28.10.1987
Neðri deild: 7. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (315)
42. mál, áfengislög
Flm. (Jón Magnússon):
Herra forseti. Ég hef ásamt hv. þm. Geir H. Haarde, Guðrúnu Helgadóttur og Inga Birni Albertssyni flutt frv. til laga um breytingar á áfengislögum, nr. 82/1969.
Varðandi ákvæði frv. er í 1. gr. lagt til að 3. mgr. 3. gr. laga nr. 821 1969 falli brott. Með því að fella þessa grein brott úr áfengislögum fer innflutningur á áfengu öli fram með sama hætti og innflutningur á öðru áfengi. Í því sambandi má minna á lög nr. 63 frá 1969, um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf, en þessu frv. er að sjálfsögðu ekki ætlað að raska þeim ákvæðum.
Með 2. gr. frv. er lagt til að sömu reglur gildi varðandi meðferð, tilbúning og sölu allra áfengra drykkja, og er þá haldið þeirri skilgreiningu áfengislaga að áfengi teljist hver sá vökvi sem hefur meira en 21/4% vínanda að rúmmáli.
Með 3. gr. frv. er lagt til að 15. gr. áfengislaganna verði breytt til samræmis verði 1. og 2. gr. frv. þessa samþykkt.
Þá er enn fremur lagt til að lög þessi taki ekki gildi fyrr en 1. október 1988 og verður sú tímasetning skýrð sérstaklega hér á eftir.
Í grg. gera flm. grein fyrir tilgangi með flutningi frv. þessa. En það er í fimm liðum og er þannig:
1. að draga úr hinni miklu neyslu sterkra drykkja,
2. að breyta drykkjusiðum þjóðarinnar til batnaðar,
3. að afla ríkissjóði tekna,
4. að efla þann hluta íslensks iðnaðar sem annast framleiðslu á öli og gosdrykkjum,
5. að samræma áfengislöggjöfina.
Ég tel óþarfa að rekja sérstaklega sögu bjórmálsins hér á landi eða þau lagafrv. og brtt. sem fluttar hafa verið frá setningu bannlaganna til þessa dags. Það er þó ástæða til að benda á að eftir að brennivínið tók yfirhöndina hvað áfengisneyslu snerti hér á landi upp úr 1730, fyrir tilstilli danskra stjórnvalda og kaupmanna, jókst drykkjuskapur ákaflega mikið. Ölneysla hafði þá um nokkurt skeið dregist saman en brennivínsneysla aukist. Þess ber einnig að geta að í upphafi aldarinnar, á meðan aðflutningur og sala sterks áfengis var verulega takmarkað en sala áfengs öls leyfð, minnkaði áfengisneysla nokkuð. Þessi tvö dæmi höfum við úr áfengissögu þjóðarinnar, varðandi áhrif áfengs öls. Samkvæmt þeim virðast drykkjusiðir batna og drykkjuskapur minnka hjá þjóðinni eftir því sem meira er neytt af áfengu öli í hlutfalli við sterk vín. Eitt dæmi höfum við varðandi þá viðleitni að draga úr neyslu áfengis og útrýma því úr landinu, en það var við setningu bannlaganna. Niðurstaðan af þeirri tilraun var einfaldlega sú að það er þýðingarlaust í áfengismálum að berjast gegn hlutum sem stór hluti þjóðarinnar vill. Jafnvel þó að meiri hluti þjóðarinnar sé andvígur áfengisneyslu þá var ekki fært að halda uppi þeim ákvæðum sem bannlögin studdust við.
Þessi dæmi skipta máli þegar reynt er að meta réttmæti þeirra staðhæfinga sem koma fram hjá flm. um að með þeirri skipan sem lögð er til í frv. þessu megi draga úr neyslu sterkra drykkja og að drykkjusiðir þjóðarinnar geti breyst til batnaðar. Bjór hefur verið bruggaður í mörg þúsund ár. Frá alda öðli var hann áfengi þeirra þjóða sem bjuggu svo norðarlega að þær gátu hvorki ræktað þrúgur né útvegað hunang til að laga vín. Sterkasti bjórinn sem bruggaður er í dag mun vera rúmlega 13% vínandi að rúmmáli. En sá bjór sem er algengastur og mest drukkinn er á milli 3,5 og 5% vínanda að rúmmáli. Í þýska sambandslýðveldinu er bjórneysla mest eða um 147 lítrar á mann á ári, í Danmörku er neyslan í kringum 130 lítrar á mann á ári, helmingi minni í Svíþjóð og örlitlu minni í Finnlandi en í Svíþjóð. Neyslan er síðan mun minni eða minnst af Norðurlöndunum í Noregi samkvæmt upplýsingum úr bókinni The World Guide of Beer, útgefin 1980.
Ég hygg að það sé óþarfi að rekja þær reglur um framleiðslu og sölu á bjór sem gilda annars staðar á Norðurlöndunum. Mörgum þm. eru sjálfsagt þær reglur kunnar. Það er þó ástæða til að minnast á Svíþjóð í þessu sambandi því hin síðari ár hafa iðulega alrangar fullyrðingar verið settar fram um stöðu bjórmála í Svíþjóð, sérstaklega þó af andstæðingum bjórsölu hér á landi. Af slíkum fullyrðingum hefur helst mátt ráða að bjór væri bannaður í Svíþjóð. En það er rangt eins og sést af því að í Svíþjóð eru drukknir um 60 lítrar á hvert mannsbarn í því landi. Og Svíar eru sautjánda mesta bjórneysluþjóð heims. Framleiðslu á bjór í Svíþjóð er skipt í þrjá flokka. Fyrsti flokkur, léttöl, hefur minna vínandainnihald að rúmmáli en 2,8%. Fram til 1977 var öðrum flokki skipt í tvo hluta, annan með bjór að styrkleika um 2,8%, en hinn að styrkleika um 3,6%. Árið 1977 voru þessir hlutar sameinaðir í einn og þá miðaðir við framleiðslu á bjór um 2,8%. „Mellanöllet“ svokallaða, sem var um 3,6%, var þar með afnumið. En fram að þeim tíma hafði það verið mjög algengt. Það var selt mjög víða, var tiltölulega ódýrt og var um 65% af allri bjórneyslu í landinu. Sú breyting sem þarna var gerð, þ.e. afnám „mellanöllets“, hefur frá þeim tíma allt til dagsins í dag og verður sjálfsagt enn um hríð verið mjög til umræðu í Svíþjóð og menn greinir mjög á um hvort þetta hafi verið réttmæt breyting eða ekki. Þriðji flokkurinn af bjór sem seldur er í Svíþjóð inniheldur um 4,5% af vínanda að rúmmáli.
Þegar andstæðingar bjórsins hér vitna til Svíþjóðar máli sínu til stuðnings er ljóst að þeir gera það á fölskum forsendum því um leið og þeir hampa réttmæti þeirra breytinga sem gerðar voru á bjórlögum í Svíþjóð árið 1977, fyrir 10 árum, þá virðast þeir hinir sömu menn ekki gera sér grein fyrir því að þeir sem mæla fyrir bjór á Íslandi hafa lagt til að skipan bjórsölu á Íslandi yrði svipuð og gerist í Svíþjóð, þó jafnvel með enn takmarkaðri dreifingu en þar á sér stað.
Þó að ég nefni þessi dæmi þá vil ég alls ekki gera lítið úr ýmsum ábendingum þeirra sem eru á móti framleiðslu og sölu á áfengu öli. En á það ber samt að líta að flest ef ekki öll rök þeirra eru í eðli sínu rök gegn áfengisneyslu og varða því bjórinn ekki sérstaklega öðruvísi en sem eina tegund áfengis. Menn eiga hins vegar aldrei að loka eyrunum fyrir rökum andmælenda sinna.
Þeir sem harðast leggjast gegn sölu bjórs hér á landi byggja höfuðröksemdir sínar á því að þeir óttist það að bjór muni sérstaklega auka drykkju unglinga. Sjálfur tel ég hæpið að svo muni verða. En þessi mótbára er tvímælalaust það veigamikil að grannt verður að fylgjast með því eftir að bjórinn hefur verið leyfður hvernig þróunin verður í þessu efni og kippa í taumana varðandi sölumeðferð og verðlagningu á bjór ef þessi staðhæfing reynist eiga við rök að styðjast.
Í nágrannalöndum okkar hefur þróunin orðið sú að byrjunaraldur áfengisneyslu hefur lækkað töluvert á undanförnum árum. En nákvæmlega það sama gildir hér á landi. Byrjunaraldur áfengisneyslu er orðinn það lágur hér á landi að mjög svipar til þess sem gerist í nágrannalöndum okkar. Ég hygg því að tilkoma bjórs geti varla breytt hér til hins verra. Það skiptir máli varðandi drykkju unglinga að stjórnvöld marki skynsamlega áfengisstefnu, stórauki fræðslu meðal unglinga um áfengi, áfengisneyslu og skaðsemi hennar. Þessi fræðsla er ekki jafnöflug nú og hún þyrfti að vera. Það hefur hins vegar sýnt sig að þegar þeir sem gerst þekkja og best geta veitt slíka fræðslu hafa gert það í skólum landsins, þá hafa unglingarnir verið mjög reiðubúnir til að hlusta, mjög móttækilegir og hafa virt það sem þar hefur verið fram fært.
Önnur mótbára, sem ég hef heyrt varðandi sölu og bruggun á áfengu öli hér á landi, er sú að drykkja á vinnustöðum aukist. Það er mjög mismunandi eftir löndum hvort drukkið er á vinnustöðum og jafnvel þá á hvaða vinnustöðum. Hér á landi er það ekki algengt að drukkið sé á vinnustöðum og ég hef satt að segja enga trú á því að þarna sé um raunverulega hættu að ræða. Vinnubrögð hér eru almennt með þeim hætti að ég hygg að hættan sé hverfandi ef þá nokkur.
Sú röksemd þeirra sem eru á móti sölu og dreifingu á áfengu öli að bjórinn muni auka heildarneyslu þjóðarinnar á áfengi getur vel verið rétt. Það þarf þó ekki endilega að hafa tjón í för með sér eða auka ölvun eða alkóhólisma. Ég held því fram að jafnvel þó að til þess geti komið að heildarneyslan aukist eitthvað, þá geti drykkjusiðir batnað með bjórnum og að minna verði neytt af sterkum drykkjum. Í þessu efni sem og öðrum sem varða mótbárur gegn bjór skiptir mestu máli hvernig á hann er litið, hvernig verðlagningu er háttað og hvernig sölu og dreifingu er háttað. Um leið og bjór verður leyfður verður að móta samræmda stefnu í áfengismálum og ætti í raun að vera búið fyrir löngu — freista þess með verðstýringu að beina áfengisneyslu inn á þær brautir sem taldar eru skaðminnstar.
Mín skoðun er sú að heppilegast sé að ódýrasta alkóhóleiningin yrði í léttum vínum, næstódýrasta í áfengu öli, en dýrust í sterkum vínum. Reynsla allra þjóða sýnir að hafa má áhrif á áfengisneyslu með verðstýringu. Því hærra verð sem er á áfengi, þeim mun minni neysla. Mér finnst það nokkuð öfugsnúið að hafa áfengislöggjöf sem bannar léttustu tegund þess vímugjafa, og að margra mati þá skaðminnstu, en leyfir það sterkasta og skaðmesta. Í þessu sambandi má benda á ýmsar greinar, en ég læt nægja að benda á grein sem birtist í Morgunblaðinu 26. apríl 1977, það er þýðing Halldórs Laxness á grein úr Süddeutsche Zeitung í München, með leyfi forseta, en þar segir í inngangi þýðingar:
„Hér veit almenningur ekki gjörla um hvað verið er að tala þegar bjór er á dagskrá, þar sem drykkurinn hefur verið krímínaliséraður hjá okkur í tvær kynslóðir, það er að segja látinn jafnbrýna glæp allar götur síðan árið 1915.“
Þessi ummæli eru mjög lýsandi um þau viðhorf og viðbrögð sem hér hafa lengst af verið ríkjandi gagnvart bjór. Bjórnum hefur æ ofan í æ verið lýst sem einu því hættulegasta sem komið gæti yfir íslensku þjóðina og svo hefur farið að ýmsir trúa þessu og neita algjörlega að skoða málið með opnum huga.
Bestu lýsingu sem ég hef fundið á afleiðingum þeirrar hörðu andstöðu sem hér hefur verið haldið uppi er að finna í bókinni Guðsgjafaþula eftir Halldór Laxness, en þar er því lýst, með leyfi forsefa, að bátur skipaði upp farmi í Djúpvík. Grunur lék á og almannarómur taldi að smyglvarningur, m.a. bjór, væri í bátnum. Tveir menn létust þegar þeir neyttu efnis úr tunnu nokkurri sem þeir álitu að hefði að geyma bjór í föstu formi, en reyndist vera arsenik. Síðan segir í bókinni, með leyfi forseta:
"(Eftirmáli) Ég get ekki stillt mig um að prenta hér að lokum skeytaskifti milli Landssambands Kvenfélaga Í Sveitum Gegn Bjórflutningi Til Íslands og ritstjóra Norðurhjarans á Djúpvík. Skeytið er sent áður en leiðrétting mín til Ríkisútvarpsins kom fram:
Guðrúnarstöðum vestan Helkunduheiðar, osfrv. Herra ritstjóri, sakir voveiflegrar morgunfréttar í útvarpinu í dag, þess efnis að tveir verkamenn hafi orðið bráðkvaddir af bjór á ritstjórnarskrifstofu verkamannablaðsins Norðurhjarans á Djúpvík í morgun, leyfum vér oss að láta í ljós skelfingu vora útaf lífshættulegum drukk sem ógnar eiginmönnum vorum og sonum. Vér treystum yður að gefa í blaði yðar fullnægjandi skýringar á þessu voðalega atviki. Vér krefjumst þess í nafni heilsu og velferðar íslensku þjóðarinnar að þessum óttalega vökva verði helt niður í niðurhellingarstöðinni á Akureyri. Undirskrift 25 kvenmannsnöfn.
Skeyti frá blaðinu Norðurhjara, Djúpvík, til formanns kvenfélagasambands bjórbindindiskvenna að Guðrúnarstöðum vestan Helkunduheiðar, pr Akureyri.
Háttvirtu frúr: Það var ekki bjór, heldur arsenik.
Virðingarfyllst, ritstjóri Norðurhjarans, Djúpvík.
Svar frá Kvenfélagasambandinu, Guðrúnarstöðum, osfrv.
Til herra ritstjóra blaðsins Norðurhjara, Djúpvík. Guði sé lof það var bara arsenik. Stjórnin.“
Þó að jafndramatískir og alvarlegir hlutir hafi sem betur fer ekki gerst þá sýnir þessi frásögn vel hvernig viðhorfin hafa orðið og álit ýmissa á skaðsemi bjórs er úr öllu samhengi við raunveruleikann. Þó að í frv. því sem hér ræðir um felist einungis þær breytingar á áfengislögum að innflutningur, bruggun og sala bjórs verði heimiluð með þar til greindum skilyrðum er það skoðun flm. að verði frv. samþykkt beri svo fljótt sem auðið er að undirbúa sérstakt frv. um bjór þar sem tilgreind verði gjaldtaka ríkissjóðs af bjórframleiðslu, sett almenn ákvæði um skilyrði til að fá ölgerðarleyfi, svo og skilgreiningar á flokkun bjórs eftir styrkleika hans. Við leggjum jafnframt til að gildistaka laganna verði ekki fyrr en 1. október 1988 til þess að innlendir framleiðendur fái nægilegt svigrúm til að undirbúa framleiðslu og sölu bjórs. Til greina kemur einnig að okkar mati að leyfa einungis innlendan bjór fyrst um sinn. Nauðsynlegt er að reyna að tryggja sem mesta markaðshlutdeild innlendra framleiðenda og skapa þeim skilyrði til útflutnings. Þetta mundi skapa ný störf og efla öl- og gosdrykkjaiðnað í landinu. Jafnframt því mundu tekjur ríkissjóðs aukast.
Ýmsir hafa talið eðlilegt, og frv. verið lögð fyrir Alþingi þar að lútandi, að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um það hvort leyfa skyldi bjór eða ekki. Í því sambandi vil ég vekja athygli á að áfengisvarnaráð hefur sent, hér áður fyrr, bréf til Alþingis, þar sem segir, með leyfi forseta:
„Hitt er svo annað mál að við kjósum alþingismenn til að setja okkur lög, m.a. áfengislög og þeim ber að axla þá ábyrgð sem þjóðin ætlast til að þeir beri en skjóta sér ekki bak við almenning í máli sem varðar heill og hamingju yngstu kynslóðarinnar og raunar allrar þjóðarinnar.“
Ég tel það þm. til vansa ef þeir, eftir alla þá umræðu sem um þetta mál hefur farið fram ár eftir ár, og málið er að mínu viti nánast rætt í botn, treysta sér ekki til að taka afstöðu til málsins. Skoðanakannanir hin síðari ár sýna allar að um þriðjungur landsmanna er á móti bjór. Um 30% þjóðarinnar ef eingöngu er tekið tillit til þeirra sem afstöðu taka. En tveir af hverjum þremur eða yfir 60% þjóðarinnar eru fylgjandi því að bruggun, sala og innflutningur á bjór verði leyfð. Ég tel þessar skoðanakannanir sýna í raun hver meirihlutavilji þjóðarinnar er í þessu máli. Niðurstöðurnar eru svo eindregnar og ótvíræðar að þó að tekið sé tillit til hugsanlegra skekkjuvalda, þá liggur þó fyrir að meiri hluti fólksins í landinu vill að leyfð verði sala á bjór. Jafnvel þó að meiri hluti fólks væri ekki fylgjandi sölu á bjór tel ég samt að leyfa ætti sölu hans og byggi það á því að þegar um er að ræða leyfðan vímugjafa þá eigi meiri hlutinn ekki að geta ráðið því hvort aðrir vilja hafa eitthvert annað form en hið viðtekna á þessari neyslu. Þetta er spurning um neyslumynstur almennings og ég álít að varðandi það atriði eigi meiri hlutinn ekki að geta sagt stórum minni hluta fyrir verkum. Ég lít á þetta sem spurningu um réttindi einstaklingsins og virðingu meiri hlutans fyrir skoðun og vilja minni hlutans sem er grundvallarundirstaða lýðræðisviðhorfa. Hitt er svo annað mál að allt bendir til þess að hér sé ekki um minni hluta að ræða, eins og ég sagði áðan, heldur mjög aukinn meiri hluta.
Af því sem hér er rakið tel ég því skynsamlegast að Alþingi móti nú þegar stefnu í bjórmálinu og samþykki frv. þetta í samræmi við það sem virðist vera meirihlutavilji fólksins í landinu.
Það sem knýr á um að Alþingi taki afstöðu er að bjórneysla á Íslandi er staðreynd í dag í töluverðum mæli og það þýðir ekki að loka augunum fyrir því. Ef við skoðum aðeins ástandið sjáum við hversu fráleitt er að taka ekki á þessu máli. Nú geta menn keypt létt vín sem eru að styrkleika álíka mikið eða örlítið meira en mundi verða um bjór ef hann yrði leyfður. Til viðbótar þessu er selt töluvert magn af ölgerðarefnum, en þá er ótalið það magn sem árlega er flutt inn af bjór. Samkvæmt upplýsingum sem ég hef aflað mér m.a. frá tollgæslunni voru fluttar inn til landsins 1979–1980 413 400 flöskur af bjór. Þarna er Keflavíkurflugvöllur ekki inni í myndinni, en þar er áætlað að geti munað um 10 000 flöskum. Ég tek fram að á þeim tíma var innflutningur bundinn við áhafnir flugvéla, en síðan hafa farþegar fengið að taka þennan mjöð með sér. Síðasta talan sem ég hef er frá árinu 1983, en þá voru fluttar inn löglega 1 milljón 360 þús. flöskur eða yfir 500 þús. lítrar af bjór. Það eru um sex flöskur á hvert mannsbarn í landinu og neysla rúmlega tveir lítrar á mann af bjór á ári. Það er ljóst að nú er þessi innflutningur enn meiri m.a. vegna þeirrar rýmkunar sem gerð hefur verið á innflutningi á íslenskum bjór. Þeir sem best þekkja áætla að löglegur innflutningur á bjór sé nú yfir 2 milljónir bjórflöskur á ári eða um 800 þús. lítrar af bjór yfir árið. Til viðbótar þessu vita margir að mjög miklu magni af bjór er smyglað til landsins, en hvað það er mikið er erfitt að gera sér grein fyrir. Mér kæmi þó ekki á óvart að það væri annað eins magn. Þessu til viðbótar má benda á ferðamenn sem neyta bjórs erlendis og íslenska námsmenn og fleiri. Þá er ótalinn sá leki sem kemur frá varnarliðinu og erlendum sendiráðum. Þegar allt kemur til alls má áætla að bjórneysla hér á landi fyrir hvern íbúa geti verið um eða yfir 6 lítrar á ári eða um 10% af heildarneyslu Svía svo dæmi sé tekið, en Svíar eru sautjánda mesta bjórneysluþjóð heims.
Í dag er bjórneysla og neysla áfengis af sama styrkleika og bjór eða svipuðum staðreynd. Fyrir þessari staðreynd þýðir ekkert að loka augunum. Af þeim sökum verður að marka þá stefnu sem er í samræmi við tíðarandann. Það þýðir ekkert og ég hygg að það sé til skaða að berja höfðinu við steininn. Þegar stór hluti þjóðarinnar vill ákveðið neyslumynstur finnur fólkið þeirri neyslu farveg, jafnvel þó það sé ólöglegt. Þetta sýnir reynslan alls staðar, bæði á bannárunum hér á landi sem og annars staðar. Þetta sýna þær tölur sem ég hef hér rakið.
Í bókinni sem ég vitnaði til áðan, The World Guide of Beer, segir um bjórneyslu Íslendinga, með leyfi forseta:
„Fyrr á öldum þótti það sýna mikla gestrisni á Íslandi að bjóða gestum upp á bjór. Í dag eru hlutirnir því miður öðruvísi. Aðeins má selja öl sem ekki hefur meiri styrkleika en 2,25% vínanda að rúmmáli. Pólarbjórinn, sem framleiddur er í landinu, er bara til útflutnings.“ Og síðan kemur: „Í raun getur þó hver sá sem ætlar sér það komist yfir bjór ef hann vill það.“
Þetta var árið 1979, en síðan þá hefur bjórstreymið orðið enn meira til landsins. Stundum er sagt að glöggt sé gests augað, en þetta er það sem þeir er önnuðust útgáfu bókarinnar öfluðu sér upplýsinga um, staðreynd sem æðimargir skjóta sér undan að kannast við. Þessi tvískinnungsafstaða varðandi bjórinn þýðir því í raun að tekjur ríkissjóðs af bjór eru nær engar. Stór hópur fólks verður lögbrjótar með því að flytja inn og veita viðtöku smygluðum bjór. Innlendir framleiðendur eru að mestu leyti dæmdir úr leik. Þetta er afleiðing þess tvískinnungsháttar og þess að hið háa Alþingi hefur ekki treyst sér til að taka af skarið í þessu máli.
Ég vek athygli á því að það frv. sem hér er flutt er með nokkuð öðrum efnisákvæðum en frv. sem flutt var á 108. löggjafarþinginu af þeim Birni Dagbjartssyni og Stefáni Benediktssyni, m.a. vegna þess að í 1. gr. þess frv. er við það miðað að heimilt sé að flytja inn og selja áfengt öl eingöngu á styrkleikabilinu 4–5%. Mér finnst það með öllu óeðlilegt, ef gera á breytingar á áfengislögunum nú, að binda það á milli þessara prósentutalna, með öllu óeðlilegt. Ég sé engin rök mæla með því sérstaklega. E.t.v. er mesta vandamálið í sambandi við bjór það að ákveðinn hluti þjóðarinnar lítur ekki á bjór sem áfengi. E.t.v. var það rétt mat hjá Svíum á sínum tíma að afnema mellanöllet vegna þess að það var af þeim styrkleika sem almennt var litið á meira sem svaladrykk en áfengi. En það er mjög mikilvægt að undirstrika að bjór er að sjálfsögðu áfengi og ber að meðhöndla sem slíkt. Það er óheppilegt að binda þetta í þeirri prósentu sem þeir Björn og Stefán lögðu til í frv. sem ég vísaði til vegna þess að það er til þess fallið að fólk líti á bjór með öðrum hætti en þeim að um vímugjafa sé að ræða. Mér finnst eðlilegra, ef gerð er breyting á áfengislögunum, að það sé þá miðað við að bruggun og sala á öli sé heimil alveg frá núll komma eitthvað prósent og upp í þann styrkleika sem hægt er að brugga. Ef einhverjar takmarkanir ættu að vera ætti það að gerast gagnvart veikasta hluta bjórsins, þ.e. gagnvart því öli sem er örlítið sterkara en pilsnerinn okkar. Þar er hættan mest, að fólk líti ekki á sterkan drykk sem áfengi heldur sem svaladrykk.
Ég legg áherslu á brýna nauðsyn þess að vel sé unnið að vörnum gegn misnotkun áfengis, en það er ekki sérstakt mál í sambandi við þá brtt. á afengislögunum sem hér liggur fyrir. Vandamálin eru nú þegar svo alvarleg að ríkisvaldið verður að láta meira af hendi rakna til fræðslu og forvarnarstarfs í þessum efnum svo og aðra aðstoð.
Í frv., sem flutt var á 108. löggjafarþinginu og ég hef hér minnst á, um breytingu á áfengislögum, frá þeim Birni Dagbjartssyni og Stefáni Benediktssyni, var ákveðið í 6. gr. að verja sem svarar 1 % af skatttekjum ríkissjóðs vegna framleiðslu og sölu áfengs öls til fræðslu um skaðsemi áfengis. Í því frv. sem hér er flutt er þetta ekki lagt til. Í fyrsta lagi er ekki talið heppilegt að hafa um þetta ákvæði og marka þar með ákveðinn tekjustofn. Nauðsyn er jafnvel á hærri framlögum en gat um í 6. gr. frv. þeirra Björns og Stefáns. En það verður jafnan að vera á valdi stjórnvalda, fjárveitingavaldsins í landinu, hvernig það vill skipa þessum málum. Það er ekki hægt að afsala sér eða framselja það í eitt skipti fyrir öll og það er óheppilegt að setja upp fleiri markaða tekjustofna.
Ég ítreka það síðan að ég vona að þetta frv. fái afgreiðslu á þessu þingi og mælist til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til allshn. deildarinnar.