09.02.1988
Neðri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4386 í B-deild Alþingistíðinda. (3036)
205. mál, lánskjör og ávöxtun sparifjár
Þórður Skúlason:
Herra forseti. Það er e.t.v. að bera í bakkafullan lækinn að auka enn á þessa umræðu, svo löng sem hún er nú orðin og ítarleg. En raunar er heldur tæpast hægt að sitja þegjandi hjá þegar vaxtamálin og peningamálin eru tekin til umræðu með þeim hætti sem hér er gert. Hér er það yfirlýstur stuðningsmaður hæstv. ríkisstjórnar sem kveður sér hljóðs og gagnrýnir harðlega stefnuna í vaxta- og peningamálum, stefnu sem ríkisstjórnin ber auðvitað fulla ábyrgð á og afleiðingum hennar öllum.
Það hefur raunar verið nokkuð furðulegt að heyra í mörgum stuðningsmönnum stjórnarinnar í þessari umræðu. Það á ekki bara við um hv. þm. Eggert Haukdal. Hv. þm. Árni Gunnarsson kom hér líka upp og gagnrýndi harðlega, og raunar af mikilli skynsemi, vaxta- og peningastefnu ríkisstjórnarinnar og honum var mikið niðri fyrir. Og svo er um marga fleiri stuðningsmenn stjórnarinnar sem hér hafa talað. Þannig var t.d. með síðasta hv. ræðumann,
Friðjón Þórðarson, og Guðni Ágústsson flutti hér mjög hátíðlega og skynsamlega ræðu einmitt í sama dúr rétt áðan.
Ég dreg ekki í efa að allir þessir hv. alþm. hafi rætt þessi mál af eigi minni sannfæringarkrafti á öðrum vettvangi, inni í sínum flokkum, á þingflokksfundum og við sína ráðherra. En allt kemur fyrir ekki. Ríkisstjórnin ætlar ekkert að gera. Hún bíður og vonar að trúaratriði peningahyggju og markaðspostulanna, um að háir vextir dragi um síðir úr eftirspurn eftir fjármagni, rætist. Og ríkisstjórnin virðist reiðubúin til að bíða lengi enn og hirðir ekkert um afleiðingar vaxtaokursins hvorki á hagi einstaklinga né atvinnurekstrar.
Ég vorkenni hv. þm. sem tala af skilningi um vaxta- og peningamál og átta sig fullkomlega á afleiðingum stjórnarstefnunnar í þessum efnum. Ég vorkenni þeim fyrir að þurfa að tala þessu máli við daufa og skilningssljóa ríkisstjórn sem þeir ættu að geta haft áhrif á. En ríkisstjórnin þverskallast við og tekur engum rökum. Ég vorkenni þeim líka fyrir það að þurfa að telja sig til stuðningsmanna slíkrar ríkisstjórnar. Og ég spyr hv. þm. og ég tel víst að þeir spyrji sig sjálfa slíkt hins sama: Hversu lengi geta þeir talið sig stuðningsmenn ríkisstjórnar sem þvingar fram og heldur til streitu jafnslæmri og örlagaríkri stefnu og nú er framkvæmd í vaxta- og peningamálum? Þrátt fyrir viðvaranir sinna ötulustu stuðningsmanna og þrátt fyrir neyðaróp einstaklinga og fjölskyldna sem vaxtastefnan er að sliga og þrátt fyrir aðvaranir atvinnurekstrarins sem er við það að stöðvast víða um landið vegna þess að hann stendur ekki undir okurvöxtunum. Það er frjálshyggjan sem er leiðarljós ríkisstjórnarinnar í þessum efnum eins og fleirum. Oftrúin á peningana og fjármagnið er allsráðandi og trúaratriðið að vextir skuli vera frjálsir er það sem hæstv. ríkisstjórn einblínir á. Engin verðmæti í þjóðfélaginu eru tryggð með sama hætti og peningarnir. Ekki fasteignir, ekki atvinnutæki, ekki nokkur skapaður hræranlegur hlutur.
Fyrr en varir eru öll áhvílandi lán sem tekin eru vegna húsbyggingar orðin hærri en nemur endursöluverði eignarinnar. Húsbyggjandinn hefur tapað öllu því fé sem hann lagði í bygginguna. Og sé hann svo óheppinn að hafa byggt hús úti á landi er hann trúlega bundinn þar átthagafjötrum fyrir lífstíð við óseljanlega og verðlausa eign. Vextir, afborganir og áhvílandi lán á þeirri verðlitlu eign hækka þó jafnt og þétt fyrir áhrif stefnu stjórnarinnar. En átthagafjötrar af þessu tagi halda ekki til lengdar. Reynslan er önnur.
Hávaxtastefnan og fjármagnsmarkaðirnir soga til sín meira fé af landsbyggðinni en áður eru nokkur dæmi um og fólkið fylgir á eftir. Þannig er hávaxtastefnan eigi lítill þáttur í þeirri byggðaröskun sem nú er meiri og hraðari en nokkru sinni fyrr. Fjármagnstilfærsla af þessu tagi frá landsbyggðinni og hingað á þetta svæði er langtum meiri en menn almennt gera sér grein fyrir. Hún er óhugnanlega mikil um þessar mundir. Og nú bætist fjármagn lífeyrissjóðanna við sem nú er gert að fjármagna Byggingarsjóð ríkisins á sama tíma og einstaklingar eru undantekningarlítið hættir að þora að byggja úti á landi.
Vextir á Íslandi eru sennilega þeir hæstu í heiminum. Á einu ári hafa þeir hækkað um ein 100% og á hálfu ári yfir 60%. Mismunur útláns- og innlánsvaxta er geigvænlegur hjá bönkunum og hann er auðvitað enn þá meiri á fjármagnsmörkuðunum. Er nokkur furða þó bankastarfsemin og fjármagnsmarkaðirnir í landinu þenjist út svo arðvænleg sem slík starfsemi virðist nú? Gróði bankanna hlýtur að vera gífurlegur og gróði þeirra sem ávaxta fjármuni sína á gráa fjármagnsmarkaðinum er enn þá meiri. Bilið milli þeirra annars vegar sem skulda peninga og hinna sem eiga peninga og ávaxta þá á fjármagnsmörkuðunum er orðið að hyldýpisgjá. Vaxtaokrið er að eyðileggja líf fjölda fólks í þjóðfélaginu. Á sama tíma raka fjármagnseigendurnir til sín ómældum gróða. Fjármagnseigendurnir eru sérstakir skjólstæðingar þessarar ríkisstjórnar og eignatilfærsla til þeirra er meiri nú en nokkru sinni fyrr. Það er nánast ógeðslegt til þess að vita hvernig þessi stefna gerir þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari.
Í dag þykja það ekki sérlega háir vextir sem tvöfalda höfuðstól skuldar á sjö árum. Það munu vera nálega 9% ársvextir eða liðlega það sem gefa þá ársávöxtun. Húsaleiga hér á höfuðborgarsvæðinu er há en ég þykist vita að það þætti okurleiga ef ég leigði einhverjum hv. þingdeildarmanni hús eða íbúð eða einhverjum öðrum sem eftir sjö ár skilaði þessu sama húsi eða þessari sömu íbúð til baka í sama ásigkomulagi og á sama verðgildi og það var í við upphaf leigutímans og afgjaldið eða leigugjaldið fyrir eignina væri annað nákvæmlega eins hús eftir aðeins sjö ár.
En hvernig ætli standi á því að þensla og eftirspurn eftir fjármagni minnkar ekki við þessa háu vexti? Hvers vegna rætist ekki spá og fyrirheit fjármálaspekúlantanna að þessu leyti? Svarið er einfalt: Það er svo gríðarlega margt annað sem hefur áhrif á eftirspurn eftir peningum, m.a. efnahagsmálaumræða eins og hún hefur birst okkur að undanförnu. „Róm brennur“, sagði hæstv. utanrrh. og „það verður að gera eitthvað í efnahagsmálunum“, segja margir talsmenn stjórnarflokkanna úti um allt land.
Ýmsir aðilar í þjóðfélaginu halda því fram að gengið sé rangt skráð og hafi verið lengi, að gengisfelling sé fram undan, gengisaðlögun eða eitthvað slíkt. Slík umræða leiðir ekki til sparnaðar eða minnkandi eftirspurnar eftir fjármagni. Þvert á móti. Kaupahéðnar keppast við að flytja inn vörur og fólk hamstrar og fjárfestir án þess að spyrja um vexti. Þannig eru það ekki bara vextirnir sem ráða eftirspurninni eftir fjármagninu. Og auðvitað auka háir vextir á þensluna og verðbólguna hvað sem allir hagspekingar segja því það er verslunin og þjónustan hér syðra sem veltir þessum vöxtum út í verðlagið.
En atvinnureksturinn á landsbyggðinni, framleiðslugreinarnar þar, þær þola ekki þessa háu vexti lengur. Það hefði verið gagnlegri aðgerð til stuðnings ullariðnaði, sem nú á í alvarlegum erfiðleikum, ef vextir hefðu lækkað heldur en að lækka aðstöðugjöld um brot úr prósenti. Þessi fyrirtæki eru með mikið birgðahald, hæga veltu og mörg hver verulega skuldug. Rekstrarafkoma þeirra er mjög slæm og hangir víða á bláþræði. Í fjölda tilvika er þessi erfiða staða atvinnulífsins úti á landi nú viðfangsefni sveitarfélaganna og kreppa fyrirtækjanna til meðferðar hjá sveitarfélögunum með einum eða öðrum hætti. Skuldir fyrirtækjanna við sveitarfélögin hlaðast upp. Þau biðja um niðurfellingu, afskriftir og skuldbreytingar og nýtt og aukið hlutafé frá sveitarfélögunum. Afleiðingin er erfið fjárhagsstaða sveitarfélaganna og skuldasöfnun.
Þannig bitnar vaxtaokrið á fjölmörgum sveitarfélögum úti um land og er ein ástæða þess að mörg þeirra ná ekki endum saman í rekstri við gerð fjárhagsáætlunar fyrir þetta nýbyrjaða ár. Vegna erfiðrar rekstrarstöðu og þátttöku í atvinnulífinu með einum eða öðrum hætti á undanförnum árum er fjármagnskostnaðurinn að sliga fjölmörg sveitarfélög á landsbyggðinni. Hér er ástandið auðvitað allt annað eins og hæstv. ráðherrar eru iðnir við að benda á. Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar virðist þeim mun betri sem sveitarfélög úti á landi eru í meiri erfiðleikum. Ástæðan er einföld: Höfuðborgin græðir á þenslunni í peninga- og milliliðastarfseminni, versluninni og bönkunum. Þannig var t.d. bent á það á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga í nóvember sl. að sökum stóraukins innflutnings á bílum mundi verða veruleg hækkun á aðstöðugjöldum sveitarfélaga í landinu. En eina sveitarfélagið sem nýtur þessarar hækkunar vegna aukins bílainnflutnings er auðvitað Reykjavíkurborg. Hér eru atvinnumálin og erfið staða fyrirtækjanna ekki aðalviðfangsefni borgaryfirvalda. Hér er vandamálið að velja fjárfestingarverkefni og ná um þau sæmilegu samkomulagi.
Þannig eykur hávaxtastefnan á vanda og erfiðleika landsbyggðarinnar og veldur aukinni byggðaröskun. Þannig eykur hávaxtastefnan á vanda framleiðslu- og útflutningsgreinanna sem nú eiga í verulegum erfiðleikum og gerir þeim erfiðara um vik að greiða mannsæmandi laun. Og þannig eykur hávaxtastefnan misrétti og óréttlæti í þjóðfélaginu og leiðir til meiri auðsöfnunar á færri hendur en áður eru dæmi um.
Sú tillaga sem hér liggur fyrir hefur gefið gott tilefni til almennrar umræðu um vaxta- og peningamál og stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Þetta hafa þm. notað sér hér óspart. Þessi tillöguflutningur er því jákvæður og af hinu góða og ber að þakka flm. frumkvæðið.
Mitt álit er það að ríkisstjórnin ætti nú þegar að taka vaxta- og peningamálin beint í sínar hendur og bjarga því sem bjargað verður áður en markaðs- og peningahyggjan leiðir til óbærilegrar ógæfu í þjóðfélaginu. Það er ljóst af þessari umræðu að ýmsum hæstv. stuðningsmönnum þessarar ríkisstjórnar finnst nú kominn tími til að láta af tilraunum með að sanna frjálshyggju- og markaðskenningar í íslensku efnahagslífi — og var svo sannarlega kominn tími til.