaunafólks. Ábyrg afstaða, staðfesta og rétt framtíðarsýn um þróun mála er það sem skiptir máli fyrir fólkið í landinu. Það þýðir ekki að berja höfðinu við steininn og neita því að við Íslendingar erum sérstæð þjóð og hér býr mjög kröfuhart fólk.

Fyrirmyndarríkið Ísland kostar mikið fé. Það er kröfuhart þjóðfélag, en þeir sem byggja Ísland eru engir aukvisar. Þetta er framsækið og harðduglegt fólk sem hefur raunsætt gildismat. Þess vegna eru Íslendingar reiðubúnir að standa við gerða hluti og sækja enn frekar fram á flestum sviðum.

Við höfum þróað upp mikið og dýrt skólakerfi. Við höfum þróað og byggt upp mjög dýrt tryggingakerfi. Við höfum þróað og byggt upp mjög sterkt en dýrt heilbrigðiskerfi. Enginn hv. þm. er á móti því, svo sem fram kemur í afgreiðslu fjárlaga, að þetta sé allt tryggt og viðunandi fjármagn renni til þessara þarfa.

Þá hafa hv. þm. einnig tekið afstöðu til þess í gegnum lánsfjáráætlun að halda áfram að byggja upp þetta kröfuharða en fámenna þjóðfélag með nútímahætti. Í fyrsta lagi höfum við tekið afstöðu til þess í gegnum vegáætlun að byggja upp samgöngukerfi í stóru og harðbýlu landi sem er mjög dýrt. Það þarf mikið fjármagn til að fjármagna atvinnutæki í sjávarútvegi, fiskiðnaði, almennum iðnaði, nýtísku verslun, flugsamgöngum, hótelum o.s.frv. Það kostar mikið að byggja upp nútímalegt samfélag í stóru og harðbýlu landi, en þessi jákvæða uppbygging stenst ekki nema á Íslandi ríki jafnvægi í efnahagsmálum og íslenskir stjórnmálamenn, sérstaklega hv. alþm. séu í jafnvægi og tryggi að þetta verði ekki allt rifið með óábyrgri stefnu í stjórnmálum eða af óábyrgum aðilum vinnumarkaðarins sem kynnu að vera þar til staðar. Stjórnarflokkarnir leggja áherslu á að byggja, tryggja og efla það kerfi sem við höfum byggt upp í því velferðarríki sem við búum við. En þeir leggja ekki hvað síst áherslu á að tryggja að íslenskt atvinnulíf búi við góðar og öruggar aðstæður. Það má ekki mikið út af bregða svo að ekki fari illa.

Við skulum líta á meginkröfur stjórnarandstæðinga. Þeir krefjast í fyrsta lagi hærri ríkisútgjalda, í öðru lagi krefjast þeir meiri fjárfestinga og í þriðja lagi krefjast þeir aukinnar neyslu á öllum sviðum. En þeir segja fólkinu ekki hvað þessi yfirboð þeirra mundu kosta fólkið í landinu, bæði launamenn sem og fyrirtækin. Þeir skýra ekki frá því að þessi yfirboð um hærri ríkisútgjöld, meiri fjárfestingu og aukna neyslu munu kalla yfir þjóðina óðaverðbólgu og atvinnuleysi. Óneitanlegt er að það er erfitt hjá ýmsum, því skal ekki neitað, og það ber að leiðrétta og lagfæra kjör láglaunafólksins. Þetta geta allir stjórnmálamenn tekið undir, enda er þetta viðurkennt í íslensku þjóðfélagi og íslensk verkalýðshreyfing hefur unnið að þessu og reynt að vinna að þessu í áratugi. Þar hafa hinir mætustu menn komið við sögu og lagt mikið af mörkum í þeim efnum. Því miður hefur ekki tekist sem skyldi að tryggja að láglaunafólkið héldi sínum hlut þegar launaleiðréttingar hafa átt sér stað í íslensku þjóðfélagi og ég hef ekki enn séð þær tillögur frá stjórnarandstæðingum sem mundu tryggja það. En sú stefna stjórnleysis og óðaverðbólgu og ábyrgðarleysis, sem ýmsir en þó ekki allir stjórnarandstæðingar boða, mundi leiða mikla ógæfu yfir Íslendinga, enda kemur það fram í því sem hér hefur verið sagt af hálfu ýmissa þm. En á sama tíma sem þessir „ágætu“ stjórnarandstæðingar ýmsir kalla á stjórnleysi vill svo til að í verkalýðshreyfingunni á Íslandi og úti í atvinnulífinu eru menn sem hafa tekið ábyrga afstöðu. Ég vísa til þeirra samninga sem nýlega voru gerðir vestur á Vestfjörðum.

Það sem menn verða að gera sér grein fyrir og verða að meta réttilega er að viðurkenna að við búum núna við breyttar og verri aðstæður en voru fyrir hendi fyrir 1–2 árum. Allar ytri aðstæður eru íslensku þjóðfélagi miklu óhagstæðari en þær voru fyrir,þótt ekki sé farið lengra aftur í tímann en hálft ár. Á helstu mörkuðum hefur verðlag helstu afurða ekki breyst í erlendri mynt í neinu samræmi við þróun innlends kostnaðar. Á sl. ári munu innlendar kostnaðarhækkanir hafa orðið tvöfalt til þrefalt meiri en verðhækkanir urðu á afurðum erlendis og er þá reiknað með áhrifum neikvæðrar þróunar helsta gjaldmiðilsins, sem Íslendingar hafa sínar tekjur af í útflutningi, sem er dollarinn. Hv. stjórnarandstæðingar vita væntanlega að dollarinn bandaríski vegur hvað þyngst í gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Ég leyfi mér að spyrja suma hv. þm. sem hér hafa talað hvað mest í dag hvort þeir álíti að það hafi engin áhrif á afkomu íslensku þjóðarinnar hvernig dollarinn hefur hrunið niður í verðgildi á rúmu ári, sérstaklega gagnvart þeim gjaldmiðlum sem Íslendingar nota til vöruinnkaupa og á ég þar við sterlingspund, vestur-þýsk mörk og aðra vestræna gjaldmiðla.

Núverandi ríkisstjórn er að vinna að því að halda jafnvægi í þjóðarbúskapnum til að mæta þessari neikvæðu þróun sem stafar fyrst og fremst af ytri aðstæðum sem eru okkur gersamlega óviðráðanlegar. Ríkisstjórnin vill viðhalda því velferðarríki sem Íslendingar leggja áherslu á. Hún leggur einnig áherslu á að viðhalda fullri framleiðslu og tryggja atvinnuöryggið. Ég undirstrika þetta orð, „atvinnuöryggi“. Því miður virðist það gersamlega fara fram hjá mörgum að atvinnuöryggið getur verið í mikilli hættu við þær aðstæður sem við búum við, sérstaklega í sambandi við útflutningsatvinnuvegina.

Röskun á framleiðslustarfseminni mun kalla á atvinnuleysi og lakari lífskjör og tefla í hættu afkomu ellilífeyrisþega, öryrkja og annarra sem eiga allt sitt undir því að tekjuöflun ríkisins sé ekki trufluð í innbyrðis átökum og verkföllum.

Það var gerð skoðanakönnun fyrir nokkru í einu dagblaðanna í Reykjavík og samkvæmt þeirri könnun fór ekki á milli mála að meiri hluti Íslendinga vill ekki verkföll. Meiri hluti Íslendinga vill ekki átök á vinnumarkaðnum. Meiri hluti Íslendinga vill að samið sé á þeim nótum sem gert var á Vestfjörðum fyrir rúmri viku. Þetta þýðir raunverulega að meiri hluti íslensku þjóðarinnar vill fá starfsfrið. Fólk er reiðubúið að mæta þeim erfiðleikum sem við stjórnarsinnar og stjórnarstuðningsmenn höfum viðurkennt að eru til staðar en stjórnarandstæðingar vilja ekki enn viðurkenna. Það er krafa íslensku þjóðarinnar að hún fái að búa við öryggi og þjóðin skilur eða meiri hluti hennar að um stund verðum við að axla ákveðna kjaraskerðingu í trausti þess að stefna núv. ríkisstjórnar nái fram að ganga, en þó með þeim leiðréttingum sem nauðsynlegar eru vegna láglaunafólks.

Og síðast en ekki síst og það skal enn undirstrikað: fólkið leggur áherslu á að framleiðslustarfsemin í landinu sé ótrufluð. Það vill ekki að pólitískir tækifærissinnar eða óábyrgir aðilar tefli öllu í hættu á Íslandi. Fólkið vill frið. Það vill fá að starfa.

En það er ekkert einsdæmi og ekkert eitt mál hjá Íslendingum að við erfiðleika sé að stríða í atvinnu- og efnahagsmálum. Öll helstu viðskiptaríki Íslands eiga við mikla erfiðleika að stríða í efnahags- og atvinnumálum. Það þarf ekki að fara lengra en til Englands til að gera sér grein fyrir því hvernig ástatt er. Þar í landi eru milljónir manna atvinnulausar. Sömu sögu er að segja um Vestur-Þýskaland. Það er álitið að innan ríkja Efnahags- og samvinnustofnunar Evrópu, og þar með eru talin Kanada og Bandaríkin, séu um 14 millj. atvinnuleysingja. Þetta er mikið atvinnuleysi og þetta er mikil byrði og mikið vandamál í þessum ríkjum.

Þá er einnig viðurkennt og staðreynd að öll vestræn ríki eiga í mjög harðri samkeppni við lönd eins og t.d. Japan og jafnvel núna á síðustu árum við kommúnistaríkin, þ.e. Sovétríkin og Austur-Evrópuríkin, þar sem þau undirbjóða mjög á hinum frjálsu mörkuðum bæði vöru og þjónustu. Ísland er hluti af efnahagssvæði vestrænna ríkja. Þótt við vildum getum við ekki losað okkur undan þeim neikvæðu áhrifum sem upp koma í efnahagslífi þessara landa. Við erum svo viðskiptalega tengd þessari efnahagsheild að erfiðleikar þar koma niður á íslensku þjóðfélagi, því miður. En við getum þó gert ráðstafanir til að draga úr þyngstu höggunum og það hefur núverandi ríkisstjórn og sú sem var á undan núverandi ríkisstjórn reynt að gera og tekist í ýmsum efnum mjög vel.

Ég minni á að Íslendingar hafa ekki þurft að hafa áhyggjur af því að hér ríkti atvinnuleysi. Hér býr fólk yfirleitt ekki við skort, en þó er því miður nokkur hluti þjóðarinnar þannig staddur að það verður að leiðrétta kjör hans. Ég harma það þess vegna, því að á meðal stjórnarandstæðinga eru margir mætir hv. þm., að þeir skuli ekki gera sér betri grein fyrir raunverulegri þróun mála í heiminum í kringum okkur og hvaða áhrif það hefur á okkar stöðu og framtíðarhorfur. Stjórnarsinnar gera sér hins vegar skýra grein fyrir þessu. Þeir gera sér grein fyrir að það fylgja því miklir erfiðleikar að þurfa að standa að erfiðri og ég vil segja í ýmsu tilliti neikvæðri ákvarðanatöku sem skerðir lífskjör um sinn. En það sem skiptir máli í stjórnmálum eins og öllu öðru er að menn verða að vera heiðarlegir og segja þjóðinni sannleikann um stöðu mála hverju sinni. Að neita staðreyndum og reyna að blekkja fólk um raunverulega erfiða stöðu atvinnulífs og efnahagslífs eru ákveðin svik við íslenska þjóð, svik við fólkið í landinu. Ég trúi því ekki um hv. stjórnarandstæðinga að það sé tilgangur þeirra í þeirri umræðu sem hér hefur farið fram.

En erfiðar aðstæður krefjast staðfestu. Það er því skylda núv. ríkisstjórnar og raunar allra hv. alþm. að stuðla að því að tryggja jafnvægi í íslenskum þjóðarbúskap, tryggja fulla atvinnu og tryggja góða afkomu og lífsöryggi fólksins í landinu og leggja alveg sérstaka áherslu á að efla frjálst atvinnulíf og velferðarríki á Íslandi. Þessum markmiðum verður haldið til streitu hvað sem líður neikvæðum óábyrgum árásum ýmissa stjórnarsinna á núv. ríkisstjórn og þá stefnu sem hún stendur fyrir.