16.02.1988
Efri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4586 í B-deild Alþingistíðinda. (3179)

60. mál, iðnaðarlög

Frsm. meiri hl. iðnn. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. meiri hl. iðnn. um frv. til laga um breyt. á iðnaðarlögum, nr. 42 18. maí 1978. Frv. er ekki langt. Það er aðeins tvær greinar og lætur vissulega ekki mikið yfir sér og með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa það vegna þess að nokkuð er um liðið síðan það var kynnt. Í 1. gr. frv. segir:

„Við 2. mgr. 4. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

Iðnrh. er jafnframt heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum 3. tölul., enda standi sérstaklega á.“

Og í 2. gr. segir: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Í athugasemdum með frv. segir: „Frv. þetta er flutt til að veita iðnrh. heimild til að veita undanþágu frá skilyrðum 4. gr. iðnaðarlaga um að meira en helmingur hlutafjár í iðnfyrirtækjum hér á landi skuli vera eign manna búsettra á Íslandi.

Orðalagið, sem lagt er til í frv. þessu, er samhljóða undanþáguákvæði því er var í iðnaðarlögum allt frá árinu 1927 þar til ákvæðið féll úr iðnaðarlögum 1978.

Með orðalaginu „enda standi sérstaklega á“ er fyrst og fremst átt við samstarfsfélög íslenskra og erlendra aðila er vinna að nýsköpun.“ Í nái. meiri hl. iðnn. segir m.a. svo:

„Á fund nefndarinnar komu Halldór J. Kristjánsson, yfirlögfræðingur iðnrn., og Baldur Guðlaugsson hrl., formaður nefndar sem forsrh. hefur skipað til að annast heildarendurskoðun á lögum og reglum um fjárfestingar erlendra aðila hér á landi. Þá hafa nefndinni borist umsagnir frá Landssambandi iðnaðarmanna og Alþýðusambandi Íslands.

Ríkisstjórnin hefur markað þá stefnu í starfsáætlun sinni að lög um erlent fjármagn í íslensku atvinnulífi verði endurskoðuð og samræmd. Samkvæmt því er stefnt að því að erlent áhættufé geti komið í staðinn fyrir erlent lánsfé við fjármögnun atvinnufyrirtækja hér á landi.

Ástæða þess að frv. þetta er flutt áður en heildarendurskoðuninni er lokið er sú að á síðustu mánuðum hafa leitað til iðnrn. nokkur innlend fyrirtæki sem hyggja á samstarf við erlend fyrirtæki um iðnrekstur hér á landi þar sem sammæli er um að erlendu aðilarnir eigi jafnan hlut eða meiri hluta. Í einu tilviki hefur jafnvel komið til tals milli aðila að verði ekki heimilt að stofna hér á landi iðnfyrirtæki í jafnri eign aðila verði fyrirtæki stofnað í heimaríki hins erlenda aðila. Því hefur iðnrh. talið brýnt að málið verði afgreitt sem fyrst þannig að ekki þurfi til þess að koma að mikilvæg nýsköpun í iðnaði verði flutt úr landi í tilviki sem þessu.

Við afgreiðslu frv. leggur meiri hl. áherslu á eftirfarandi sjónarmið:

1. Heildarákvæði sambærilegt því sem lagt er til í frv. þessu var í iðnaðarlögum frá 1927 til 1978 þegar ákvæðið féll úr lögum. Nefndin áréttar það sem fram kemur í greinargerð með frv. að orðalagið „enda standi sérstaklega á“ skuli skýra þröngt og gildi fyrst og fremst um samstarfsfélög innlendra og erlendra aðila er vinna að nýsköpun.

2. Heimildarákvæði þetta nær fyrst og fremst til smærri eða meðalstórra fyrirtækja. Varðandi samninga um stóriðju er gert ráð fyrir að sérstök lagasetning þurfi til að koma auk lánsfjárheimildar.

3. Samstarf innlendra og erlendra aðila í iðnfyrirtækjum getur aukið verulega fjölbreytni í útflutningi, flutt inn í landið nýja þekkingu, t.d. á sviði tæknimála, markaðsfærslu og stjórnunar. Enn fremur er það mikils virði að hinn erlendi samstarfsaðili beri hluta af fjárhagslegri áhættu sem atvinnurekstrinum fylgir.

4. Það er eðlilegt og æskilegt að stuðla að því að innlendir og erlendir aðilar taki upp samstarf í nýjum iðngreinum og við endurskipulagningu á starfsemi sem þegar er fyrir hendi. Jafnframt verði tryggt að erlendir aðilar nái ekki tökum á náttúruauðlindum lands og sjávar eins og skýrt er tekið fram í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar.

Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt.“ Undir þetta nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Júlíus Sólnes, Þorv. Garðar Kristjánsson, Egill Jónsson, Karl Steinar Guðnason og Jóhann Einvarðsson.

Hv. þm. Svavar Gestsson skilar sérnefndaráliti á þskj . 544.

Ég legg mjög þunga áherslu á það sem segir í niðurlagi nál. iðnn.: Jafnframt verði tryggt að erlendir aðilar nái ekki tökum á náttúruauðlindum lands og sjávar eins og skýrt er tekið fram í starfsáætlun núv. ríkisstjórnar.

Á fund nefndarinnar kom Baldur Guðlaugsson, formaður þessarar svokölluðu samræmingarnefndar er vinnur að lagasmíð er varðar fjárfestingar erlendra aðila í íslensku atvinnulífi. Lög þessi sem að er unnið eiga að tryggja að auðlindir til lands og sjávar verði í íslenskum höndum og einnig eiga þau að einfalda núgildandi lög um þessi efni þannig að þeim verði sem best komið fyrir í einum lagabálki. Í máli Baldurs kom fram að ekki væri mjög langt í það að þessi nefnd mundi ljúka störfum og skila drögum að frv. til ríkisstjórnarinnar. Í umsögn Alþýðusambands Íslands segir m.a.:

„Miðstjórnin bendir á að nú standi yfir heildarendurskoðun á reglum um fjárfestingu erlendra aðila í íslensku atvinnulífi. Þess vegna telur miðstjórnin ekki rétt að flytja þessar brtt. nú heldur fjalla um þau atriði sem þar um ræðir við endurskoðun reglnanna. Miðstjórnin telur að þar sem um sé að ræða að leysa vanda einstaks fyrirtækis eigi að gera það með sérstökum lögum varðandi viðkomandi fyrirtæki.“

Þetta var umsögn frá Alþýðusambandinu.

Við fengum einnig umsögn frá Landssambandi ísl. iðnaðarmanna og ég ætla að leyfa mér að fara yfir það sem þar segir því að hér er vissulega verið að fjalla um ýmislegt athyglisvert, en þar segir m.a., herra forseti:

„Ljóst er að því hefur ekki verið skýrt skipað í lög hvaða reglur skuli gilda um heimildir erlendra aðila til fjárfestingar í atvinnurekstri hér á landi. Eðlilegt má því telja að sett verði heildstæð löggjöf um þetta efni, eða a.m.k. að ákvæði ýmissa laga, sem um þetta fjalla, verði samræmd. Við lagasetningu af þessu tagi er þó afar brýnt að hinir erlendu aðilar njóti í engu betri starfsskilyrða heldur en íslenskir aðilar þannig að starfsemin verði rekin á jafnréttisgrundvelli.“

Hér segir áfram: „Af frv. því sem hér er til umræðu verður ekki séð að það sé flutt sem liður í því að samræma lagaákvæði um þetta efni. Engu að síður telur Landssamband iðnaðarmanna rétt að það verði samþykkt.

Eins og fram kemur í athugasemdum með frv. var undanþáguákvæðið samhljóða ákvæði í iðnaðarlögum allt frá árinu 1927 þar til það féll niður er núgildandi iðnaðarlög voru sett árið 1978. Með breytingu þessari þrengdust ákvæði iðnaðarlaga meira en ýmissa annarra hliðstæðra lagaákvæða og er ástæða til að færa það aftur til samræmis," segja iðnaðarmenn. Og að lokum: „Þótt Landssamband iðnaðarmanna lýsi sig fylgjandi umræddu frv. hvetur það engu að síður til varúðar á þessu sviði og að ákvæði um að undanþága skuli aðeins veitt þegar sérstaklega standi á verði virt í hvívetna. Landssambandið treystir því að iðnrh., sem með slíkt vald fari, beiti því ekki nema í samráði við samtök iðnaðarins.“

Herra forseti. Ég undirstrika að ákvæði sambærilegt því sem lagt er til í frv., og endurtek það enn og aftur, var í iðnaðarlögum frá 1927 til ársins 1978 er það féll úr lögum og að okkur var tjáð í nefndinni að það hefði fallið út trúlega mest vegna mistaka þá. Menn sögðu okkur einnig sem þarna komu að með því mætti álíta að lögin, þannig breytt, gangi þvert á reglur EFTA.

Mér er það ljóst að í dag geta erlendir aðilar komið inn í íslensk iðnfyrirtæki, ég segi það ekki að þeir geti það alveg hindrunarlaust svona nokkurn veginn á grænu ljósi, en það er hins vegar ljóst að á leiðinni eru ekki óyfirstíganlegar hindranir, vægast sagt. Ég treysti því hins vegar að hæstv. iðnrh. og ríkisstjórn fari vel með það vald sem hér er gefið um mjög skamma stund og að heimildir sem er verið að gefa verði notaðar af skynsemi og fullri hófsemi.