11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4475 í B-deild Alþingistíðinda. (3105)
254. mál, aflagjald til hafna
Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Þegar beiðni um breytingu á gjaldskrá vegna hafna var til umfjöllunar í samgrn. var enn fremur til umfjöllunar þar breyting á hafnalögunum. Eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda varðandi eitt af stjórnarmálgögnunum í morgun verður lagt fram á Alþingi eftir helgina frv. til breytinga á hafnalögunum sem gerir ráð fyrir að færa ákvörðunarvaldið um hafnagjöldin frá samgrn. til þeirra sem formlega eru eigendur hafnanna og reka þær, þ.e. til sveitarfélaganna.
Þegar þetta var allt til meðferðar á sama tíma taldi ég eðlilegt að afgreiða gjaldskrármálin þannig að þau gjöld sem voru í krónutölu ákvörðuð hækkuðu sem næmi verðlagsþróuninni á milli ára, en þau gjöld sem eru hlutfallsleg og í þessu tilfelli eru aflagjaldið, stæðu í stað m.a. vegna þess að fyrirhugað væri að færa þetta ákvörðunarvald yfir til sveitarfélaganna sjálfra.
Ég held að sé málið skoðað nánar komi í ljós að breyting varð á þegar fiskverðsbreytingarnar voru gerðar. Þá breyttist hlutfallið úr 1% eins og fyrirspyrjandi sagði í 0,85 en raunhækkun varð á gjaldinu. Ég held að það séu ekki liðin nema tvö ár síðan það var gert.
Þegar spurt er um afstöðu er því svarið að afstaða mín er sú að það eigi að auka sjálfstæði sveitarfélaganna, fela þeim að taka þessa ákvörðun. Ég vildi þess vegna gera sem allra minnsta breytingu, en taldi þó rétt að þar sem gjöld voru ákveðin í krónutölu yrði þeim breytt. Þar sem gjaldið var í hlutfalli af verðmæti væri það sjálfkrafa hækkun sem ætti sér stað með tilliti til þess aflamagns sem kæmi að landi og verðhækkun. En ég á von á því að á mánudaginn liggi á borðum þm. frv. sem leggur til að færa þetta vald til sveitarfélaganna eins og ég gat um.