11.02.1988
Sameinað þing: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4516 í B-deild Alþingistíðinda. (3132)
257. mál, stefnumörkun í raforkumálum
Flm. (Þórður Skúlason):
Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um stefnumörkun í raforkumálum sem er á þskj. 553. Flm. auk mín eru aðrir hv. þm. Alþb. Tillgr. orðast svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að kjósa nefnd skipaða einum fulltrúa frá hverjum þingflokki til að endurskoða skipulag raforkumála í landinu.
Nefndin skal athuga sérstaklega hvernig unnt er að skipuleggja öflun og dreifingu raforku þannig að allir landsmenn búi við sem jafnast raforkuverð. Í þessu sambandi skal nefndin kanna alla möguleika, þar með talið breytta verkaskiptingu Rafmagnsveitna ríkisins og Landsvirkjunar eða hugsanlegan samruna fyrirtækja og endurskipulagningu orkuveitusvæða.
Nefndin skal skila tillögum sínum í skýrslu til Alþingis fyrir lok októbermánaðar 1988. Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“
Þannig hljóðar tillögugreinin. En hver er staðan í raforkumálum um þessar mundir? Ég held að það sé alveg nauðsynlegt, herra forseti, að fara um það örfáum orðum.
Hinn 1. des. sl. hækkaði húshitunartaxti Rafmagnsveitna ríkisins um 25,5%. Sé reiknuð út meðaltalshækkun sama taxta frá meðalverði ársins 1987 til meðalverðs 1988 og ekki gert ráð fyrir neinum hækkunum á þessu ári nemur sú hækkun um 33,8%. Bein hækkun taxtans frá janúar 1987 til janúar 1988 nemur hins vegar um 51%. Á sama tíma hækkaði framfærsluvísitalan um 24% og verð á gasolíu um 24,6% . Ástæður þessarar miklu hækkunar eru m.a. þær að niðurgreiðslur á raforku til húshitunar hafa verið óbreyttar í krónutölu frá því í janúar 1985 eða 63 aurar á kwst. Samkvæmt útreikningum Orkubús Vestfjarða námu niðurgreiðslurnar 41% af heildarverðinu í janúar 1985 en nema nú um 26% af heildarverðinu. Þessi þróun raforkuverðs hefur leitt til þess að nú er verulega ódýrara að nota gasolíu til upphitunar en raforku frá Rafmangsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða.
Ég hef undir höndum útreikninga bæði frá Orkubúi Vestfjarða og rafveitustjóranum í Búðardal og nemur mismunurinn á hitunarkostnaði eftir því hvort notuð er gasolía eða raforka frá 24% og upp í 34% eftir því hvaða reikningsaðferðir eru notaðar og hver reiknar. Raunar kemur einnig fram í útreikningum rafveitustjórans í Búðardal að óniðurgreidd raforka til húshitunar er 78,6% dýrari en gasolía og hef ég þá útreikninga undir höndum. Fullljóst er því að gasolían er orðin verulega hagkvæmari til húshitunar en raforkan.
Fyrir örfáum árum var hins vegar hvatt til þess af stjórnvöldum að húseigendur utan hitaveitusvæða breyttu orkunotkun sinni úr gasolíu í raforku og eyddu margir til þess verulegum fjármunum. Húsnæðisstofnun ríkisins veitti lán í þessu skyni, lán til orkusparandi aðgerða, og eru lánin vísitölutryggð til nokkurra ára. Höfuðstóll skuldarinnar hefur því hækkað eftir lánskjaravísitölu og afborgunarbyrðin aukist í sömu hlutföllum.
Nú liggur fyrir að allir þeir húseigendur sem breyttu sínum orkugjafa hafa verið plataðir. Þeir hafa verið sviknir nema raforkuverðsþróuninni verði snúið við. Ekki einungis það að raforkan sé nú orðin dýrari en gasolían sem þeir notuðu áður heldur bætist við fjármagnskostnaður vegna áhvílandi skulda er stofnað var til vegna breytingar á orkugjafa.
Það alvarlegasta við þessa þróun er þó það að húshitunarkostnaður hluta landsmanna hefur hækkað úr hófi fram og er nú orðinn óbærilegur. Þá hefur aðstöðumunur húseigenda eftir búsetu farið síversnandi og vaxandi að undanförnu. Á orkuveitusvæði Orkubús Vestfjarða kostar nú um 63 þús. kr. á ári að hita upp meðalibúðina þegar það kostar um 22 þús. kr. á veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur og annarra ódýrra hitaveitna víða um landið. Húshitun á orkuveitusvæði Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða er þannig orðin um þrisvar sinnum dýrari en á ódýrari hitaveitusvæðum landsins sem meginþorri þjóðarinnar nýtur. Þennan mikla mun verður að jafna. Hann er óréttlátur og hlýtur að leiða til búseturöskunar. Mundu ekki ýmsir huga að því að færa sig til milli staða ef mjólk eða kjöt eða aðrar nauðsynjar væru þrisvar sinnum ódýrari á einu landsvæði en öðru? Ég er ansi hræddur um það. Þar á ofan er almennur heimilistaxti 36% hærri hjá Rafmagnsveitum ríkisins en hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Þrátt fyrir þessar miklu hækkanir og verulega hærri taxta hjá Rafmagnsveitum ríkisins en Rafmagnsveitu Reykjavíkur er afkomu Rafmagnsveitna ríkisins stefnt í hreinan voða. Um 700 millj. kr. rekstrarhalli á tveimur árum getur ekki leitt til neins annars en hreins ófarnaðar. Þróunin virðist stefna hraðbyri til þess ástands er varð hér á árunum 1974–1978 þegar fjármál Rafmagnsveitna ríkisins fóru úr böndunum. Taxtamunur rauk þá upp úr öllu valdi og varð um 80% milli taxta Rafmagnsveitna ríkisins og Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þá var hins vegar gripið til þess ráðs að leggja verðjöfnunargjald á alla selda raforku en tekjur af innheimtu þess runnu til Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða. Verðjöfnunargjaldið var fellt niður snemma árs 1986 en áætlað er að það hefði gefið um 404–450 millj. kr. í tekjur til rafmagnsveitnanna ef þess nyti enn við eða svipaða upphæð og nemur áætluðum halla.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit og bein loforð um að fyrirtækjunum er nutu verðjöfnunargjaldsins yrði að fullu bættur tekjumissirinn við niðurfellinguna blasir við sú staða að ríkisstjórn og hv. Alþingi skilja við málefni Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða í óviðunandi stöðu. Afleiðingarnar bitna á viðskiptavinum þessara stofnana í stórhækkuðu orkuverði og mikilli óvissu um sinn hag. Miðað við þróun þessa máls, stórhækkanir á orkuverði og aukinn ójöfnuð, sýnist mér raunar full nauðsyn á að hæstv. ríkisstjórn taki þetta mal til athugunar hið fyrsta og freisti þess að finna bráðabirgðaleiðir til jöfnunar á raforkuverði nú þegar. Það er raunar ekki nema sanngjörn og eðlileg krafa rafmagnsnotendanna á umræddum orkuveitusvæðum.
Sú till. sem hér er mælt fyrir gengur hins vegar út á það að skipuð verði nefnd til að finna lausn á þessu máli til lengri tíma. Það er brýnt jafnaðar- og réttlætismál og ég er mjög ánægður með að allir hv. þm. Alþb. skuli flytja þessa till. með mér, jafnt þéttbýlisbúar sem hinir sem hafa þar beinna hagsmuna að gæta.
Til að leita framtíðarlausnar á þessu máli verður að mínu mati að grípa til pólitískra aðgerða. Það þarf nýja pólitíska stefnumörkun og út á það gengur till. að hafist verði handa í mörkun nýrrar pólitískrar stefnu í raforkumálum. Í grg. með till. segir svo, með leyfi forseta:
„Á undanförnum árum hefur orðið stórfelld skipulagsbreyting í raforkumálum í heild án þess að stefnumörkun í málaflokknum hafi átt sér stað.
Landsvirkjun, sem áður var í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar og sá um orkuöflun fyrir Suðvesturland, hefur nú yfirtekið allar stærstu virkjanir landsins og er nú orðið orkuöflunarfyrirtæki sem þjónar landinu öllu.
Í meginatriðum er skipulag raforkumála í landinu nú með þeim hætti að einn aðili, Landsvirkjun, annast raforkuöflunina, rekur virkjanirnar og selur raforkuna í heildsölu til þeirra sem dreifa henni síðan til notenda.
Stærstu dreifingaraðilar eru Rafmagnsveita Reykjavíkur og aðrar minni bæjarveitur og síðan Rafmagnsveitur ríkisins (RARIK) og Orkubú Vestfjarða. Rafmagnsveita Reykjavíkur og aðrar bæjarveitur búa við þær aðstæður að orkunotkun er tiltölulega mikil miðað við stærð dreifikerfis og rekstur því tiltölulega hagkvæmur. RARIK og Orkubú Vestfjarða annast hins vegar dreifingu og sölu á raforku til lítilla þéttbýlisstaða og í víðáttumiklar sveitir landsins. Þar er raforkusala hins vegar mjög lítil einkum miðað við lengd dreifikerfis og viðhalds- og rekstrarkostnað þess.
Til skamms tíma var það óhagræði í rekstri bætt þessum fyrirtækjum með álagningu jöfnunargjalds á raforku, sem RARIK og Orkubúið fengu í sinn hlut til rekstrarins, en áður hafði verið létt af þessum fyrirtækjum stofnkostnaði vegna byggðalína. Við niðurfellingu jöfnunargjaldsins var því lofað að sá tekjumissir yrði að fullu bættur. Minna hefur orðið úr því fyrirheiti en efni stóðu til og nauðsynlegt hefði verið. Jafnframt hefur þessum fyrirtækjum verið lögð sú skylda á herðar að bera stofn- og rekstrarkostnað af línulögnum sem engri arðsemi skila og taka lán til þeirra framkvæmda.
Mikill hluti raforkusölu RARIK og Orkubúsins er til húshitunar, öfugt við það sem gerist hjá öðrum veitum. Stærsti hluti orkusölu þessara fyrirtækja er mjög óarðbær. Sáralítill munur er nú t.d. á húshitunartaxta RARIK og því heildsöluverði er fyrirtækið greiðir fyrir rafmagnið, enda hafa niðurgreiðslur á raforku til húshitunar staðið í stað frá árinu 1985 og lækkað stórlega að raungildi. Mikill mismunur á smásöluverði raforku milli fyrirtækja liggur þannig að stórum hluta í því að RARIK og Orkubúinu eru lagðar ákveðnar skyldur á herðar sem aðrar veitur þurfa ekki að uppfylla. Þannig sitja RARIK og Orkubúið uppi með óhagkvæmasta hluta raforkudreifingarinnar í landinu, víðáttumikið og langt dreifikerfi sem er rekstrarlega þungt og viðhaldsfrekt, ásamt ábataminnsta orkumarkaðnum sem að verulegum hluta er raforkusala til húshitunar.
Landsvirkjun annast hins vegar orkuöflun og rekur virkjanirnar sem margar eru löngu afskrifaðar og rekstrarlega mjög hagkvæmar. Landsvirkjun ákveður síðan heildsöluverðið til RARIK og annarra veitna. Sjálfdæmi um verðlagningu hefur leitt til góðrar afkomu fyrirtækisins.
Reglur um afskrift virkjana, lánskjör, vextir og gengisviðmiðanir fjárfestingarlána ásamt umdeilanlegum fjárfestingum leiða einnig til þess að raforkuverð í landinu er hátt. Þá má minna á að um árabil hefur raforka verið seld til erlendrar stóriðju á verði sem er lægra en framleiðslukostnaðarverð frá nýlegum og áformuðum virkjunum. Raforkuverðið er bæði hátt miðað við önnur lönd og aðra orkugjafa. RARIK keyrir nú dísilvélar til að ná niður toppum í orkukaupum af Landsvirkjun í sparnaðarskyni og áhöld eru um hvort borgar sig fyrir sum fyrirtæki að keyra dísilstöðvar eða kaupa raforku í smásölu.
Núverandi skipulag raforkumála leiðir til mikils misræmis, annars vegar milli heildsöluaðilans og þeirra sem selja raforkuna á hagkvæmustu og þéttbýlustu markaðssvæðunum og hins vegar þeirra er þjóna óhagstæðasta hluta markaðarins í dreifbýlinu og verða að taka á sig sérstakar kostnaðarsamar og félagslegar skyldur að kröfu stjórnvalda. Sá aðstöðumunur fer vaxandi og stefnir í algjört óefni ef ekki verður gripið til aðgerða. Rekstrarhalli RARIK er nú áætlaður 400 millj. kr. á þessu ári.
Afleiðingin er m.a. mjög mikill munur á verði raforku eftir orkuveitusvæðum sem augljóslega fer vaxandi. Sá munur leiðir til ójafnaðar eftir búsetu og bitnar harðast á raforkunotendum á orkuveitusvæðum RARIK og Orkubúsins.
Þessi verðmismunur nemur allt að 30% þar sem mestu munar.
Með ákvörðunum stjórnvalda hafa Rafmagnsveitur ríkisins verið skuldbundnar til að ráðast í óarðbæra fjárfestingu á sviði raforkumála. Raunar er um að ræða sjálfsagt og eðlilegt félagslegt verkefni sem leitt hefur til aukins jafnaðar í þjóðfélaginu. Samfélagið allt verður að standa undir því verkefni en ekki einungis raforkunotendur einstakra orkuveitusvæða. Stjórnvöld hafa ákveðnar skyldur við raforkunotendur um land allt sem felast í því að þeim sé tryggð raforka á viðunandi verði og að verðmismunur milli orkuveitusvæða sé ekki óhóflegur.
Verkaskipting raforkufyrirtækjanna hefur verið með þeim hætti að RARIK hefur haft á hendi stærsta hluta hins óarðbæra félagslega þáttar. Jafnframt hefur arðbærari hluti orkusölu fyrirtækisins dregist saman. Heildsöluverð raforkunnar, sem RARIK kaupir, er ákveðið af Landsvirkjun en stjórnvöld þrýsta niður útsöluverðinu af eðlilegum ástæðum og knýja á um aukin félagsleg verkefni. Fjárhagsstaða milliliðar í slíkri stöðu er því afleit og á tímum kaldrar markaðshyggju eiga slík fyrirtæki sífellt meira undir högg að sækja hversu mikilvægt sem hlutverk þeirra er. Í þessu tilliti er nauðsynlegt að endurskoða verkaskiptinguna. Ein leiðin gæti verið að Landsvirkjun sæi um rekstur allra háspenntra lína og seldi raforkuna í heildsölu á sama verði um land allt. Samruni fyrirtækja kemur til greina og ýmsar fleiri leiðir þarf að skoða.
Þjóðfélagslega nauðsyn ber til þess að á hverjum tíma sé leitað hagkvæmustu leiða í raforkuöflun og dreifingu. Jafnframt er mikið réttlætismál að raforkuverðið í landinu verði jafnað frá því sem nú er og svo sem kostur er á hverjum tíma.
Raunhæfasta leiðin til að ná því markmiði er að taka nú raforkumálin í heild til gagngerrar endurskoðunar og marka þessum málaflokki nýja og skýra stefnu með aukna hagkvæmni og jöfnuð að leiðarljósi.“
Þannig hljóðar greinargerðin.
Ég legg síðan til að að lokinni þessari umræðu verði þessari till. vísað til atvmn.