28.10.1987
Neðri deild: 7. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

34. mál, aðför

Flm. (Jón Magnússon):

Herra forseti. Ég þakka undirtektir dómsmrh. við það frv. sem ég flyt um breytingu á aðfararlögunum. Ég geri mér fullvel grein fyrir að æskilegt væri að breyta fleiri ákvæðum nú þegar og sjálfsagt í tengslum við breytingu á 33. gr. að breyta þá til samræmis nokkrum öðrum ákvæðum aðfararlaganna og tel reyndar eðlilegt að farið sé eftir ábendingum réttarfarsnefndar í því efni og tekið tillit til þess þegar málið kemur til skoðunar hjá allshn. sem ég vænti að það fari til.

Ég gat þess í framsöguræðu minni áðan að ég teldi nauðsynlegt að endurskoða aðfararlögin í heild, reyndar eins og mörg önnur lög sem varða framkvæmd réttarmeðferðar og dómsmála í landinu. Hitt er annað mál og það held ég að sé eitt það brýnasta, þ.e. að menn láti ekki væntanlega heildarendurskoðun, sem á að fara fram einhvern tíma í framtíðinni, tefja fyrir því eða verða þess valdandi að nauðsynlegar eða sjálfsagðar breytingar nái fram að ganga. Ég held að það sé aðalatriðið. Ég tel þessa breytingu, þ.e. þá efnislegu breytingu sem lögð er til þó að til þurfi að koma fleiri breytingar í kjölfar hennar, tvímælalaust vera til bóta og skildi orð dómsmrh. þannig að hann teldi það líka og vænti þess ítrekað því að ég vona að þessi tillaga fái framgang á þessu þingi.