11.02.1988
Sameinað þing: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4477 í B-deild Alþingistíðinda. (3109)
254. mál, aflagjald til hafna
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Hæstv. samgrh. kom með athugasemd við þm. sem hefur ekki rétt til að ræða mál frekar. Ég ætla ekki að svara fyrir hans hönd, en ég bendi á að afgreiðsla hæstv. samgrh. á þessum gjöldum hafnanna liggur fyrir. Hann hefur heimilað hækkun á vörugjaldi til hafna en ekki hækkun á aflagjaldi. Hann hefur þegar mismunað. Og nú segir hæstv. ráðherra: Nú kem ég með frv. og það á að vera sjálfræði, aukið frjálsræði sveitarfélaganna og hafnanna að þessu leyti.
Ég er nú ekkert viss um að það sé einhver kjörlausn að fara að kasta því ofan á svokallað frjálst fiskverð og samkeppnina að því leyti að sveitarfélögin eigi að þurfa að fara að gera upp við sig hvert og eitt hvort þau hækka eða hvaða prósentu þau ákveða í sambandi við aflagjaldið eða ekki þannig að ég held að hæstv. ráðherra og framkvæmdarvaldið sé í rauninni að smokra sér undan eðlilegri afgreiðslu og hugurinn hefur þegar komið fram með ákvörðun hæstv. raðherra varðandi aflagjöldin.