11.02.1988
Sameinað þing: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4489 í B-deild Alþingistíðinda. (3120)
227. mál, íslenskur gjaldmiðill
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. sem Kristinn Pétursson, sem hér átti skamma viðdvöl fyrir nokkru, undirbjó og flytur ásamt hv. þm. Guðna Ágústssyni og Karli Steinari Guðnasyni auk mín. Ég hef fylgst með skrifum Kristins Péturssonar og átt við hann margsinnis umræður um peningamál og efnahagsmál almennt og þótt mjög mikill fengur í að ræða þessi mál við hann, jafnskarpskyggnan mann og hann er. Það er auðvitað skaði að hann skuli ekki sjálfur geta flutt þessa framsögu, en ég mun reyna að bæta úr því með því að taka nokkrar glefsur úr hans ræðum og skrifum, með leyfi forseta, hér í inngangi að máli mínu. Þó ég sé kannski ekki sammála einu og öllu sem fram kemur hjá honum, sem ekki er eðlilegt í jafnflóknum málum og peningamálin eru, er ég í meginatriðum sammála honum a.m.k. um að það verði rannsakað með einhvers konar nefndarskipun, hvernig sem sú nefnd yrði þá saman sett, hvort eðlilegt væri fyrir okkur að tengjast með einhverjum hætti myntum annarra þjóða. Það er ekki ný hugmynd. Ég hef rætt hana sjálfur og margir aðrir.
En Kristinn segir m.a.: „Svokallaður grár markaður, verðbréfamarkaður," þegar hann ræðir um hann, „hefur fengið samlíkingu við ófreskju. Ég spyr: Er þá allt fólkið sem skiptir við þennan markað ófreskjur? Tæplega. Fólk er einfaldlega að bjarga sparifé sínu frá rýrnun. Fari stjórnvöld að skipta sér óhóflega af þessum markaði mun stór hluti þessa fjármagns verða að steinsteypu á nokkrum mánuðum sem mundi leiða af sér aukna þenslu og verðbólgu öllum til bölvunar. Það er ekki frjálsræðið sem er sökudólgurinn. Það er frekar að mínu mati áður nefnt ótryggt myntkerfi sem er draugurinn sem við erum að leita að. Frjálsræðið leiðir af sér háa vexti sem aftur sýnir okkur að eitthvað mikið er að. Lækningin við of háum hita sjúklingsins er ekki að setja sjúklinginn í frysti þar til 37 gráðum á Celcius er náð. Við verðum að skilgreina sjúkdóminn.
Síðan kemur lánskjaravísitalan, blessunin. Vísitölukerfið er nokkurs konar hitamælir þessa sjúka kerfis. Líklega hefur lánskjaravísitalan bjargað efnahagskerfi okkar frá enn verri útreið þótt bölvuð sé á margan hátt. Þetta kerfi er því bráðabirgðafyrirkomulag sem er ekki komið til að vera heldur verður að vera meðan við erum að koma á myntkerfi með varanlegum stöðugleika.“
Ég hef rætt þetta mál talsvert við Kristín og ég hygg að hann sé sammála mér um það, þó að það komi ekki beint fram í því sem ég var að vitna til í hans orð, að meginástæðan til þess að við höfum þessa háu vexti sé ekki frjálsræðinu að kenna, þvert á móti. Hún er auðvitað sú að það er hér á landi, sem hvergi þekkist annars staðar, frystur 1/5 hluti af öllu sparifé, tekinn úr umferð og frjálsir vextir og engir peningar. Hvernig getur það samræmst? Af því að ég sé að hæstv. viðskrh. er hér og þykist vita að hann muni taka þátt í umræðunni vil ég strax geta þess að mér fannst gæta nokkurs ósamræmis í annars mjög merkri og ágætri ræðu sem hæstv. ráðherra flutti í síðustu viku, en ég held að hann hafi þar sagt að óhjákvæmilegt væri aðhald í peningamálum. Ég skil ekki hvað aðhald í peningamálum er nema þessi frysting, að taka peningana úr umferð. Ég fæ ekki séð hvernig það getur samrýmst að ná niður vöxtum, enda sagði hæstv. ráðherra að vextirnir yrðu ekkert lækkaðir með valdboði. Þeir eru hækkaðir með valdboði. Það hefur verið um langt skeið. Það er ekki þessari ríkisstjórn einni að kenna. Það er þessi frysting og skömmtunarstjórn.
Hæstv. ráðherra sagði líka að framboð fjármagns væri lítið og væri þess vegna orsök hárra vaxta. Af hverju er framboð fjármagns lítið? Það er vegna þess að ríkið í fyrsta lagi heimtar allt of mikla skatta, síhækkandi, og í hinu laginu að það frystir það litla sem eftir er af peningunum. Auðvitað verða vextir háir og auðvitað verður grár markaður ef menn vilja kalla hann það. En nú skilst manni jafnvel að það eigi að fara að beita sömu ráðum við verðbréfamarkaðina, að það eigi að fara að frysta þeirra peninga líka og kannski vaxtalaust eins og gert er í Seðlabankanum. Og hvernig verða vextirnir þá ef verðbréfasjóðirnir verða að leggja kannski fimmta partinn inn vaxtalaust í Seðlabankann eða ríkissjóðinn, en sennilega er Seðlabanki ekkert annað en ein skúffa ríkissjóðsins? Ríkið á þennan banka og auðvitað eru sameiginleg fjármál bankans og ríkisins. Þegar talað er um að ríkissjóður taki lán frá Seðlabankanum tekur hann lán frá sjálfum sér með þeim hætti. Auðvitað er þetta allt saman heimt af borgurunum með skattpíningu, beinni og óbeinni, og þess vegna er þessi umræða og sú sem var í síðustu viku mjög nauðsynleg.
Ég ætla að halda áfram að vitna í Kristin: „Það munu vera um 95 þjóðir í heiminum sem tengja myntkerfi sín við önnur stærri myntkerfi. Því skyldum við ekki rökræða þetta í alvöru og hreinskilni? Ég ætla ekki að halda því fram að ég sé með einhvern nýjan sannleik. Ég er bara orðinn þreyttur á því að vera hafður að hálfgerðu fífli með því að vera þátttakandi í útgerð og fiskvinnslu og gjaldeyririnn er alltaf hirtur af okkur á útsöluverði og í staðinn fáum við verðbólgnar krónur og getum ekkert keypt fyrir þær nema búið sé að smyrja á öllum þeim áhættu- og verðbólgukostnaði sem nefndur var hér að framan. Það er kjarni málsins. Undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar, sem framleiða verðmætin, verða alltaf undir í slagnum. Á þennan hátt tapar landsbyggðin sífellt í samkeppni við höfuðborgarsvæðið. Og auðvitað tapar öll þjóðin á verðbólgudansinum. Lífskjörin væru hér betri og kaupmáttur meiri hefði ríkt hér stöðugleiki. Það er engin spurning.
Svona koma þessir hlutir mér fyrir sjónir, en allar ábendingar um fleiri eða nýjar staðreyndir eru vel þegnar því að hérna er að mínu mati stærsta hagsmunamál landsbyggðarinnar og um leið þjóðarinnar allrar, jafnvægi og stöðugleiki í peningamálum. Ég fæ ekki annað séð en það að tengja myntkerfi okkar stærra myntkerfi sé eina leiðin til þess að koma í veg fyrir þá spákaupmennsku sem nefnd hefur verið hér að framan og um leið tryggja að vextir og verðbólga verði hér svipuð og í helstu viðskiptalöndum okkar.“
Og enn fremur: „Enn þá einu sinni erum við í vandræðum með verðbólguna. Nýjar ráðstafanir er sífellt verið að gera. Hvað fer mikill vinnutími stjórnmála- og embættismanna í undirbúning þessara sífelldu ráðstafana í efnahagsmálum? Þetta virðast vera eilífðarvandamál. Eru ráðgjafarnir notaðir? Hafa þessir svokölluðu efnahagsráðgjafar og aðrir sérfræðingar í æðstu stöðum hjá ríkinu nægilega þekkingu á atvinnulífi þjóðarinnar? Það tel ég vafasamt. Það er ekki nóg að hafa falleg prófskírteini í einhverri fræðimennsku og takmarkaða þekkingu á atvinnulífi þjóðarinnar. Í efnahagsráðgjöf ætti ekki að ráða fólk nema það hafi bæði falleg prófskírteini og viðunandi starfsreynslu í atvinnulífinu. Þessar línur eru ekki settar á blað til þess að vera með kjafthátt út í fræðinga. Þeir verða bara að þola hreinskilna gagnrýni.“
Og enn heldur Kristinn áfram og það er í Fiskifréttum. Þar hefur blaðið eftir honum:
„Kristinn orðaði það svo í samtali við Fiskifréttir að það að skipta út erlendri mynt fyrir íslenskar krónur væri líkt og að skipta á Benz og Skoda og sætta sig við viðskiptin því fyrir íslensku krónuna væri ekki hægt að kaupa neitt nema það sem væri búið að smyrja á verðbólgukostnaðinum. „Og þá er spurning dagsins“, sagði Kristinn í ræðu sinni á fundinum, „hvernig má eyða vantrú íslenskra og erlendra aðila á gjaldmiðil okkar, hvernig má gera íslensku krónuna að alvörugjaldmiðli. Mín niðurstaða er sú að gera eigi íslensku krónuna að hluta úr stærra myntkerfi eins og t.d. Lúxemborg er með sameiginlegt myntkerfi með Belgíu undir yfirstjórn belgíska seðlabankans. Andmælendur þessara hugleiðinga hafa sagt að þetta þýddi skert sjálfstæði þjóðarinnar, en er það í raun sjálfstæði að búa við ótraust peningakerfi?""
Þetta var tilvitnun í Kristin. En á sama fundi sem hann mælti þetta tekur einnig til máls Jónas Haralz bankastjóri sem bendir á að áður hafi verið talað um að skapa rekstrargrundvöll með millifærslum af öllu mögulegu tagi, en segir síðan, með leyfi forseta:
„Nú er bersýnilega mikill skilningur á mikilvægi stöðugleika á gengi“, sagði Jónas, „og þá vaknar spurningin: Hvernig eigum við að ná þeim stöðugleika sem menn geta trúað á?" Hann tók undir þá skoðun að það sem mest hefði skort á í tengslum við fastgengisstefnuna, ekki síst á síðustu mánuðum, væri trú manna á að hún mundi takast. „Fólk hefur hagað sér eins og það væri sannfært um að þetta mundi ekki takast“, sagði Jónas, „og meðan svo er getur þetta ekki tekist.“
Síðan víkur Jónas Haralz að því að hann væri að sannfærast meira og meira um að við ættum að taka upp einhver tengsl við erlenda mynt og segir síðan í þessari frétt:
„Það sem kemur mér fyrst í hug og liggur næst“, hélt Jónas áfram, „er að gerast þátttakendur í EMS, European monetary system. Þetta er samvinna Evrópulanda í gengismálum þar sem gilda reglur um það hvað megi hreyfa gengið mikið innan þröngra marka. Það geta skapast þær aðstæður að það verði að breyta genginu og Frakkar hafa gert það oftar en einu sinni, en þetta er þrautalending sem ekki er gripið til fyrr en komið er í mjög erfiða stöðu. Þessu kerfi getum við tengst án þess að ganga í Efnahagsbandalagið. Slík þátttaka gæti tryggt þann stöðugleika sem við þurfum á að halda, en þá verðum við að ganga inn í slíka samvinnu á réttu gengi, á gengi sem skapar jafnvægi.“
Enn hefur merkur maður tekið þetta mál til umfjöllunar nú alveg nýlega. Hinn 4. febr. birtist grein eftir Sigurð B. Stefánsson, sem er framkvæmdastjóri verðbréfamarkaðs Iðnaðarbankans, og hann segir, með leyfi forseta:
„Næstum helmingur af þjóðarframleiðslu Íslendinga er fluttur til útlanda og hátt í helmingi þjóðartekna er varið til innflutnings og vaxtagreiðslna til útlanda. Mest af þessum viðskiptum er við Evrópubandalagið og því hníga öll rök að því að miða gengi íslensku krónunnar við gjaldmiðla þessa ríkis. Evrópubandalagsríkin eru jafnframt í hópi þeirra ríkja sem notið hafa mikils efnahagslegs stöðugleika á síðasta áratug.“
Úr því að ég vík hér að Evrópubandalaginu langar mig aðeins að geta þess að þegar ég ásamt öðrum fulltrúum í hv. utanrmn. átti viku dvöl í Brussel og Strasbourg til að ræða við forustumenn Evrópubandalagsins sannfærðist ég um það enn þá betur en áður að við eigum ekki að ganga í Evrópubandalagið, en við munum samt geta náð mjög hagstæðum samningum við bandalagið. Þeir sem þar ráða nú a.m.k. vilja ekki að Ísland hrekist úr samfélagi Evrópuþjóða. Við greindum þeim auðvitað frá því að við vildum vera Evrópuþjóð og hlytum að verða það héðan í frá eins og hingað til og ég á ekki von á því að við þurfum að sæta neinum afarkjörum í viðskiptum við þá, en ég held að við eigum ekki að halda því á loft að við séum að hugsa um að ganga í bandalagið. Þá ætla ég að þeir mundu segja bara: Gerið þið svo vel. Komið inn og þá takið þið auðvitað á ykkur þær skyldur sem aðrir taka á sig. — Ég held að það væri mikil fásinna og ég held að það sé best að reyna að drepa þær hugmyndir í fæðingu ef einhverjir eru að reyna að breiða það út. En það gefst betra tækifæri í umræðum um utanríkismál til að ræða um það. Hérna er annað mál til umræðu.
Ég vík aftur að þessu með framboð peninga og frystingu á innlendum peningum. Ég er sammála hæstv. viðskrh. um það, sem hann sagði hér í fyrri viku, að það getur verið eðlilegt að hér starfræki erlendir bankar einhverja starfsemi, annaðhvort með útibúum eða með þátttöku í íslenskum bönkum sem eru að meirihlutaeign kannski Íslendinga. En hitt er aðalatriðið að hætta þessari bindiskyldu, afnema hana í eitt skipti fyrir öll. Það hefur verið erfitt að eiga við það mál. Ég er nú búinn að berjast við það í tíu ár. Venjulega tekur tíu ár að koma góðum málum fram svo að ég er að gera mér vonir um að það fari eitthvað að gerast í málinu eftir áratuginn.
En þannig var að að næturlagi, 1985 var það víst, var laumað inn í bandorm ríkisstjórnarinnar heimild til að hækka bindiskyldu úr 28% sem hún þá var í 38%. Ég krafðist auðvitað fundar í mínum þingflokki þar sem ég lýsti því yfir að ég mundi berjast á móti þessu og greiða atkvæði á móti því. Það var að vísu lögfest en aldrei framkvæmt. Hins vegar tókst að koma bindingunni niður í 18 úr 28. Þegar það hafði tekist var samþykkt í Ed. breyting á lögum um Seðlabanka þar sem honum er einungis heimilað að binda 10%. Það varð auðvitað uppi fótur og fit í kerfinu. Þetta var undir þinglokin. Ég var þá formaður einmitt fjh.- og viðskn. og fékk seðlabankastjóra á fund hennar þar sem þeir lögðu fram skriflega bókun svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Peningamarkaðurinn hefur verið að þróast ört í frjálsræðisátt hér á landi undanfarin tvö ár. Þetta gefur færi á að draga úr beinum hömlum á útlánastarfsemi bankanna svo sem innlánsbindingu sem þegar hefur verið lækkuð úr 28% í 18%. Bankastjórn Seðlabankans mun leggja áherslu á að þessi þróun haldi áfram svo ört sem markaðsaðstæður og ytri skilyrði leyfa. Væntanlega verður unnt að taka umtalsvert skref til lækkunar á innlánsbindingu síðar á árinu.“
Þetta er bókað í gerðabók fjh.- og viðskn. 21. apríl 1986.
En það var ekki mikið um lækkunina lengi vel. Loksins kom þó að því að bindiskyldan var lækkuð í 13%, en samhliða var tekið upp það sem var kallað lausafjárskylda og hún er upp á 8%. Þetta varð allt saman 21%.
Ég var sá bjálfi að fallast á að málið gengi ekki sem hafði verið samþykkt með miklum meiri hluta í Ed. um að takmarka bindiskyldu við 10% eins og upphaflega var í seðlabankalögunum. Ég féllst á að láta málið ekki ganga til Nd. Ég hélt að það yrði staðið við efni málsins að binda ekki meira af sparifé landsmanna en hámark 10%. En reynslan varð að bindingin er núna í raun 21%. Það er þó rétt og skylt að geta þessi að af 8%, sem kölluð er lausafjárskylda, geta bankarnir haft einhvern arð. Þeir mega kaupa ríkisvíxla o.s.frv. En hitt er allt saman í Seðlabankanum vaxtalaust. Og hvað halda menn nú að vextir gætu lækkað bara við að þetta fé yrði á markaði í staðinn fyrir að vera bundið og fryst? Þessi takmörkun á peningamagni í umferð er allt saman meira og minna dellukenning. Einu sinni var gullfótur eins og menn vita, það mátti ekki lána meira út, bankarnir fengu ekki meira til ráðstöfunar eða fólkið en sem svaraði verðmæti gullsins. Auðvitað urðu allar þjóðir að hverfa frá þessu eftir því sem umsvifin jukust í heiminum en gullframleiðslan ekki sambærilega. Núna eru peningar ekkert annað en ávísun á auðlegð, á ríkisauð. Ríkið er alltaf að sölsa til sín meiri og meiri auðæfi hlutfallslega. Það gerir það á hverju einasta ári og við höfum orðið vör við það núna í öllum skattahækkununum. Samt á að binda það litla fjármagn sem eftir er. Atvinnuvegirnir fara auðvitað á hausinn með þessu háttalagi og gengið fellur og fólkið verður að knýja fram kauphækkanir til að geta lifað við sæmileg lífskjör. Þetta verkar allt saman öfugt við kennisetningarnar. Menn verða að fara að brjótast út úr þessum föstu viðjum sem maður heyrir um. Og hvar er þessi voðalega þensla? Hún er að fólk hefur sæmilega atvinnu, með allt of lágum launum þó flest hvað. Auðvitað er ég ekkert að mæla því bót, hvorki sem þm. Reykvíkinga né hefði ég gert það meðan ég var þm. úti á landi, að allt of mikið fjármagn fari til Reykjavíkur, allt of miklar framkvæmdir séu hér miðað við það sem er úti á landi. Það er ekkert hagur Reykvíkinga, síður en svo. Fyrrverandi borgarstjóri Geir Hallgrímsson lagði á það mikla áherslu á sínum tíma að styrkja Byggðasjóð, sem hét þá að vísu Atvinnujöfnunarsjóður eða hvað það nú var, til þess einmitt að fólkið væri ekki allt að flytja til Reykjavíkur og leggja byrðar á borgarana sem þar eru með allar þær framkvæmdir sem þarf að sinna þegar fólk flytur í stórum stíl eins og gerst hefur á undanförnum árum t.d. Það er ekki hagur Reykvíkinga. En það er ofstjórnarvaldið í þessu landi sem skapar alla þá erfiðleika sem við búum við.