27.10.1987
Sameinað þing: 9. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
Stefnuræða forsætisráðherra
Kristín Einarsdóttir:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Við hlýddum áðan á stefnuræðu hæstv. forsrh., þá fyrstu eftir kosningar sem skiluðu fleiri konum inn á Alþingi en nokkurn tíma áður. Konur eru nú rúmlega 20% af þingheimi. Það er vissulega skref í áttina en nær þó enn allt of skammt.
En hvaða boðskap var ráðherrann að flytja konum þessa lands? Það vantaði að vísu ekki fögur orð og fyrirheit en lítið fór fyrir því hvernig ríkisstjórnin hyggst hrinda þeim í framkvæmd. Eitt fyrirheit snerist um fjölskyldustefnu með velferð barna sérstaklega í huga. Þið heyrðuð hæstv. forsrh. segja að ríkisstjórnin ætli að gera átak til að koma á jafnrétti kvenna og karla með sérstakri áherslu á launajafnrétti. Þetta eru falleg orð en aðgerðir ríkisstjórnarinnar undanfarið hafa verið í hróplegu ósamræmi við þessa yfirlýsingu. T.d. hefur ríkisstjórnin með fjmrh. í fararbroddi lagt skatt á matvæli. Það bitnar harðast á barnflestu fjölskyldunum. Við tökum líka eftir að framlag til dagvistarheimila hefur alveg gleymst í fjárlagafrv. Er þetta framkvæmd á þeirri fjölskyldustefnu sem hæstv. forsrh, er nú að tala um?
Nú boða sömu ráðherrar að ekki sé neitt svigrúm til launahækkana. Þeir ætla sér að festa láglaunastefnuna í sessi en sú óheillastefna bitnar fyrst og fremst á konum. Kvennalistinn hefur ítrekað lagt fram tillögur um skatt á hátekjur, stóreignir og eignatekjur. Á þær tillögur hefur ekki verið hlustað. Ætli slík tekjuöflun hefði ekki komið réttlátar niður en matarskatturinn? Ríkisstjórnin hefur sannarlega skrýtnar hugmyndir um það hvernig koma eigi til móts við gjörbreyttar þarfir fjölskyldna í landinu.
Sagt er að kaupmáttur atvinnutekna hafi aldrei verið meiri en nú. En hvað þýðir það? Jú, að meðaltali hafa tekjur fólks hækkað og að meðaltali hefur kaupmáttur aukist. Á þessu ári hefur hver fjögurra manna fjölskylda að meðaltali rúmar tvær milljónir króna til einkaneyslu. Það er ótrúleg tala. Ég held það væri ríkisstjórninni hollt að líta á það hve margir lenda undir þessum meðaltalstölum sem alltaf er verið að veifa. Og hverjir eru það sem fá kjarabætur? Það eru ekki konurnar sem vinna í frystihúsunum eða á barnaheimilunum eða þá kennararnir sem eru að búa börnin okkar undir framtíðina. Það eru heldur ekki konurnar sem annast sjúka og aldraða. Þeir sem mest höfðu fyrir fá enn meira en þeir sem minnst höfðu eiga enn erfiðara með að láta enda ná saman. Af hverju er hækkun hæstu launanna ekki látin ganga niður allan launastigann?
Eftir kosningar í vor lögðu kvennalistakonur áherslu á hækkun lægstu launa. Þá lögðust allir á eitt um að sannfæra okkur um að verðbólgan mundi æða af stað ef lægstu launin yrðu hækkuð. Það var sama hvort talað var við fulltrúa frá Vinnuveitendasambandinu eða verkalýðshreyfingunni. Óframkvæmanlegt, var svarið. Á flestum bæjum er því launamunurinn álitinn lögmál sem ekki er hægt að breyta.
Nú á almenningur að sýna ráðdeild og spara til að geta keypt hlutabréf. Það væri fróðlegt að vita um hvaða hópa forsrh. er að tala. Hvaða fólk er það sem hann heldur að hafi svo mikinn afgang af laununum sínum að það kaupi hlutabréf, ríkisskuldabréf, og fjárfesti síðan erlendis þegar það er búið að borga matarskattinn sinn?
Öruggt húsnæði ætti að teljast ein helsta undirstaða í velferðarþjóðfélagi. Í tíð síðustu ríkisstjórnar voru sífelldar deilur um húsnæðismál. Nú virðist það sama ætla að endurtaka sig. Í stjórnarflokkunum er hver höndin upp á móti annarri eins og heyra mátti landshorna á milli frá umræðum hér á Alþingi í gær. Brýnt er að breyta áherslum í húsnæðismálum. Félagslegt húsnæði á að hafa forgang. Fólk verður einnig að geta valið um hvort það leigir eða festir kaup á húsnæði. Við verðum að afnema þá kvöð á fólki að það sé neytt til að verja bestu árum ævi sinnar í að koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Hæstv. forsrh. kom vissulega víða við í ræðu sinni. Það vakti hins vegar athygli að umhverfismálunum gleymdi hann næstum alveg. Þó er nýlokið náttúruverndarþingi þar sem fólk var sammála um að ekki megi dragast að sameina helstu þætti umhverfismála í eitt ráðuneyti, málaflokka eins og almenna náttúruvernd, mengunarmál og skipulagsmál. Öll hin Norðurlöndin hafa stofnað sérstök umhverfisráðuneyti. Við kvennalistakonur lögðum ríka áherslu á umhverfismálin í stjórnarmyndunarviðræðunum í vor. Sú ríkisstjórn sem mynduð var tregðast hins vegar við og það getur orðið afdrifaríkt fyrir umhverfisvernd og skynsamlega nýtingu auðlinda.
Undanfarin ár og sérstaklega eftir fund leiðtoga risaveldanna í Reykjavík hafa Íslendingar fylgst með friðar- og afvopnunarmálum af enn meiri áhuga en áður. Íslendingar vilja að landið verði lýst kjarnorkuvopnalaust og telja vitfirrt vígbúnaðarkapphlaup ekki leið til friðar. Við kvennalistakonur fögnum því að svo virðist sem utanrrh. hafi verið að átta sig á þessu að undanförnu. Hann tekur nú undir ýmislegt af því sem Kvennalistinn og fleiri hafa haldið fram. Þannig er því nú slegið föstu að á Íslandi megi ekki staðsetja kjarnorkuvopn, hvorki á friðar- né ófriðartímum, og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna styður Ísland tillögur um stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar. Þessi stefnubreyting er góðra gjalda verð og vonandi bregða samstarfsflokkar í ríkisstjórn ekki fæti fyrir þessi ánægjulegu sinnaskipti. Þótt hugarfarsbreyting hafi orðið hjá utanrrh. kvað við annan tón í forsrh. hér áðan þegar hann talaði um kjarnorkuvopnalaus svæði. Hugmyndum þar að lútandi fann hann flest til foráttu.
Afstaða Íslands á alþjóðavettvangi skiptir miklu máli, en hitt er þó mikilsverðara að við stöndum þannig að málum á okkar eigin landi að við leggjum lóð á vogarskál friðar og afvopnunar. Áframhaldandi hernaðarframkvæmdir víða um land eru ekki slíkt framlag. Við bíðum því eftir stefnubreytingu utanrrh. einnig á þessu sviði.
Kvennalistakonur tóku þátt í að reyna að mynda ríkisstjórn sl. vor eftir mikinn sigur í kosningum. Það tókst ekki eins og alþjóð er kunnugt. Við vildum ekki starfa í ríkisstjórn þar sem kvennapólitísk sjónarmið voru ekki virt. Það er ekki nóg að fá fallega stóla til að sitja í og fallega mynd á forsíður dagblaðanna. Kvennalistakonur eru komnar til að hafa áhrif. Þær vilja enga sýndarmennsku. Við viljum aðra forgangsröð og aðrar áherslur. Á það hefur ekki verið hlustað. Fögur fyrirheit þeirra sem nú fara með völdin hrökkva skammt því að athafnirnar stefna í þveröfuga átt. Það er ekki endalaust hægt að fara með fólkið í landinu eins og tölur á blaði.
Góðir hlustendur. Þótt Kvennalistinn ynni góðan sigur í vor nægði hann ekki til að knýja fram þær breytingar sem við stefnum að. En sá tími kemur. Þá mun vora í samfélaginu fyrir konur og börn og um leið fyrir okkur öll.
Ég þakka áheyrnina. — Góða nótt.