16.02.1988
Efri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4589 í B-deild Alþingistíðinda. (3180)
60. mál, iðnaðarlög
Frsm. minni hl. iðnn. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Á þskj. 544 hef ég skilað nál. minni hl. iðnn. um frv. það til laga um breyt. á iðnaðarlögum sem hér er til umræðu. Ég mun nú, herra forseti, gera grein fyrir þessu nál., en þar segir:
Hinn 2. nóv. sl. mælti iðnrh. fyrir frv. þessu í Ed. Það hefur síðan hlotið meðferð í iðnn. Leggur meiri hl. til að frv. verði samþykkt með ströngum skilyrðum sem fram koma í nál. hans. Minni hl. leggur til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar þar sem eðlilegra sé að ræða mál þetta sem hluta af heildarendurskoðun á reglum um aðild útlendinga að atvinnurekstri hér á landi.
Frv. það sem hér er til umræðu lítur sakleysislega út. Það er aðeins tvær efnisgreinar. Iðnrh. flutti sem aðalrök fyrir frv. í framsöguræðu sinni að hér væri í raun horfið til sömu lagaákvæða og voru í gildi á árunum 1921–1971. Ráðherrann reyndi að láta þetta líta út sem smámál er þingið ætti að geta afgreitt á nokkrum dögum. Ekki féllst þingið á þá málsmeðferð og svo mikill ágreiningur virðist hafa verið í stjórnarliðinu um frv. að nál. meiri hl. sá ekki dagsins ljós fyrr en um jólaleytið. Og málið var snemma tekið út af forgangslistum yfir þau mál sem átti að afgreiða fyrir hátíðar og síðar fyrir þinghlé.
Undirritaður er ósammála iðnrh. um að hér sé á ferðinni smámál. Telur minni hl. að eðlilegra hefði verið að afgreiða málið sem hluta af heildarendurskoðun lagaákvæða um aðild útlendinga að fjárfestingu hér á landi. Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd til þess að vinna að slíkri heildarendurskoðun. Nefndin er að vísu einokuð af stjórnarflokkunum eins og reyndar er venja núverandi ríkisstjórnar. Þó sjá allir að eðlilegra hefði verið að allir flokkar hefðu átt aðild að slíkri endurskoðun laga um þennan mikilvæga þátt efnahags- og atvinnulífsins á Íslandi.
„Frv. það, sem hér er mælt fyrir, varðar brýnt hagsmunamál íslenskra fyrirtækja sem nauðsynlegt er að afgreiða sem fyrst," sagði hæstv. iðnrh. 2. nóv. sl. Þessu sjónarmiði iðnrh., sem kom þannig fram orðrétt í framsöguræðu hans, mótmælti undirritaður strax við 1. umr. hér í deildinni. Enda fór það svo að deildin tók sér eðlilegan tíma til að fjalla um málið.
Ástæðan fyrir því að ráðherrann flutti frv. mun hafa verið sú að forráðamenn fyrirtækisins Lýsis hf. hafa átt í viðræðum við fulltrúa erlends fyrirtækis um samstarfsverkefni. Eðlilegra hefði verið að stuðla að samstarfi fyrirtækjanna með öðrum hætti en þeim að spretta upp iðnaðarlögunum og skapa þannig fordæmi fyrir önnur og stærri fyrirtæki um næstu framtíð.
Þegar iðnaðarlögum var breytt 1978 var fellt niður ákvæði sem heimilaði ráðherra að opna fyrir meirihlutaeign útlendinga í fyrirtækjum. Gunnar Thoroddsen, þáv. iðnrh. og varaformaður Sjálfstfl., mælti fyrir frv. Urðu litlar sem engar umræður um þetta sérstaka ákvæði, þ.e. að fella niður þessa heimild handa iðnaðarráðherra. Væntanlega hafa umræður orðið litlar vegna þess að allir voru sammála um að það væri í alla staði eðlilegt að fella þessa heimild niður. Þá komu því ekki fram neinar tillögur um að halda inni gamla ákvæðinu sem núv. iðnrh. gerir ráð fyrir að gangi aftur í lögunum á nýjan leik.
Eina athugasemdin sem fram kom um þetta efni var frá Halldóri Ásgrímssyni, hæstv. núv. sjútvrh., er hann sagði:
„Einnig er vert að íhuga það aðeins betur sem kemur fram í 4. gr. um skilyrði til þess að reka iðnað. Þar kemur fram að ef félag er hlutafélag, þá skuli enn fremur meira en helmingur hlutafjárins vera eign manna búsettra á Íslandi. Ég hygg að það muni verða tryggara að það væri gerð krafa til þess að viðkomandi menn hefðu verið búsettir hér ákveðinn tíma, því að það er svo að menn geta að vísu sest hér að og verið nýlega komnir hingað til landsins. Ég vildi aðeins varpa því fram að það væri rétt að íhuga hvort ekki bæri að gera það að skilyrði að viðkomandi aðilar hefðu búið hér ákveðinn tíma, t.d. tvö ár eða svo, þannig að það væri ljóst að menn væru raunverulega búsettir í landinu og ætluðu sér að búa hér.“
Þetta var, herra forseti, eina athugasemdin sem fram kom 1978 og hún beindist að því að þrengja lögin en ekki að víkka út heimildir þeirra.
Þegar Gunnar Thoroddsen mælti fyrir frv. til iðnaðarlaga 1978 gerði hann grein fyrir því hvernig að málinu hefði verið unnið og hverjir hefðu komið þar nærri. Virðast það hafa verið flestir forustumenn í atvinnulífi þess tíma - fyrir aðeins 10 árum, það er: Björgvin Frederiksen framkvæmdastjóri, Páll S. Pálsson, samkvæmt tilnefningu Félags ísl. iðnrekenda, Sigurður Kristinsson, samkvæmt tilnefningu Landssambands iðnaðarmanna, Axel Gíslason, eftir tilnefningu Sambands ísi. samvinnufélaga, Guðmundur Þ. Jónsson, eftir tilnefningu Landssambands iðnverkafólks, og Sigurður Guðgeirsson, samkvæmt tilnefningu ASÍ.
Hér voru sem sagt kallaðir til allir þeir sem best þekktu til iðnaðar á þessum tíma þannig að engin leið er að halda því fram, eins og hv. frsm. gerði áðan, að niðurfelling gamla ákvæðisins hafi verið mistök. Frv. er talið samið „að bestu manna yfirsýn“ þar sem fulltrúar launafólks og atvinnurekenda komi við sögu og þetta ákvæði er samþykkt samhljóða hér í þinginu, ágreiningslaust - nema Halldór Ásgrímsson vildi þá þrengja enn frekar heimildir útlendinga.
Undirritaður telur að sjálfsagt sé að hafa samvinnu við útlendinga um einstök verkefni eftir hagkvæmni á hverjum tíma enda sé á engan hátt hróflað við efnahagslegum forsendum sjálfstæðis þjóðarinnar. En um þessi efni eiga að gilda almennar, strangar og skýrar reglur og það er beinlínis fráleitt að eiga slík mál undir geðþótta ráðherra, jafnvel þó um hin smæstu mál sé að ræða.
Fyrir síðasta þingi lá skýrsla um þátttöku útlendinga í atvinnurekstri hér á landi. Í skýrslunni kom glöggt fram að gildandi ákvæði eru í senn óskýr, óljós og ósamstæð. Vísar minni hl. til skýrslu þessarar sem birtist á þskj. 700 frá síðasta þingi.
Nauðsynlegt er hér í prentuðu þskj. að mótmæla sérstaklega túlkun í skýrslunni á þskj. 700 frá síðasta þingi á atvinnufrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar.
Skýrsluhöfundar bera það fyrir sig aftur og aftur að atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar séu með þeim hætti að það sé ekki heimilt að leggja aðrar kvaðir á aðild útlendinga að atvinnurekstri hér á landi en þær sem þegar eru í lögum. Samkvæmt þeim textum, sem er að finna t.d. í riti Ólafs Jóhannessonar, Stjórnskipun Íslands, er þetta ákvæði að öllu leyti réttlægra en t.d. almenna eignarréttarákvæðið, enda er ljóst samkvæmt stjórnarskránni að skerðingu á atvinnufrelsi geta menn orðið að þola bótalaust þó að um slíkt sé ekki að ræða að því er varðar eignarnám á tilteknum eignum manna.
Í bók Ólafs Jóhannessonar, Stjórnskipun Íslands, segir þetta á bls. 468:
„Réttarleg þýðing 69. gr. stjórnarskrárinnar er ekki ýkja mikil. Aðalþýðing hennar er sú að handhófum framkvæmdarvalds er óheimilt að skerða atvinnufrelsi manna, en sennilega hefði sú regla verið talin gilda þó að ekki væri við þetta stjórnarskrárákvæði að styðjast. Eftir orðanna hljóðan eru löggjafarvaldinu einnig settar nokkrar skorður þar sem atvinnufrelsið má því aðeins skerða að almenningsheill krefjist. En þar er þess að gæta að Hæstiréttur hefur talið að löggjafinn ætti sjálfur fullnaðarmat um það hvort því skilyrði sé fullnægt, sbr. hæstaréttardóma VIII, bls. 332. Á meðan sú regla gildir er fremur lítið hald í ákvæði þessu gagnvart löggjafanum. Eru þess fjölmörg dæmi í núgildandi löggjöf að lögð séu meiri eða minni höft á atvinnufrelsi manna. Væri því óneitanlega æskilegt að ítarlegri ákvæði væru sett í stjórnarskrána um atvinnufrelsi.
Í 69. gr. stjórnarskrárinnar felst þó almenn stefnuyfirlýsing stjórnarskrárgjafans. Sú stefnuyfirlýsing getur skipt máli við lögskýringu. Hún leiðir til þeirrar túlkunarreglu að í vafatilvikum beri að telja líkur fyrir atvinnufrelsi.“
Þegar skýrsluhöfundar halda því fram að atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar eigi einnig við rétt útlendinga til atvinnurekstrar hér á landi eru menn viljandi eða óviljandi að misskilja og rangtúlka stjórnarskrána því að auðvitað er atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar aðeins til að tryggja atvinnufrelsi Íslendinga en ekki útlendra aðila á Íslandi. Þegar menn eru farnir að bera fyrir sig stjórnarskrá lýðveldisins Íslands til að tryggja útlendingum atvinnufrelsi og umsvifarétt hér á landi eru þeir býsna langt leiddir, komnir býsna langt frá þeim veruleika sem stjórnarskráin sjálf á að tryggja.
Að öllu samanlögðu leggur minni hl. því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Hafni deildin þeirri tillögu minni hl. leggur hann til að frv. verði fellt.
Ég vil þá næst, herra forseti, víkja örfáum orðum að nál. meiri hl. á þskj. 439 og að þeirri ræðu sem hv. 3. þm. Norðurl. v. flutti áðan.
Í fyrsta lagi vil ég segja það að ég tel það til bóta að meiri hl. skuli lýsa því yfir mjög afdráttarlaust og frsm. meiri hl. að þessi nýju lagaákvæði beri að túlka þröngt. Ég tel það til bóta. Ég tel hins vegar að eitt og annað í nál. meiri hl. sé enn of óljóst og mun aðeins víkja að því og þá fyrst í 1. tölul. þar sem meiri hl. ber það fyrir sig, eins og hv. frsm. gerði aftur og aftur áðan, að hér væri í raun og veru um að ræða gömlu ákvæðin sem voru í lögum frá 1921–1971. Það eru í mínum huga engin rök vegna þess, herra forseti, að nú á árinu 1988 er mun meiri aðsókn í atvinnurekstur á Íslandi af útlendu kapítali en var á þessum árum. Í 1. umr. um þetta mál sem fór fram 2. nóv. sl. benti ég á það hvað hefur orðið gífurleg aukning í tilflutningi erlends fjármagns til atvinnurekstrar í heiminum á undanförnum áratug. Þar er um að ræða margföldun og aftur margföldun. Þess vegna tel ég að það að bera árið 1988 saman við árið 1921, þó það sé allt til ársins 1971, gjörsamlega ósambærilegt og engin rök í þessu máli.
Ég bendi einnig á það varðandi 2. tölul. að meiri hl. er bersýnilega í stórkostlegum vanda þegar hann er að búa til forskrift handa hæstv. iðnrh. sem meiri hl. treystir til að framkvæma þetta rétt og vel, jafnvel þeir úr meiri hl. sem eru úr stjórnarandstöðunni. Ég er mest hissa á þeim. En látum það vera. Meiri hlutinn er í stökustu vandræðum því að hér segir, með leyfi forseta:
„Heimildarákvæði þetta nær fyrst og fremst til smærri eða meðalstórra fyrirtækja.“
Hver á að túlka það hvenær meðalstórt fyrirtæki verður stórt fyrirtæki? Hvað er meðalstórt fyrirtæki? Er það 10, 20, 40 eða 50 manna fyrirtæki? Er það fyrirtæki sem veltir 5 millj. eða 100 millj.? Við hvað er átt? Við hvað á meiri hlutinn? Hvar eru mörkin í þessu efni? Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt að meiri hlutinn rísi hér upp á eftir og geri grein fyrir því, hvar er grensan? Hvað má hæstv. iðnrh. gera í þessu efni? Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að þetta komi fram og ég tel ekki nóg að hæstv. iðnrh. svari fyrir þetta mál vegna þess að auðvitað á hann að hlýða því sem löggjafinn ákveður hér og sérstaklega þessi virðulega deild setur honum skorður. Hann hefur að vísu málfrelsi og tillögurétt en engan atkvæðisrétt því að hér á þessi deild ein um að véla þegar að úrslitunum kemur.
Ákvæðið er loðið. Meiri hlutinn er í vandræðum. Hann veit ekki hvar hann á að setja mörkin, segir: Smærri eða meðalstór fyrirtæki. Kísilmálmverksmiðjan á Reyðarfirði. Hvað er hún? Er hún stórfyrirtæki? Hún hefur verið talin meðalstórt fyrirtæki. Er átt við fyrirtæki af því tagi eða hvað? Um hvað er verið að tala? Meðalstórt miðað við hvað?
Ég ítreka einnig í þessu sambandi það sem segir í umsögn Alþýðusambands Íslands, ítreka það alveg sérstaklega. Auðvitað hefði verið nær að taka þetta mál sem hluta af heildarendurskoðun og auðvitað átti að hleypa öllum flokkum að þeirri heildarendurskoðun. En ef ráðherrann vildi koma þessu sérstaka lýsismáli hér í gegn, sem ég hygg að sé orkubúið á bak við þetta mál, Lýsi hf. hérna á Hringbrautinni - ef ráðherranum var svo mikið í mun að koma því í gegn átti hann að flytja sérstakt frv. um samstarf Lýsis við þetta erlenda fyrirtæki sem ég man varla lengur hvert er en það var nefnt við 1. umr. og ég hygg að það heiti Nova eða eitthvað því um líkt. Þá átti auðvitað ráðherrann að flytja sérstakt mál um þetta samstarfsverkefni en ekki að spretta upp iðnaðarlögunum eins og þau leggja sig. Það hefði verið mikið eðlilegri nálgun þessa máls.
Ég vil einnig, herra forseti, mótmæla því sérstaklega sem fram kemur í ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v. að ákvæðið hafi 1978 fallið út fyrir mistök. Ég tel enga ástæðu til að ætla það. Ég tel þvert á móti að allt bendi til þess, ekki aðeins höfundar málsins, heldur líka umræðurnar og sérstaklega ræða hv. þáv. þm. Halldórs Ásgrímssonar, að það hafi verið vitandi vits sem löggjafinn ákvað að þrengja þessi lagaákvæði á sínum tíma, vitandi vits, opnum huga. Fyrst og fremst auðvitað vegna þess, herra forseti, að á þeim árum var mikil umræða í gangi um aðild útlendinga að fyrirtækjarekstri hér á landi og forustumenn Sjálfstfl. höfðu beitt sér fyrir stofnun Kísilmálmverksmiðjunnar á Grundartanga, voru nokkuð lúnir og mæddir eftir þá umræðu sem þá hafði gengið yfir, og þess vegna var talið rétt að þrengja lagaákvæði þarna fremur en hitt.
Svo vil ég spyrja hæstv. iðnrh.: Hefur hann kynnt sér hvernig útlendingar eru að koma sér inn í íslenskan atvinnurekstur og íslenskar auðlindir núna? Hvað er að frétta af því fyrirtæki sem er auglýst undir nafninu Glitnir hjá Iðnaðarbankanum þar sem augljóst er að erlendir aðilar eru bakdyramegin að koma sér inn í íslenskt atvinnulíf? Ég held að það væri óhjákvæmilegt, herra forseti, við tækifæri að taka umræðu um það mál, hvernig erlendir aðilar eru að koma sér hér inn í íslenskt atvinnulíf og sjálfsagt ekki aðeins þarna, heldur höfum við orðið vör við það að erlendir aðilar hafa áhuga á að sækja m.a. inn í sjávarútveginn eftir þeim glufum og götum sem eru alls staðar og út um allt í íslenskri löggjöf, því miður, í sambandi við þessi mál.
Ég hefði þess vegna talið mikið affarasælla, herra forseti, að þessi virðulega deild hefði komist að þeirri niðurstöðu að hafna frv., krefjast þess jafnframt að þingflokkarnir allir eigi aðild að endurskoðun lagaákvæða um hlut útlendinga að atvinnurekstri hér yfirleitt. Ég tel að hér sé ekki um að ræða smámál, heldur stórmál, mál sem geti skapað hættulegt fordæmi varðandi þróun atvinnulífsins á komandi árum og ég tel að við eigum ekki að spretta upp iðnaðarlögunum fyrir eitt fyrirtæki jafnvel þó að fyrirtækið heiti Lýsi hf.