11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4473 í B-deild Alþingistíðinda. (3100)
253. mál, vörugjald á búrnet til loðdýraræktar
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Við ræddum hér fyrir nokkru, fáum vikum, frv. til l. um tollabreytingar og breytingar á vörugjöldum. Síðan það frv. varð að lögum hefur komið í ljós að eftir standa gjöld sem ég tel vera óeðlileg. Ég hef því leyft mér á þskj. 549 að bera fram svofellda fsp. til hæstv. fjmrh. um vörugjald á búrnet til loðdýraræktar:
„1. Hvað veldur því að lagt hefur verið 17,5% vörugjald á búrnet til loðdýraræktar?
2. Er að vænta tillagna frá ríkisstjórninni um að fella þessa gjaldtöku niður?"
Hér er um að ræða álagningu sem ég tel vera með öllu óeðlilega á útflutningsstarfsemi, þar sem er loðdýraræktin og skinnaafurðir. Það gengur ekki að mínu mati að ætla að fara að leggja þar á íþyngjandi gjöld eins og vörugjald, enda hygg ég að þarna hafi verið um mistök að ræða. Það kemur út af fyrir sig ekki á óvart að slíkt hafi gerst með þeim hraða sem þessi mál voru keyrð fram á hv. Alþingi á sínum tíma og þetta er kannski aðeins eitt dæmi af fleirum sem eiga eftir að koma í ljós og leiðréttinga er þörf.
Ég vænti þess að hæstv. fjmrh. hafi tekið eftir þessu máli og það sé vilji til að breyta lögunum að þessu leyti í staðinn fyrir að taka upp skriffinnsku sem er íþyngjandi fyrir þá aðila sem í hlut eiga svo og fyrir ráðuneytið til að tryggja endurgreiðslu á þessum gjöldum.