09.02.1988
Neðri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4390 í B-deild Alþingistíðinda. (3037)

205. mál, lánskjör og ávöxtun sparifjár

Guðmundur G. Þórarinsson:

Herra forseti. Vaxtamál og fjármagnskostnaður hafa mjög verið til umræðu í íslensku þjóðfélagi að undanförnu. Ég skil þess vegna mjög vel þá hugsun sem að baki flutnings þessa frv. liggur. Ég er hins vegar ósammála þeirri niðurstöðu sem flm. kemst að og vil gera grein fyrir því í örfáum orðum.

Ég held að lagasetning í þessum mæli nái aldrei að stjórna vöxtum á Íslandi úr því sem komið er. Það kann að vera að það hafi verið hægt hér áður fyrr en nú verða vextir á Íslandi ekki ákveðnir með lagaboði. Fjármagnsmarkaður hefur þróast í margar áttir. Ég held að skrefið verði ekki stigið til baka með þá þróun. Þau lög sem þetta frv. miðar að mundu eingöngu ná til hluta þess lánsfjármarkaðar sem nú er í landinu. Afleiðing laganna yrði því eingöngu sú að þau mundu veikja bankakerfið mjög í samkeppni við aðra hluta lánsfjármarkaðarins. Þau mundu vafalaust draga úr sparifjármyndun innan bankakerfisins og ef ég skil þetta frv. rétt þar sem talað er um nafnvexti, sambærilega og í löndum í kringum okkur, þá værum við væntanlega að tala um talsvert neikvæða raunvexti.

Ég held þess vegna að sá tími sé liðinn að við getum stýrt vöxtum með lagaboði á þennan hátt. Ég held að þetta mundi aldrei ná nema til hluta markaðarins. Verðbréfamarkaðurinn sem er að verða stærri og stærri hluti af þessum lánsfjármarkaði, þar sem verðbréfin ganga með afföllum og raunvextirnir ákvarðast endanlega með upphæð affallanna, mundi blómstra áfram. Ég hef ekki trú á að menn næðu til þess hluta markaðarins með þessum lögum.

Ég held þess vegna að við verðum að gefa þessum lánsfjármarkaði færi á að þróast eftir lögmálunum um framboð og eftirspurn. Gallinn við það er hins vegar sá að þessi markaður okkar hér er lokaður. Hann lýtur ekki sömu lögmálum og framboð og eftirspurn með aðra vöru og þjónustu á íslenskum markaði þar sem vörur verða þá að keppa við innflutning erlendis frá.

Ég held að ekki takist að ná vöxtunum niður nema annars vegar með því að auka framboðið og hins vegar með því að draga úr eftirspurn. E.t.v. má draga úr eftirspurninni með því að draga úr þeirri miklu lántöku sem ríkið er með á þessum markaði, rúmlega 12 milljarða kr. Það mundi létta mjög á markaðnum ef ríkið gæti dregið úr sinni lántöku á þessum markaði.

Annað atriði sem ég hef hugsað meira og meira um á undanförnum mánuðum er innflutningur vöru til Íslands. Eins og menn vita tíðkast það hér að innflytjandi vöru fær ekki að leysa hana út fyrr en hann hefur greitt hana, nema í einhverjum mæli þær vörur sem eru á sérstökum lista. Hér er um að ræða alveg sérstakt fyrirkomulag á Íslandi sem ég þekki ekki í neinu öðru landi, þ.e. að íslenskir bankar eða stjórnvöld innheimta fyrir erlenda söluaðila fjármuni og það er ekki hægt að ná vörunni inn í landið fyrr en greitt hefur verið. Við flytjum hins vegar vörur út til ýmissa landa. Ég veit ekki um neitt slíkt tilvik þar sem við getum fengið erlend stjórnvöld til að innheimta það fyrir okkur. Sjálfur stend ég dálítið að því að flytja út lax frá fiskeldisstöð og hef flutt hann út til nokkurra landa og ég held að mér sé ómögulegt að fá erlend stjórnvöld til að innheimta fyrir mig verðgildi vörunnar.

Á Íslandi er það hins vegar svo að ef Jón Jónsson á Íslandi kaupir vöru frá einhverjum Jensen í Danmörku taka íslensk stjórnvöld að sér að innheimta það fyrir Jensen þannig að Jón Jónsson fær ekki vöruna fyrr en hann hefur greitt Jensen. Þetta er mjög sérstakt fyrirkomulag og eykur mjög þrýstinginn á lánsfjármarkaðinum vegna þess að stór hluti af viðskiptum bankanna eru einmitt þessir víxlar, vörukaupavíxlar og annað slíkt sem þarna gengur í gegn.

Ég tel að þetta sé úrelt fyrirkomulag og hélt reyndar að þegar bankastimplunin var afnumin hér á landi með lögum hefði þetta fyrirkomulag fallið. Ég held að breyting á þessu mundi ekki valda þenslu. Vöruframboðið er hér til staðar, en hins vegar mundum við fella niður eldgamla og óeðlilega hugsun með því að falla frá þessu. Ef þessum lögum væri breytt mundi afléttast mikill þrýstingur á lánsfjármarkaðinum. Það er enginn vafi um það.

Ég er síðan þeirrar skoðunar að innlendir framleiðendur eigi að eiga möguleika á því að taka lánin þar sem þau eru ódýrust. Fjármagnskostnaður er óeðlilega mikill á Íslandi vegna þess að markaðurinn er lokaður. Íslenskir framleiðendur sem flytja á markað erlendis verða að keppa um verðin eins og þau eru þar. Þessi framleiðsluþáttur er óeðlilega hár á Íslandi. Við hljótum að eiga rétt á að fá að taka lánin þar sem þau eru ódýrust, ella getum við ekki keppt. Það kann að vera að eðlilegt sé, og það þarf að skoða, að erlendir bankar fái heimild til að reka sína starfsemi hér og bæta þá úr þessari gífurlegu eftirspurn sem hér er eftir lánsfé.

Ég geri mér grein fyrir að það kunni að vera margir sem reki upp ramakvein þegar þeir heyra það og segi: Á nú að fara að auka á skuldirnar og á að eyða gjaldeyrinum á þennan hátt? En ég segi fyrir mig að ég sé ekki mikinn mun á því fyrir framleiðanda hér hvort hann skuldar Landsbankanum eða City Bank. Í báðum tilvikum verður að leggja fram nauðsynlegar tryggingar og þegar menn koma að eyðslu gjaldeyrisins er ekki nema sjálfsagt að fá gjaldeyri til að flytja inn 16–20 þús. bíla eða hvaða munaðarvöru sem mönnum dettur í hug vegna þess að innflutningur er frjáls hér. Vilji menn flytja eitthvað inn, hvort sem menn telja á því þörf eða ekki, fá menn til þess gjaldeyri vegna þess að við lifum í frjálsu landi við frjálsan innflutning. Ef við hins vegar viljum fá erlent lán til að framleiða lax til að mynda eða ísfisk eða eitthvað slíkt getur orðið erfiðara um vik og þá telja stjórnvöld sjálfsagt að leggja sérstök gjöld á þann gjaldeyri sem tekinn yrði að láni í því skyni. Ég held að þarna hafi menn ekki áttað sig á því að standa í takt við tímann og ég held að þessu verði að breyta. Með því að opna þennan markað mundu menn lækka vextina vegna þess að framboðið mundi aukast. Reyndar hefur hann kannski verið opinn að hluta vegna þess að erlendir bankar eiga verulegan hluta hér í fjármagnsleigum og hafa veitt erlendu lánsfé inn í gegnum þessar fjármagnsleigur og rentað það síðan í viðskiptum hér á lokuðum markaði á þann hátt að talið er að þeir geti hvergi nokkurs staðar í heiminum fengið aðra eins ávöxtun á sínu fé. Mér finnst þess vegna að þeir sem tala um frjálst framboð og frjálsa eftirspurn á lánsfjármarkaðinum hafi að hluta rétt fyrir sér en að hluta rangt vegna þess að markaðurinn er lokaður og þar af leiðandi getur maður a.m.k. sagt að þær takmarkanir geri markaðinn í þessu tilviki mjög óeðlilegan.

Að lokum þetta. Lánskjaravísitalan: Ég hef lýst þeirri skoðun minni bæði í ræðu og riti að ég telji að það verði að endurskoða lánskjaravísitöluna. Ef menn ætla að nota hana sem mælikvarða verða menn að endurskoða hana. Lánskjaravísitalan tekur eingöngu mið af kostnaði og kostnaðarhækkunum. Hún tekur ekkert tillit til tekjubreytinga eða tekjuþróunar. Það er mjög óeðlilegt. Ef menn eru þeirrar skoðunar að laun geti alls ekki fylgt kostnaðarhækkunum í þessu þjóðfélagi held ég að menn hljóti að sjá að eigendur fjár geti ekki reiknað með því að þeirra tekjur fylgi alfarið kostnaðarhækkunum. Ef laun geta ekki gert það, ef menn eru þeirrar skoðunar að ekkert megi fylgja kostnaðarhækkunum í þessu þjóðfélagi, geta ekki fjárskuldbindingar gert það. Ég er í raun þeirrar skoðunar að lánskjaravísitölubinding á styttri lánum sé beinlínis hættuleg. Við sjáum það best á því sem er að gerast í okkar þjóðfélagi núna, í fastgengisstefnu, þegar munur lánskjaravísitölu og meðalgengis verður svo gífurlegur sem raun ber vitni núna að þeir sem taka lán og lenda á þessum mikla öldutoppi sem þarna kemur, þar til breyting verður á, bíða af því mikið tjón. Það má segja að á lengri fjárskuldbindingum megi gera ráð fyrir að þessar sveiflur jafnist meira eða minna út og vegi miklu, miklu minna og því kæmi vel til greina að afnema lánskjaravísitölu á styttri skuldbindingum svo að misgengi kostnaðar og tekna geti ekki vegið svo gífurlega þungt í örlögum þeirra sem í hlut eiga.

Ég tel þess vegna fyllilega tímabært að taka til athugunar á hvern hátt sé unnt að endurskoða lánskjaravísitöluna og í rauninni nauðsynlegt að gera það. Það er engan veginn einfalt mál, en ég held að það sé mjög tímabært.

Í öðru lagi. Leiðin út úr þessu vaxtamáli og deilunni um háan fjármagnskostnað er að opna markaðinn. Ég tel að það séu í rauninni eingöngu leifar af gamalli haftastefnu að gera það ekki.