11.02.1988
Sameinað þing: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4539 í B-deild Alþingistíðinda. (3143)

257. mál, stefnumörkun í raforkumálum

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það hafa komið fram hér mjög athyglisverðar játningar af hálfu hæstv. iðnrh. Hann hefur sagt það hér í umræðunni að hann hafi ekki séð fram úr þeim vanda sem blasir við orkudreifingarfyrirtækjunum, Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða, og það sé ekki farið að ræða um þann hrikalega vanda sem þar blasir við á milli aðila í ríkisstjórn. Hæstv. iðnrh. og fjmrh. eru ekki farnir að taka á þeim vandamálum. Á sama tíma stendur ríkisstjórnin að því að hækka gjaldskrár þessara fyrirtækja gagnvart neytendum og viðskiptavinum þeirra þannig að verðmismunur á raforku í landinu fer vaxandi og það mjög ört, með hrikalegum hætti. Hæstv. ráðherra reyndi, eins og hann gerði hér í þessum ræðustól fyrir jólin, að afsaka og draga fjöður yfir þá breytingu sem orðið hefur í sambandi við verð á raforku til húshitunar. Hann stendur hins vegar uppi vopnlaus vegna þess að hann getur ekki annað en staðið við þær tölur sem fyrir liggja sem leiddu til 34% verðhækkunar samkvæmt gjaldskrá miðað við meðalnotkun á raforku til húshitunar frá 1. des. sl. og ef hann hefði miðað við það sem skammtað er í fjárlögum hans ríkisstjórnar hefði verðmismunurinn orðið 40% miðað við 1. des. sl.

Síðan getur hæstv. ráðherra reiknað út alls konar meðaltöl út frá einhverjum verðbólguforsendum sem hann og hans ríkisstjórn miða við í sambandi við fjárlagagerð og það sem gerast muni á árinu. En ég ætla ekki að ræða það sérstaklega hér.

Ég ætla hins vegar að benda hæstv. ráðherra á það að það væri mjög verðugt verkefni fyrir hann að fara ofan í mál raforkuskipulagningar í landinu út frá þeim hugmyndum sem eru lagðar til í þáltill. sem hv. þm. Þórður Skúlason er 1. flm. að. Ef hæstv. ráðherra er ekki reiðubúinn til þess að halda uppi verðjöfnun með verðjöfnunargjaldi eða með því að leggja til fjármuni til þeirra fyrirtækja sem eru í þeirri vonlausu aðstöðu að ætla að halda uppi verðlagningu á orkunni þannig að endar náist saman biðjum við hann um leiðsögn. Hvað ætlar hann að gera? Ætlar hann að leggja þessar byrðar á landsbyggðina? Ætlar hann að leggja þessi viðskipti á notendur, viðskiptamenn Orkubús Vestfjarða og Rafmagnsveitna ríkisins? Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera í þessum efnum? Um það er spurt.

Dæmið er ofur einfalt. Það er ofur einfalt. Spurningin er um pólitískan vilja. Er þessi pólitíski vilji til staðar, að standa fyrir verðjöfnun á orku í landinu? Mér sýnist því miður að það sé dálítið langt í land með það að yfirlýsingar af því tagi komi hér fram. Þetta er ekki flókið dæmi, hæstv. ráðherra. Þessi verðmismunur liggur fyrir og hann er vaxandi. Það er auðvitað undir forsendum komið hvernig menn reikna, hve stórar upphæðir er um að ræða. Ég get sagt hæstv. ráðherra dæmi. Það eru mínir eigin reikningar af því að halda uppi húsnæði austur á landi og hér í Reykjavík og það er mjög ólíkur kostnaður.

Ég greiði vegna íbúðar austur í Neskaupstað um 10 þús. kr. á mánuði fyrir orku, tiltölulega nýlegt hús. (Iðnrh.: Allan ársins hring?) Allan ársins hring. Og það eru margir sem horfa framan í svipað dæmi og ég held að ekki sé bruðlað með orku á þeim bæ. Hæstv. ráðherra ætti því í rauninni að átta sig á því hvernig ástandið er í þessum málum. Frammi fyrir hvaða reikningum standa menn úti um landið í þessum efnum? Ætlar hæstv. ráðherra og hans ríkisstjórn að skrifa upp á þessa mismunun og vaxandi mismunun í þessum efnum eða hefur hann önnur úrræði? Um það er spurt.

Ég tel að sú þáltill. sem hv. þm. Þórður Skúlason er frumkvæðisaðili að vísi á ákveðna leið sem við hljótum að athuga í sambandi við raforkumálin og skipulag þeirra í landinu. Annars vegar höfum við Landsvirkjun sem hefur sem betur fer bættan hag, m.a. vegna þess að það tókst að breyta hlutaskiptunum í sambandi við raforkuverð til stóriðju. Vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar 1980–1983 tókst að knýja fram breytingar á þeim viðskiptum sem hafa leitt til breytinga á aðstöðu Landsvirkjunar, sem betur fer. Það voru ekki nógu hagstæðir samningar. Það var ekki haldið nógu vel á þeim spilum. En þeir breyttu stöðunni. En Rafmagnsveitur ríkisins eru skrifaðar út af hv. Alþingi með 400 millj. kr. í mínus og á sama tíma er gjaldskráin hækkuð og ekkert sagt um það hvernig brugðist verði við þessum halla.

Við biðjum um svör hér á Alþingi og fólkið, sem er ætlað að greiða þessa reikninga, biður um svör frá hæstv. ríkisstjórn.