15.02.1988
Sameinað þing: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4580 í B-deild Alþingistíðinda. (3168)

Reglur LÍN um barnsmeðlög

Guðmundur G. Þórarinsson:

Herra forseti. Fyrir liggur álit frá Lagastofnun Háskólans um það að stjórn Lánasjóðsins sé ekki heimilt, hafi ekki til þess lagaheimild að beita skerðingarákvæðum við úthlutun úr sjóðnum vegna meðlaga. Mér þykir mjög óeðlilegt að þessum skerðingarákvæðum sé beitt eftir að slíkt álit liggur fyrir þó ég geri mér vel grein fyrir því að álit sem þetta er ekki endilega ótvírætt og engan veginn dómsorð.

Ég vil taka undir með menntmrh. þegar hann sagði að þetta væri fyrst og fremst sanngirnismál. Ég hefði kosið að tekið væri tillit til þessa álits Lagastofnunar Háskólans miðað við þá dagsetningu sem á því áliti er. Ég vil benda á það að hér er um afar litla upphæð að ræða fyrir Lánasjóðinn, líklega 13–15 millj. kr. og ég vil jafnframt benda á að þetta skerðingarákvæði kemur harðast niður þar sem síst skyldi, í flestum tilvikum einstæðar mæður sem sjaldnast hafa úr miklu að spila og ekki veitir af þeirri aðstoð sem unnt er að fá.

Ég vil því beina þeim orðum mínum til menntmrh. að hann beiti áhrifum sínum í þá átt að þessi skerðingarákvæði verði afnumin hið fyrsta, helst afturvirk með tilliti til dagsetningar álits Lagadeildar Háskólans. Og ég vil hafa það mín lokaorð hér að mér sýnist á bréfi menntmrh. til stjórnar Lánasjóðsins að viðhorf hans sjálfs sé ótvírætt í þessu máli og vonast til að hann beiti áhrifum sínum í þá átt að skerðingarákvæðin verði afnumin.