08.02.1988
Sameinað þing: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4352 í B-deild Alþingistíðinda. (3008)
52. mál, mótmæli gegn stækkun kjarnorkuendurvinnslustöðvar
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju með þá samstöðu sem tekist hefur um þá till. til þál. sem hér er komin til síðari umr. frá utanrmn. Sem fyrsti flm. þessa máls vil ég þakka sérstaklega fyrir afstöðu nefndarinnar, sem ég á raunar sæti í, og þær breytingar sem aðeins eru til bóta sem gerðar hafa verið á till. í meðförum nefndarinnar.
Ég vil þakka hv. formanni nefndarinnar, Eyjólfi Konráð Jónssyni, sem hér hefur nælt fyrir nál., fyrir hans hlut að þessu máli eins og öðrum nefndarmönnum og hygg að ég mæli þar fyrir munn okkar flm. þessa máls, en það voru ásamt mér hv. þm. Kristín Einarsdóttir, Árni Gunnarsson, Júlíus Sólnes, Páll Pétursson og Guðrún Helgadóttir.
Flutningur þessarar till. er liður í því að tryggja verndun íslenskra hafsvæða gegn skaðlegri mengun. Hér er verið að taka á þeim þætti sem athygli manna og þjóða hefur beinst að öðru fremur nú upp á síðkastið, en það er hættan af völdum geislavirkrar mengunar í sjó og í lofti. En áformin um stórfellda stækkunar endurvinnslustöðvarinnar í Dounreay geta leitt til ófyrirséðra afleiðinga fyrir íslenskt umhverfi eins og fram kemur í fskj. með till., m.a. í áliti Geislavarna ríkisins, Hafrannsóknastofnunar og Siglingamálastofnunar, en þessar stofnanir ásamt Magnúsi Magnússyni prófessor skiluðu til stjórnvalda sérstakri grg. um kjarnorkuverið og endurvinnslustöðina í Dounreay í desember 1986. Ég vil leyfa mér hér að rifja upp örfá atriði sem koma fram í niðurstöðum þessara aðila, en þar segir, með leyfi forseta:
„Vegna ríkjandi hafstrauma munu geislavirk efni sem losuð verða í sjó frá stöðinni berast á hafsvæðið umhverfis Ísland, m.a. fiskislóðina milli Jan Mayen og Íslands.“
Og síðar í niðurstöðum:
„Mat á geislunaráhrifum eðlilegrar og áfallalausrar vinnslu á lífríki hafsins hér við land bendir til þess að áhrifin verði óveruleg. Engu að síður verður að telja þessi áhrif óæskileg og Íslendingum í hag að tekið yrði fyrir þessa losun í hafið.
Bygging endurvinnslustöðvar í Dounreay mun auka mengunarhættu fyrir Norður-Atlantshaf, ekki hvað síst að völdum slysa sem orðið geta bæði við flutning á geislavirkum efnum með skipum á erfiðum siglingaleiðum og vegna óhappa sem ekki er hægt að útiloka að gætu orðið í endurvinnslustöðinni. Staðsetning stöðvarinnar í Dounreay orkar mjög tvímælis. Mengun og mengunarhætta frá væntanlegri stöð í Dounreay snertir frekar hagsmuni ríkja sem hafa ekki beinan hag af vinnslunni en hagsmuni þeirra ríkja sem að byggingu stöðvarinnar munu standa.“
Þetta voru kaflar úr niðurstöðum þeirra þriggja stofnana sem skiluðu áliti til stjórnvalda í desember 1986.
Ég rakti við fyrri umræður þessa máls það sem fram hefur komið um þessi efni, bæði mótmæli og áhyggjur frá íslenskum stjórnmálamönnum og íslenskum stjórnvöldum, frá vestnorræna þingmannaráðinu og fleiri aðilum svo og umræður á vettvangi Norðurlandaráðs um þessi efni. Einnig það sem kom fram á fundi vegna Parísarsamningsins gegn losun geislavirkra efna og mengandi efna frá landstöðvum þar sem Íslendingar áttu hlut að samþykkt og voru raunar frumkvæðisaðilar um samþykkt sem gerð var á fundi sl. sumar. Þar fékkst hins vegar ekki stuðningur við tillögu frá Írum um mótmæli vegna annarrar kjarnorkuendurvinnslustöðvar í Sellafield, áður Windscale, en sú stöð hefur valdið verulegri og hættulegri mengun í Írska hafinu og hefur reyndar orðið enn rómaðri, illræmdari, eftir að ég mælti fyrir þessari tillögu þar sem upplýst var í lok síðasta árs um stórfellt kjarnorkuslys sem þar hefði orðið fyrir 30 árum síðan. Ég nefni það hér vegna þess að þær uppljóstranir, sem gerðar voru á grundvelli breskra laga um opnun upplýsinga og opinberra gagna, leiða það í ljós hvaða leynd hvílir víða yfir kjarnorkuiðnaðinum. Og það er umhugsunarefni að í 30 ár skuli í nágrannaríki okkar Bretlandi, þar sem þessi kjarnorkuendurvinnsla í Dounreay fer fram og ætlunin er að auka það mjög verulega samkvæmt áætlunum, skuli einmitt hafa verið hylmað yfir þetta mikla kjarnorkuslys, líklega annað mesta í sögunni, sem þar varð 1957.
Ég vil líka leyfa mér, herra forseti, að benda á mjög fróðlegt viðtal, sem birtist nú alveg nýverið í Morgunblaðinu 5. febr. sl., við Jóhannes Vigfússon eðlisfræðing, en hann starfar á skrifstofu kjarnorkueftirlitsstofnunar svissneska ríkisins „Hauptabteilung fur die Sicherheit der Kernanlagen“ eins og hún heitir á þýsku. Í viðtalinu dregur þessi starfsmaður og eðlisfræðingur fram hvernig reynt er að fylgjast með hágeislavirkum úrgangi frá kjarnorkuverum, en lýsir jafnframt áhyggjum sínum yfir framtíðinni hvað þetta snertir. Ég tel að þetta viðtal við Jóhannes Vigfússon sýni ásamt fjölmörgu öðru sem hefur verið að koma fram að undanförnu í hvaða stöðu kjarnorkuiðnaðurinn er um þessar mundir, hvernig mönnum er að verða það smám saman æ ljósara hvaða stórfelldur vandi tengist hinni svokölluðu friðsamlegu nýtingu kjarnorkunnar svo ekki sé minnst á hættuna af kjarnorkuvopnunum sem öllum er væntanlega ljós.
Ég vil leyfa mér, herra forseti, að grípa hér niður í viðtalið við Jóhannes Vigfússon þar sem hann segir: „Ég tel endurvinnslu brennsluefnanna vafasama.
Endurnýtingin er enn á tilraunastigi og virðist ekki borga sig. Frakkar eiga kjarnaofn sem getur brennt plútóníum en það er mjög dýrt að reka hann. Svisslendingar eru nýtnir og halda endurvinnslunni kannski þess vegna áfram. Nýr geislavirkur úrgangur myndast við endurvinnsluna og það þarf líka að losna við hann.“
„Eitt af viðfangsefnum mínum hér“, segir Jóhannes í viðtalinu, „er að rannsaka dreifingu efna með vatnsburði í graníti. Nagra [en það er fyrirtæki í Sviss] hefur lagt til að úrganginum verði endanlega komið fyrir í stálhólkum í stórri granítblokk og þétt verði að þeim með leir svo að vatn komist ekki að þeim. Það þarf að hugsa fyrir þróun jarðar þúsundir ára fram í tímann til að geta komið í veg fyrir að geislavirkt efni komist út í lífríkið. Vatn seytlar í gegnum smáar sem stórar sprungur í granítinu og vinnur á öllu með tímanum. Það mun vinna á leirnum, stálinu og loks á granítinu. Þá mun úrgangurinn blandast saman við önnur jarðefni, fara út í jarðveginn og berast upp á yfirborðið með jarðvatni. Eitt mitt aðalstarf er að reikna út hversu mikil geislavirkni verður þá á ferðinni og hvernig hún mun dreifast í jarðlögunum. Það verður eftir óralangan tíma og í rauninni vitum við ekki hvernig lífið á jörðinni verður þegar þar að kemur.“
Að síðustu leyfi ég mér að vitna hér í ummæli hans þar sem hann segir:
„Afstaða mín til kjarnorku hefur ávallt verið blandin. Ég óttast kjarnorkuslys ekki svo mjög, þrátt fyrir Tsjernóbil. Það er vitað hvaða hætta stafar af kjarnorkuverum og það er leysanlegur vandi að verjast henni, eins og t.d. er gert með því að byggja hjúpa yfir verin svo geislavirk efni berist ekki út í umhverfið þótt slys eigi sér stað. En ég hef alltaf álitið að það væri ekki fundin nein endanleg lausn á úrgangsvandanum. Og ég er enn á þeirri skoðun. Það á eftir að sannfæra mig um að staður finnist þar sem hægt er að geyma hágeislavirkan úrgang í eina til tvær milljónir ára án þess að hann komist út í umhverfið.“
Þetta er viðtal við vísindamann sem er að fylgjast með hættunni af geislavirkum úrgangi á vegum svissneska ríkisins. Ég tel það fróðlegt fyrir okkur að íhuga orð hans. Einnig þegar við erum að ræða hér um mengunarhættuna frá Dounreay. Og þó að þarna sé um að ræða hágeislavirkan úrgang en fyrst og fremst lággeislavirkan sem berast mun frá Dounreay og losa á í hafið, þá er þetta stórfellt áhyggjuefni fyrir okkur Íslendinga. Þess vegna er fyllsta ástæða til þess fyrir Alþingi að álykta um þetta mál og ýta á eftir því að stjórnvöld haldi áfram mótmælum sínum á alþjóðavettvangi gegn þessum fyrirætlunum.
Ég vil sérstaklega minna á að það eru fleiri en Bretar sem þarna eiga hlut að máli. Það eru fimm ríki í Efnahagsbandalagi Evrópu sem standa að áætlunum um stækkun endurvinnslustöðvarinnar í Dounreay. Auk Breta: Frakkland, Vestur-Þýskaland, Ítalía og Belgía. Það er því nauðsynlegt að taka á þessum málum gagnvart ríkisstjórnum þessara landa svo og gagnvart réttum aðilum innan Efnahagsbandalagsins.
Það hefur komið fram hér á Alþingi að einstakir þm. hafa vaxandi áhyggjur af geislavirkni. Þetta hefur birst okkur í fsp. og þáltill. bæði á þessu þingi og á fyrri þingum. Og það er afar þýðingarmikið að menn sameinist hér á Alþingi um þessi mál gegn aðsteðjandi vá í umhverfi okkar og það varðandi öll íslensk hafsvæði og nágrenni landsins, og taki upp samvinnu við þær þjóðir sem hlut eiga að máli og eiga sömu hagsmuna að gæta og við til þess að verjast þessum vágesti.
Ég fagna aftur þeirri samstöðu sem tekist hefur í utanrmn. um þessa till. og treysti því að hún sé einnig hér til staðar á Alþingi, efa það raunar alls ekki. Ég minni á það að náttúruverndarþing, hið sjötta í röðinni, ályktaði sérstaklega um þetta mál og með þeim viðbrögðum sem hér liggja fyrir er einnig verið að taka undir með þeim aðilum sem ætlað er að fylgjast sérstaklega með verndun íslensks umhverfis þar sem er Náttúruverndarráð, svo og þeim stofnunum eins og Geislavörnum ríkisins og mörgum fleiri sem hafa vakið athygli á þeirri hættu sem okkur er búin af geislavirkum úrgangi sem hér um ræðir.