11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4470 í B-deild Alþingistíðinda. (3096)

251. mál, aðstoð við riðuveikisvæði

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Herra forseti. Hv. 2. þm. Austurl. hefur beint til mín fsp. í þremur liðum.

„1. Hvaða ráðstafanir hefur landbrn. gert til að leiða í ljós hvernig búskapur muni þróast á svæðum þar sem fé hefur verið skorið niður vegna riðuveiki?"

Gengið er út frá því að bændur geti hafið sauðfjárbúskap að nýju að loknum fjárleysistímanum þar sem þeir halda fullvirðisrétti sínum óskertum meðan á fjárleysi stendur eins og um fulla framleiðslu hefði verið að ræða. Hins vegar er misjafnt hvort og í hve miklum mæli bændur hafa tekið fé að nýju þegar samningstímanum lýkur þó að engin fyrirmæli hafi að sjálfsögðu verið gefin um slíkt. Það er háð ýmsum aðstæðum sem geta breyst eftir að niðurskurður hefur farið fram og því erfitt fyrir menn þá að fullyrða alltaf hver framvindan verður. Það er sífellt að koma í ljós.

Á þeim búnaðarsambandssvæðum þar sem búrekstrarkönnun hefur farið fram liggja fyrir upplýsingar um vilja manna á þeim tíma sem hún var gerð, en jafnvel þó ekki sé langt um liðið er af fyrrgreindum ástæðum erfitt að meta hversu áreiðanlegar heimildir um raunverulega þróun þar er að finna.

Í öðru lagi er um að ræða sérstaka ráðgjöf fyrir bændur á þessum svæðum. Sem kunnugt er er ráðgjöf til bænda í höndum leiðbeiningarþjónustu bændasamtakanna. Búnaðarfélag Íslands er með ráðunauta sem eru sérfræðingar í öllum okkar búgreinum og þar að auki eru hin einstöku búnaðarsambönd síðan með ráðunautaþjónustu. Bændur leita að sjálfsögðu til þessara ráðunauta sinna í þeim mæli sem þeir sjálfir æskja og telja sér hag af, en landbrn. hefur hvatt bændur mjög til þess að nýta þá ráðgjöf eins og frekast er kostur.

„3. Mega sauðfjárbændur á riðuveikisvæðum, sem bæta þurfa aðstöðu á jörðum sínum áður en búskapur er hafinn á ný, eiga von á fjárhagslegri aðstoð?"

Það hefur komið í ljós að margir bændur hafa valið þá leið að byrja á nýrri atvinnugrein í staðinn fyrir eða samhliða sauðfjárrækt eftir niðurskurð. Þar má nefna nýtingu hlunninda, fiskeldi á einstökum bújörðum sem hefur þróast í að verða verkefni fyrir fleiri en eina fjölskyldu, ferðaþjónustu, loðdýrarækt o.fl. Þeir bændur sem valið hafa þennan kost hafa fengið stuðning í ýmsu formi, enda er í samningum sem gerðir eru við bændur varðandi niðurskurð vegna riðu og bætur af þeim sökum sérstaklega tekið fram að þeir samningsaðilar sem kjósa þriggja ára fjárleysi eigi kost á framlagi til búháttabreytinga þegar að fjárskipta- og leigusamningi gerðum. Þannig er fullur skilningur stjórnvalda á því að greiða fyrir búháttabreytingum á riðujörðum hjá þeim bændum sem þess óska, en ákvörðunin verður að sjálfsögðu að vera bændanna sjálfra. Bændum eru veittar leiðbeiningar og aðstoð til sótthreinsunar á húsum sínum, fjárhúsunum, en ekki eru veitt framlög til beinnar endurnýjunar á þeim. Hins vegar má minna á að Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur á sínum vegum lánaflokk, hin svonefndu hagræðingarlán, sem ætluð eru til breytinga á húsum þegar farið er út í nýjar búgreinar eða varanlegar endurbætur. Afstöðu til lánveitinga af þessu tagi tekur stofnlánadeildin eftir mat byggingafræðinga sinna á þeim byggingakostum sem vænlegastir eru á hverri jörð.