11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4468 í B-deild Alþingistíðinda. (3094)
250. mál, félagslegt íbúðarhúsnæði
Fyrirspyrjandi (Þórður Skúlason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör við fsp. Það er eins og fram hefur komið fjölmargt sem rekur á eftir því að heildarendurskoðun laganna um félagslega íbúðakerfið eigi sér stað og það sem allra fyrst. Ég tel að það sé mjög brýnt að sveitarfélögin fái beina aðild að slíkri endurskoðun vegna þess að þetta er mál sem varðar þau ákaflega miklu.
Ég tel jafnframt að það sé nauðsynlegt að gæta þess við endurskoðun og allar þær hugmyndir sem uppi eru í sambandi við útvíkkað kerfið og jafnvel taka inn í það kaupleiguíbúðir og fleira þess háttar að þessar nýju hugmyndir dragi ekki fé frá byggingu verkamannabústaða svo mikilvægur þáttur sem bygging verkamannabústaða er í þessu kerfi og svo mikilvægur sem sá þáttur er bæði fyrir lágtekjufólk og eins fyrir íbúðabyggingar t.d. úti á landi. Ég tel þess vegna mjög nauðsynlegt að Byggingarsjóður verkamanna verði mikið frekar efldur en hitt.
Ég tel hins vegar líka að það sé mjög af hinu góða ef sveitarfélögin hafa meira val um hvers konar íbúðir eru byggðar í þessu kerfi, hvort það eru leiguíbúðir eða verkamannabústaðir. Ég tel að það eigi að vera meiri sveigjanleiki í þessu kerfi þannig að þó að íbúðir séu byggðar eftir því úti á landi t.d. sé eignarhald þeirra ekki eingöngu bundið við þá sem lægst hafa launin vegna þess að sveitarfélög eru tíðum í vanda með að útvega húsnæði til þeirra sem hærri laun hafa, en sveitarfélögin þurfa að fá slíkt fólk til starfa úti á landi.
Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að athuga allan fjármögnunarþátt sveitarfélaganna mjög vel í þessu sambandi og ekki síst kaupskylduna, einkum þar sem endursöluverðið og byggingarkostnaðurinn er mjög ósambærilegt. Ég er að því leyti til óánægður með svar ráðherrans þar sem mér skildist að hann mundi ekki hugsa sér að endurskoða það ákvæði.
Mig langar aðeins að nefna að í sambandi við Byggingarsjóð verkamanna og greiðslur sveitarfélaganna í sambandi við viðbótarlán við endursölu fara ekki alltaf saman hagsmunir þeirra sem eiga íbúðirnar og sveitarstjórnanna vegna þess að það eru hagsmunir þeirra sem eiga íbúðirnar að íbúðirnar séu sem hæst verðlagðar en sveitarsjóðanna að endursöluverðið sé lágt vegna þess að það er í hlutfalli við það sem sveitarfélögin greiða sínar greiðslur til Byggingarsjóðs verkamanna. Þær eru í hlutfalli við endursöluverðið.
En ég legg áherslu á að eftir því sem hlutfall félagslegra íbúða í sveitarfélögunum vex eftir því getur kaupskylda sveitarfélaganna riðið fjárhag hinna minni sveitarfélaga algerlega að fullu.