11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4435 í B-deild Alþingistíðinda. (3060)

182. mál, strjálbýlisátak Evrópuráðsins

Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir):

Ég fagna því að til stendur að taka betur á þessum málum, en lýsi um leið undrun minni á því að hugmyndaflug stjórnvalda skyldi ekki ná lengra en svo að skipa launalausa nefnd sem hefur tekið ár í að gera upp hug sinn um það hvort ástæða sé til þátttöku af Íslands hálfu því ég tel fulla ástæðu til að taka þátt, ekki síst þegar slíkt tilefni sem þetta gefst. Ekki veitir okkur af ef við viljum viðhalda þeirri menningu sem við eigum rætur okkar að rekja til.

Í augum margra er Frakkland vagga menningarinnar og þaðan hafa okkur í gegnum tíðina borist margir straumar nýrra hugmynda. Frakkar gera sér grein fyrir því að menningararf sinn rekja þeir beint til bændasamfélagsins og þeir reka því öfluga byggðastefnu sem byggir á því að finna hið sérstæða í samræmi við hefðir hvers staðar fyrir sig.

Strjálbýlið er mjög háð efnahagsástandi hverju sinni og stefnu ríkisstjórnar í landbúnaðarmálum. Í öllum okkar nágrannalöndum hefur þróun byggðar orðið svipuð og hér, fólki fækkar vegna samdráttar í landbúnaði. Nágrannar okkar á Norðurlöndum hafa svo sannarlega fært sér strjálbýlisátakið í nyt til þess að miðla reynslu og hagnýtum hugmyndum með stuðningi yfirvalda.

Í flestum löndum Evrópu hafa yfirvöld styrkt átakið með ýmsu móti. Á Ítalíu, Frakklandi og Skotlandi hefur fólk verið hvatt með fjárstuðningi t.d. til kaupa á tækjabúnaði í léttum iðnaði, fullvinnslu afurða og til eflingar ferðaþjónustu. Á veggspjaldi því sem ég minntist á áðan segir, með leyfi forseta:

„Öll höfum við ánægju af því að dvelja uppi í sveit. Hversu oft höfum við þó hugleitt hvernig lífið í dreifbýlinu er. Ást á náttúrunni nægir þó hvorki til að tryggja byggðaþróun né bæta lífsskilyrðin í dreifbýlinu. Þar þarf fleira að koma til. Okkur er því nauðsynlegt að þekkja vandamál hinna dreifðu byggða og vinna að lausn þeirra.“

Herra forseti. Lykillinn er að styrkja efnahag svæða sem vegna einhæfs atvinnulífs hafa veikt og jafnvægislaust efnahagslíf, en jafnframt að tryggja milda aðlögun á svæðum sem líða fyrir örar breytingar. Því vil ég nota tækifærið hér og skora á hæstv. ríkisstjórn að gaumgæfa vel allar tillögur sem fram eru bornar hér á hinu háa Alþingi sem mega verða til hagsbóta fyrir strjálbýlið.