11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4465 í B-deild Alþingistíðinda. (3090)
249. mál, húsnæðismál á landsbyggðinni
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda að taka þetta þarfa mál upp. Við þyrftum að sjálfsögðu miklu lengri tíma til að ræða það eins og vert væri og skylt því hér er um að ræða einhvern stærsta vanda landsbyggðarinnar eins og hann kemur mér fyrir sjónir.
Ég vil vegna þeirrar umræðu sem hér hefur orðið um kaupleiguíbúðir í þessu sambandi sérstaklega segja að út af fyrir sig er sá kostur góðra gjalda verður og ég veit að margir sveitarstjórnarmenn horfa til hans sem hluta af úrlausn í þessum efnum, en í mínum huga kemur ekkert í staðinn fyrir að einstaklingar geti úti á landsbyggðinni eins og annars staðar byggt og átt sitt húsnæði því það er sú kjölfesta í hverri byggð sem best dugar. Það ástand sem ríkir í dag er óviðunandi, ber feigðina með sér eins og nýframkomnar upplýsingar um hlutföll í þessum efnum benda til.
Ég segi að þó að það sé nauðsynlegt að byggja íbúðarhúsnæði í félagslegri eigu upp að vissu marki úti á landi eins og annars staðar getur líka verið jafnhættulegt sjálfri byggðinni að gera hlutfall þess húsnæðis of hátt á stöðunum. Með því móti breytast þeir í raun og veru í verstöð þar sem enginn á þær rætur sem fylgja því að eiga sitt húsnæði á staðnum.
Ég bið menn því að íhuga að ekkert getur leyst þennan vanda nema ráðist sé á rætur meinsins og þar eru húsnæðismálin stór hluti af.