15.02.1988
Sameinað þing: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4559 í B-deild Alþingistíðinda. (3159)
16. mál, kostnaður við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríksson
Steingrímur J. Sigfússon:
Hæstv. forseti. Það er orðið ákveðið vandamál þegar maður tekur þátt í þessari flugstöðvarumræðu áfram hve mikið af skjalasafninu maður á að taka með sér hverju sinni og hafa við höndina. Ég fer þó ógjarnan í ræðustólinn án þess að hafa með mér þjóðhátíðarútgáfu Morgunblaðsins frá 12. apríl 1987 þegar út kom eitthvert glæsilegasta sérrit sem þetta stærsta blað landsins hefur nokkurn tímann birt með miklu af fallegum myndum og viðtölum og sennilega fleiri hástemmdum lýsingarorðum en oft hafa verið sett á blað á einum degi á Íslandi um glæsileik og kosti þessa mikla mannvirkis og hvílík blessun það mundi nú verða landi og lýðum, hvursu vel hefði þar verið að verki staðið á allan hátt og hvursu ánægjulegt þetta væri allt saman svona rétt fyrir kosningarnar. Ég ætla alla vega að hafa þetta hér við höndina ásamt fleiri gögnum. Það gæti komið sér vel að rifja þar upp eina eða tvær setningar, t.d. úr ræðu hæstv. núv. samgrh.
Þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar, sem hæstv. fjmrh. bað um að unnin yrði, kom út, vakti hún í senn auðvitað óhug en líka vonir um það að á því alvarlega máli, sem þá lá fyrir að tengdist byggingu þessarar flugstöðvar, yrði tekið og e.t.v. með nýjum hætti og myndugri hætti en við Íslendingar höfum oftast átt að venjast þegar upp koma slík vandræðamál.
Þar var á ferðinni ítarleg og vel unnin skýrsla eftir langa og rækilega skoðun á þessu máli, sett fram á skýran og hlutlægan hátt. Það vakti vissar vonir um að málinu yrði fylgt eftir og það gert sem gera þarf til þess bæði að öll kurl kæmu til grafar í þessu einstaka máli og það yrði hægt að fyrirbyggja með öllum tiltækum ráðum að slíkt gæti hent aftur.
Skýrslan bendir á þær spurningar sem ekki hafi verið svarað með fullnægjandi hætti og leggur til ýmsar úrbætur þegar staðið er í slíkum framkvæmdum. Nú verð ég hins vegar að segja eins og er að mér virðast öll viðbrögð stjórnvalda einkum og sér í lagi ríkisstjórnar og stjórnarmeirihlutans hér á Alþingi benda til þess að það eigi að láta þar við sitja. Menn ætla að láta það duga að fá skýrslu um málið sem í sjálfu sér upplýsir að mjög alvarlegir hlutir hafi þarna átt sér stað, en síðan verði látið þar við sitja.
Þessi skýrsla, ef svo má að orði komast, sem hæstv. utanrrh. leggur fyrir þingið að beiðni nokkurra hv. þm. - hv. þm. Páll Pétursson notaði orðið „bréf“ og hefur sennilega viljað forðast það að kalla þetta skýrslu, mér liggur við að gera slíkt hið sama, tala um þennan pappír, 16. mál, þskj. 303 - er auðvitað ákaflega óburðugt og ómerkilegt plagg í raun og veru eins og þegar hefur verið rætt hér á hinu háa Alþingi.
Ég hafði vænst þess að hæstv. utanrrh., sem hefur nú haft alldrjúgan tíma til að skoða þessa afurð síns ráðuneytis, mundi við þessa umræðu um skýrsluna gera e.t.v. eitthvað ítarlegar grein fyrir afstöðu sinni og ráðuneytisins en lesa má út úr þessari skýrslu. Svo var ekki gert.
Ég held því að menn hljóti þá að líta svo á sem þetta sé málsvörn hæstv. utanrrh. eins og hún leggur sig, þetta litla plagg, þskj. 303. Þá er auðvitað óhjákvæmilegt að spyrja hæstv. utanrrh.: Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að svara fyrir þann mun sem er á þessum tveimur opinberu skýrslum, annars vegar skýrslu Ríkisendurskoðunar og hins vegar skýrslu ráðuneytisins? Það gengur auðvitað ekki að tvær opinberar skýrslur stangist á í veigamiklum atriðum þegar svona hlutir eru hér á ferðinni. Það er alveg ljóst að fullyrðingar í skýrslu hæstv. ráðherra stangast á við niðurstöður Ríkisendurskoðunar. Og eins og þegar hefur komið hér fram þá stendur Ríkisendurskoðun við sína skýrslu í öllum greinum. Það hefur verið upplýst á fundum með formönnum þingflokka hér á Alþingi og jafnframt kom það fram í máli hv, síðasta ræðumanns.
Þess vegna sleppur hæstv. ráðherra að mínu mati einfaldlega ekki með það. Það gengur auðvitað ekki að hann ætli að láta líta svo út sem þetta sé allt í besta lagi, að við þessa skýrslu, þessa malamyndavörn sem þar er fram færð í skýrslu ráðherra eða svari við skýrslubeiðninni, verði látið sitja.
Ég fór fram á það fyrr í vetur, virðulegur forseti, að hæstv. utanrrh. drægi til baka þennan pappír sinn og léti skoða hann betur og dreifði síðan öðrum sem væri meira í samræmi við raunveruleikann. Ég taldi mig hafa sýnt fram á rangfærslur í þessu skjali. Þær standa enn og þær hafa ekki verið leiðréttar. Ég bendi hæstv. utanrrh. á bls. 2 í þessari skýrslu og ég spyr hann aftur: Er sú uppsetning sem þar er viðhöfð við hæfi, að setja áætlanir byggingarnefndar um byggingarkostnað á hverju ári 1984–1987 upp með þeim hætti sem gert er? Og segja síðan: Þessar áætlanir byggingarnefndar, sem hún lagði fyrir Fjárlaga- og hagsýslustofnun, gerðu því glögga og raunsæja grein fyrir byggingarkostnaði. Um umframkostnað samanborið við þessar áætlanir er því ekki að ræða. En gallinn er bara sá að í töflunni eru óskir byggingarnefndarinnar tíundaðar, ekki niðurstaða fjárveitingavaldsins. Það skakkar í einu tilfelli tæpum 300 millj. kr.
Á árinu 1986 fór byggingarnefndin fram á framkvæmdir fyrir 1 milljarð kr., reyndar rúman. Niðurstaða fjárlaga varð 710 milljónir. Engu að síður eru hlutirnir settir fram í þessari skýrslu með þeim hætti eins og óskir byggingarnefndarinnar séu það sem á að ráða úrslitum og miðað við þessar óskir sé ekki um umframkostnað að ræða.
Hér er auðvitað svo augljóslega verið að reyna að slá ryki í augu manna að ég held að svona uppsetning á opinberu skjali gangi ekki. Þó ekki væri annað en þetta eina atriði væri það full ástæða til þess að draga þessa skýrslu til baka og láta í öllu falli prenta hana upp þar sem búið væri að breyta þessari uppsetningu, þessari tölu. Reyndar er það ýmislegt fleira sem ætti þá að hverfa út úr þessari skýrslu, til að mynda fullyrðingar um það að skýrslan, jafnómerkileg og hún nú er, sýni glöggt, eins og sagt er á bls. 5, að flestar þær fullyrðingar sem fram hafa komið síðustu daga, vikur og mánuði um byggingarframleiðslukostnað Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar séu rangar.
Þarna er ekki farið í manngreinarálit. Þarna er einfaldlega fullyrt að flestallt það sem haldið hafi verið fram um þessi mál, annað en það sem byggingarnefndin hefur sagt, væntanlega, sé rangt. Þarna var ekki undanskilin skýrsla Ríkisendurskoðunar. Hæstv. ráðherra tók það svo fram í sinni framsögu fyrir plagginu að hann ætti ekki við Ríkisendurskoðun eða að ekki bæri að líta svo á sem þessi ummæli næðu yfir skýrslu Ríkisendurskoðunar. En hið prentaða mál gerir engan greinarmun þarna á og það er að mínu mati ekki við hæfi að setja hlutina þannig fram.
Ég held að hæstv. ráðherra verði að reyna aðeins betur en hann gerði hér í upphafi að skýra þetta tvennt út, hvernig hann vill fara með þann mismun sem er á þessum tveimur opinberu plöggum og þessa villandi framsetningu sem þarna er í skýrslunni.
Ég vil einnig aftur beina spurningu til hæstv. utanrrh. varðandi fréttatilkynningu frá þessum undirmönnum ráðherrans sem var send fjölmiðlum 14. ágúst sl. frá byggingarnefnd flugstöðvarinnar. Þar voru gerðar svo grófar tilraunir til þess að villa um fyrir mönnum að það verður að mínu mati varla við það unað að opinber nefnd standi þannig að hlutunum, þegar byggingarnefnd setur það fram að kostnaðaráætlun flugstöðvarinnar á árinu 1983 hafi hljóðað upp á 42 millj. bandaríkjadala. Og síðan eru framreiknaðar frá því ári allar verðhækkanir sem síðan hafa orðið.
En hver er staðreynd málsins? Staðreyndin er sú að inni í þessari tölu, 42 millj. dala, eru 8,5 millj. upp í áætlaðar verðhækkanir á byggingartíma. Hin eiginlega kostnaðaráætlun hljóðar upp á 33,5 millj. Síðan er gert ráð fyrir verðhækkunum á byggingartíma upp á 8,5 millj. Engu að síður setur þessi nefnd í opinberri fréttatilkynningu fram fullyrðingu um það að kostnaðaráætlunin hafi verið upp á 42 millj. dala. Hér er farið rangt með og það getur ekki verið að menn sem hafa unnið að þessum málum í mörg, mörg ár viti ekki betur. Ef þeir gera það ekki eru þeir ekki starfi sínu vaxnir. Að mínu mati, þó ekkert annað kæmi til en þessi framsetning, hefðu allir byggingarnefndarmennirnir sem stóðu að útsendingu þessarar fréttatilkynningar átt að segja af sér samstundis og það var ljóst að þeir höfðu sent frá sér opinbera fréttatilkynningu þar sem farið var rangt með, beinlínis lagðar fram villandi upplýsingar til að reyna að bæta málstað nefndarinnar.
Hæstv. ráðherra vill e.t.v. svara ofurlítið til um þetta. Er til í dæminu að hann beini þeim tilmælum til þessara höfðingja sem sendu frá sér þessa fréttatilkynningu að þeir dragi hana formlega til baka þó seint sé, biðjist afsökunar á því að hafa sett fram rangar upplýsingar og geri þó a.m.k. það til að bæta það sem að vísu er næstum því ófyrirgefanleg framkoma af mönnum í þeirra stöðu?
Herra forseti, mig langar til að spyrja hæstv. utanrrh. lítillega út í eina hlið þessa máls sem ekki hefur verið mikið til umræðu. Það varðar hönnunarþátt verksins og skipulagslög og byggingarlög í landinu. Það skyldi þó ekki vera þannig ef farið væri aðeins ofan í saumana á þessu máli að þar hafi verið staðið nokkuð sérkennilega að hlutunum. Það er rétt að muna eftir því í þessu sambandi hvers eðlis þetta mannvirki er, að þetta er byggt sem hernaðarmannvirki og vegna þeirra ákvæða sem hér gilda um uppbyggingu hernaðarmannvirkja í landinu sem með sérstökum lögum eða samningum sem hafa lagagildi eru færð alfarið og einhliða undir utanrrh. Þar með eru í raun numin úr gildi ákvæði annarra íslenskra laga. Eins og margoft hefur komið fram þegar sveitarfélög og aðrir slíkir aðilar láta reyna á rétt sinn gagnvart einstökum lögum er ævinlega litið svo á að varnarsamningurinn, viðaukar hans sem hafa lagagildi, taki af lögsögu hinna einstöku fagsviða í slíkum tilvikum.
Þannig hefur það verið með skipulagsmál og framkvæmd byggingarlaga og skipulagslaga innan hinna svonefndu varnarsvæða að þau hafa ekki verið virt. Árið 1981 var þáv. hæstv. utanrrh. bent á það að framkvæmdir á varnarsvæðunum hefðu í raun brotið í bág við byggingarlög og skipulagslög frá upphafi vega. Og þetta varð að nokkuð óþægilegu máli fyrir hæstv. þáv. utanrrh. Niðurstaðan varð sú að búið var til nýtt „apparat“, svonefnd „byggingarnefnd varnarsvæða“, ef ég kann að nefna þessa stofnun rétt, til þess að bjarga þessu í horn og vísa þangað þeim verkefnum sem annars ættu að fara fyrir byggingarnefndir sveitarfélagana á viðkomandi svæðum. Og hvernig standa þau mál þá gagnvart þessu mannvirki? Þau standa auðvitað þannig að byggingarnefnd sveitarfélaga á þessu svæði hefur aldrei samþykkt neinar teikningar að þessari flugstöð. Hún hefur aldrei fengið um þær að fjalla, sbr. dóma þar um eða málshöfðun sem út af því hefur gengið.
Mig langar að spyrja líka vegna þess að til er í landinu embættismaður sem heitir húsameistari ríkisins og er aldrei nema arkitekt þessa mannvirkis. Nú vill svo sérkennilega til að þessi sami opinberi embættismaður situr í þessari byggingarnefnd varnarsvæða og hann situr líka eðli málsins samkvæmt í skipulagsstjórn ríkisins. Og vegna þeirrar sérkennilegu málsmeðferðar, sem viðhöfð hefur verið í þessu tilviki eins og öðrum innan varnarsvæðanna, hafa byggingarnefndir t.d. Miðneshrepps eða önnur slík apparöt aldrei samþykkt neinar teikningar að þessari flugstöð. Ég vil því spyrja: Hafa byggingarnefndarteikningar verið samþykktar að flugstöðinni? Svarið er nei. Þær hafa aldrei verið samþykktar. Hverjir hafa þá fjallað um þær hliðar málsins? Byggingarnefnd varnarsvæða. Húsameistari ríkisins ásamt með öðrum höfðingjum hefur fjallað um sín eigin hugarverk í byggingarnefnd varnarsvæða. Og ég vil spyrja um ákvæði skipulagslaga. Hefur deiliskipulag verið samþykkt af þessu byggingarsvæði? Svarið er auðvitað nei. Þar hafa menn líka stytt sér leið.
Hér hefur þar af leiðandi verið staðið mjög óvenjulega að hlutunum. Venjubundin málsmeðferð þegar í hlut eiga opinberar íslenskar framkvæmdir hefur ekki verið virt vegna þess að þetta mannvirki er sett undir utanrrn. og varnarmálaskrifstofuna og það apparat allt saman en samgrn., sem eðli málsins samkvæmt hefði átt að fjalla um þetta, hefur þar hvergi nærri komið.
Núv. hæstv. samgrh. hefur að vísu ekki haft hátt um það að hann telji að þetta eigi að vera samgöngumannvirki eða ég hef ekki heyrt það, en það kann nú að vera af einhverjum öðrum ástæðum en þeim sem hæstv. forverar hans notuðu sem rökstuðning á sínum tíma. Auðvitað er það fullkomlega óeðlilegt að svona mikilvægt samgöngumannvirki fyrir þjóðina skuli vera með þessum hætti sett út undan og væri rétt að breyta því nú þó seint sé. En þetta held ég að hæstv. ráðherra ætti að fræða okkur ofurlítið nánar um. Ég er alveg viss um að hann hefur kynnt sér þetta rækilega og farið ofan í saumana á þessu vegna þess að þegar jafnaugljós mistök hafa átt sér stað í hönnunarþætti framkvæmdanna, og Ríkisendurskoðun telur að þar sé að finna einn af þeim þáttum sem fór úr böndunum, þá er eðlilegt að spurt sé: Hvernig var farið með teikningar og áætlanir á þessu sviði? Ég þykist hafa rakið það nokkuð hvaða málatilbúnaður var þar hafður uppi og það vekur líka spurningar um þátt einstakra manna eins og húsameistara ríkisins sem er þarna á öllum vígstöðvum ef svo má að orði komast.
Ég hefði einnig haft gaman af því að fá um það upplýsingar ef hæstv. forsrh., sem mun vera yfirmaður húsameistara, hefði nú heiðrað okkur hér með nærveru sinni: Hvernig voru skilin milli embættisins, embættis húsameistara ríkisins, annars vegar og arkitektsins Garðars Halldórssonar hins vegar? Að hve miklu leyti er Garðar Halldórsson sem einstaklingur og arkitekt höfundur hugverksins og teikninganna og vann það sem slíkur og að hve miklu leyti var hið opinbera embætti húsameistara ríkisins framkvæmdaaðili í þessum efnum? Af lestri þeirra skýrslna sem ég hef hér fyrir framan mig liggur það ekki ljóst fyrir í mínum huga hver hefur gert hvað í hverju einstöku tilfelli.
Herra forseti. Það er víðar verið að byggja flugstöðvar en á Möltu. Það eru fleiri þjóðir en við Íslendingar sem eru að byggja flugstöðvar. Vestur í Bandaríkjunum var líka byggð flugstöð og það hefur verið vitnað til hennar fyrr í þessum umræðum. Það er í Harrisburg í Bandaríkjunum. Og nú vill svo merkilega til að ég hef fengið allmiklar blaðaúrklippur, umræður um þá flugstöð. Það eru víðar vandræði í sambandi við nýjar flugstöðvar en á Íslandi, víðar koma fram svona tæknilegir ágallar og víða þrasa menn um þá hluti. En það merkilega við þessa flugstöð, sem nýlega var opnuð í Harrisburg í Bandaríkjunum, er það að þó að ýmissar óánægju hafi gætt með ákveðna hluti þeirrar framkvæmdar, þá kostar mannvirkið ekki nema 14 millj. bandaríkjadala. Og þar er allverulegur munur á þeirri tölu sem við stöndum frammi fyrir, flugstöðinni í Keflavík. Ég get ekki stillt um það, virðulegur forseti, að grípa niður í blaðaúrklippu sem ég hef fengið frá Bandaríkjunum um þessa flugstöðvarbyggingu í Harrisburg því að þar stendur á einum stað, með leyfi forseta, og ég verð því miður að lesa þetta á ensku:
„Critics and the arehiteet of the building contend the building was open before it was ready. Opening the long awaited terminal had been a goal of the Thornborough administration.“
Og í lauslegri þýðingu: „Gagnrýnendur og arkitekt byggingarinnar halda því fram að hún hafi verið opnuð áður en hún var tilbúin. Opnun þessa mannvirkis, sem lengi var búið að bíða eftir, var sérstakt takmark stjórnar Thornboroughs. M.ö.o.: Þarna voru menn að flýta sér. Kannski voru kosningar í nánd í Harrisburg eins og víðar. Þetta er eitt af því sem veldur mönnum vandræðum og rifist er um þarna vestan hafs.
Munurinn er hins vegar sá og mér segir svo hugur um að þar verði farið ofan í saumana á hlutunum og þegar upp verði staðið verði einhver látinn sæta ábyrgð fyrir það sem úrskeiðis hefur farið ef það telst þá svo mikið að rétt sé. Við stöndum hins vegar frammi fyrir þeirri spurningu hér og nú hvort menn ætla að láta það gott heita að niðurstöður Ríkisendurskoðunar veki í raun og veru jafnmörg svör um ábyrgð, um það hverjir skuli sæta henni og hvort menn ætli að láta það viðgangast að málið verði látið deyja út af eða þaggað niður á því stigi.
Ég minni á tillögu sem liggur nú fyrir hv. utanrmn. Alþingis um það að þingið kjósi sérstaka rannsóknarnefnd til að fara ofan í saumana á þeim hlutum sérstaklega, þ.e. hverjir skuli sæta ábyrgð og hvort þeir aðilar, háttsettir ýmsir, sem þessu máli tengjast geti eftir sem áður sinnt opinberum embættum.
Ég verð að segja það alveg eins og er, herra forseti, að ég held að það sé að sönnu mikið áfall fyrir þjóðina að hafa fengið svona dýra og vonda flugstöð þó að það bætist nú ekki við að þetta verði öllum almenningi hrapallegt dæmi um skort á siðferðisþreki æðstu ráðamanna þjóðarinnar. Og með skorti á siðferðisþreki á ég við það að ef þessi stofnun hér, Alþingi, ætlar í þessu máli og þessu máli sérstaklega, þar sem ýmsir mjög háttsettir aðilar eiga hlut að máli, að láta þjóðina horfa upp á það að hlutunum verði sópað undir teppið og ekkert gert eina ferðina enn, þá verður það sennilega meira áfall og þyngra en flest önnur af sambærilegu tagi. Ég held að einmitt vegna þess að hér eiga beinan hlut að máli stjórnmálaforingjar og háttsettir opinberir embættismenn sé meiri nauðsyn en í flestum öðrum tilfellum að fá alveg hreinar niðurstöður í þessu máli. Það gengur auðvitað enn síður að láta menn horfa upp á það að málunum sé sópað undir teppið vegna þessa. Því er ábyrgð hv. alþm. mikil ef þeir með upplýsingar af því tagi sem fram koma í skýrslu Ríkisendurskoðunar í höndunum ætla að láta þar við sitja. Þar er sagt að á þessu og á hinu hafi Ríkisendurskoðun ekki fengið skýringar, t.d. ekki á því af hverju vitneskju um stórkostlega umframeyðslu fjár var árum saman haldið leyndri fyrir fjárveitingavaldinu. Og á sem sagt að láta þar við sitja eða ekki? Um það snýst í raun og veru spurningin. Þessi skýrsla sem hér er sérstaklega á dagskrá breytir í raun og veru engu þar um. Þetta er aumt plagg eins og ég hef þegar rakið, þetta er yfirklór í bland við ranga eða villandi framsetningu upplýsinga. Ég held að það sé í raun best að láta sem þessi skýrsla sé ekki til, það væri best ef það væri hægt. Að vísu er þetta opinbert þingplagg og verður sjálfsagt að meðhöndlast sem slíkt.
En niðurstöður Ríkisendurskoðunar liggja fyrir. Ríkisendurskoðun telur sig engu hafa við þær að bæta, stendur við þær í öllum atriðum þannig að ég kýs að halda mig við það sem sannara er, það sem réttast er og ræða málið á þeim grundvelli. Og þar eru að mínu mati opnar spurningar sem verður að fá svör við. Það er eðli málsins samkvæmt ekki hlutskipti Ríkisendurskoðunar og ekki tilgangur með þeirri stofnun að leita svara við því sérstaklega hverjir skuli sæta ábyrgð eða hverjum beri að axla ábyrgð á tilteknum hlutum. Það gerir ekki stofnun af tagi Ríkisendurskoðunar, en það kemur að sjálfsögðu til kasta Alþingis, bæði vegna þess að hér er opinber framkvæmd á ferð og Alþingi er líka sú stofnun sem hefur yfir Ríkisendurskoðun að segja, beint og sérstaklega.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Ég vænti þess að hæstv. utanrrh. svari þeim spurningum sem ég hef lagt fyrir hann sérstaklega um það hvernig þessi bygging tengist byggingarlögum og skipulagslögum og verður fróðlegt að heyra hversu vel hæstv. utanrrh. hefur kynnt sér það hvernig með þau mál var farið, en það er einn verulega stór angi þessa máls og tengist opinberu embætti af hæstu gráðu.