11.02.1988
Sameinað þing: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4481 í B-deild Alþingistíðinda. (3112)
242. mál, innflutningur loðdýra til kynbóta
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Loðdýraræktin og þó einkum refaræktin á í erfiðleikum um þessar mundir. Eðlilegt er að leitað sé leiða til að bæta úr í þessum efnum og tillagan sem hér er flutt fjallar einmitt um einn þátt þeirra mála, þ.e. innflutning á loðdýrum til kynbóta.
Ég tel þakkarvert að það mál sé flutt inn á hv. Alþingi, en ég vil þó geta þess að að mínum dómi þarfnast tillagan athugunar og orðalag hennar er þannig að ég tel óvarlegt að hún sé samþykkt óbreytt. Tillgr. segir, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela landbrh. að hefja þegar undirbúning að árlegum innflutningi kynbótadýra til loðdýraræktar.“
Í lok grg. og í ræðu flm. segir að hér sé stefnt að því að flytja inn verulegan fjölda næstu árin, en síðar, þegar meira jafnvægi hafi náðst, muni nægja að flytja inn 200–300 minkalæður árlega. Þessi texti tillögunnar, sem ég geri að umtalsefni og er ekki í sjálfu sér að finna að flutningi málsins nema síður sé, er að mínum dómi óvarlegur að því leyti að með þessu eru landbrh. gefin fyrirmæli af hálfu Alþingis, ef samþykkt er orðrétt, um að flytja inn minkalæður árlega. Það tel ég ekki víst að sé heppilegt eða ástæða til, m.a. og þó fyrst og fremst af öryggisástæðum. Við vitum að erlendis er síður en svo að fullkomið heilbrigði sé í loðdýrastofninum og útbreiðsla sjúkdóma er þar mikil. Útbreiðsla þessara sjúkdóma er einnig nokkuð sveiflukennd þannig að á sumartíma gæti verið svo að það væri afar óvarlegt að stefna að innflutningi og óheppilegt að hafa um það fyrirmæli af hálfu Alþingis, óheppilegt segi ég fyrir hæstv. landbrh. og heilbrigðisyfirvöld að hafa þau fyrirmæli sem tillagan gerir ráð fyrir. Þess vegna held ég að það þurfi að endurskoða orðalag hennar og gera hana ekki jafnafdráttarlausa og hún hljóðar.
Ég minni á það að þegar fluttur var inn minkur hingað til lands eftir að minkarækt var hafin hér að nýju hófst hún á nokkrum stórum búum. Þau lögðu sum upp laupana mjög fljótlega, en þrjú af þessum búum lifðu og störfuðu nokkuð myndarlega. En þó var rekstur þeirra þeim annmarka háður að í stofninum var blóðsjúkdómur sem kallast plasmasitosa og háði það afar mikið rekstri þessara búa. Það þótti býsna djarfleg ákvörðun þegar farið var í að skipta um stofn í þessum búum, sem voru á Sauðárkróki, Böggvisstöðum við Dalvík og við Grenivík, og er óhætt að segja að heilbrigðisyfirvöld hugsuðu sig um áður en leyfi var gefið til þess að farið væri í að skipta um stofn á þessum búum með innflutningi á fyrsta búinu. Þetta var gert að ég ætla á árinu 1982, og það tókst giftusamlega. Það tókst að útrýma þessum blóðsjúkdómi og það tókst að fá inn heilbrigðan stofn. Ég hygg að vel hafi einnig tekist að ná inn stofni sem býr yfir miklum kyngæðum, a.m.k. var vel til þess vandað eftir því sem mögulegt var að stefna að hvoru tveggja í senn að ná inn heilbrigðum stofni og góðum dýrum.
Ég tel að það sé mjög mikilvægt að geta öðru hverju stefnt að innflutningi til að kynbæta íslenska stofninn, en ég endurtek að ég tel að það þurfi þar að gæta fullrar varúðar og þó að komið sé upp sóttvarnarbúum, einu eða fleiri, og eitt hefur þegar verið að rísa, þá haggar það ekki því að við eigum hér svo mikið í húfi að við þurfum að fara að með varúð og þess vegna eru þessi varnaðarorð mín hér flutt.
Nú fjallar tillagan, sem hér er á dagskrá, einkanlega um innflutning á minkalæðum. Ég sagði í upphafi og flm. sagði að loðdýraræktin ætti í erfiðleikum. Refarækt hófst hér á landi 1980. Hún hófst undir þeim kringumstæðum að verð á refaskinnum fór hækkandi á heimsmarkaði. Verð á refaskinnum var í lágmarki 1972, en fór hækkandi allt til ársins 1983, en þá var verð á íslenskum refaskinnum á erlendum markaði 4000–5000 kr. íslenskar. Nú er verð á íslenskum refaskinnum fallið niður í um 1800 kr. íslenskar þannig að verðlækkun hefur orðið mjög alvarleg og eiginlega kippt fótunum undan rekstursafkomu þessarar búgreinar. Eigi að síður er verð á íslenskum refaskinnum litlu lægra en t.d. á dönskum refaskinnum, eftir upplýsingum sem ég hef fengið frá loðdýraræktarráðunaut Búnaðarfélags Íslands, eru íslensku refaskinnin einungis 2 kr. dönskum eða 10–12 kr. íslenskum lægri í verði en dönsku refaskinnin. Á hinn bóginn eru finnsku refaskinnin í mun hærra verði.
Ég vil svo ljúka þessu með refaskinnin og ljúka svo ræðu minni með því að refaskinnin íslensku eru á svo lágu verði að það hefur kippt fótunum undan þessari grein, en heimsmarkaðsverð er eigi að síður á bestu refaskinnum mun lægra en framleiðslukostnaðarverð er hér á landi.