15.02.1988
Sameinað þing: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4582 í B-deild Alþingistíðinda. (3170)
Reglur LÍN um barnsmeðlög
Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Herra forseti. Ég vil aðeins leggja orð í belg í þá umræðu sem hér hefur farið fram um úthlutunarreglur Lánasjóðs ísl. námsmanna og benda á örfá atriði í því sambandi.
Megintilgangur Lánasjóðsins er að jafna aðstöðu fólks til náms óháð efnahag, búsetu og kynferði. Með þeim reglum sem nú er fylgt er svo sannarlega ekki verið að vinna að þessu markmiði. Deili menn um lögmæti þeirra reglna sem nú eru í gildi sem ég tel reyndar óumdeilanlegar og vísa til mats Lagastofnunar Háskólans á þeim. Hvað sem lögmætinu líður er þetta auðvitað fyrst og fremst mikil grundvallarspurning um réttlæti fyrir þann fjölda einstæðra mæðra sem nú stunda nám á háskólastigi. Það skiptir litlu máli fyrir þá einstæðu foreldra sem þurfa á lánum að halda að til stendur að breyta þessu í vor. Því vil ég skora á hæstv. menntmrh. að beita sér af fullri alvöru fyrir breytingu á þessu nú þegar. Sé miðað við þær reglur sem ætlunin er að taki gildi í vor, gæti hér verið um að ræða um það bil 13,5 millj. sem er tæplega 0,1% af framlagi ríkissjóðs til Lánasjóðsins.
Í starfsáætlun og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir á bls. 20, með leyfi hæstv. forseta: „Menntunaraðstaða verði jöfnuð svo sem kostur er.“
Þetta er aðeins örlítið skref í þá átt. Vil ég því ítreka tilmæli mín og áskorun til hæstv. menntmrh. og raunar allrar ríkisstjórnarinnar um að kippa þessu í liðinn nú þegar.