16.02.1988
Efri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4595 í B-deild Alþingistíðinda. (3182)

60. mál, iðnaðarlög

Júlíus Sólnes:

Herra forseti. Mig langar í örstuttu máli að gera grein fyrir afstöðu okkar þm. Borgaraflokksins í þessu máli. Við höfum séð ástæðu til þess að samþykkja frv. og standa að þessari breytingu sem þarna er lögð til. Ég persónulega fagna því að það skuli með þessum hætti vera auðveldað samstarf iðnfyrirtækja, við erlenda aðila á ýmsum sviðum iðnrekstrar. Ég get hins vegar tekið undir með hv. 14. þm. Reykv. að að sjálfsögðu megum við ekki fara að spila með okkar sjávarútveg í þessu dæmi þannig að það kemur ekki til greina að fara að hleypa útlendingum inn í hvorki fiskvinnsluna né útgerðina þannig að þeir gætu náð hér meirihlutaaðstöðu í þessum mikilvæga atvinnuvegi þjóðarinnar.

En hvað varðar iðnaðinn gegnir allt öðru máli. Í iðnaði verðum við að sækja hugmyndir og nýjungar til útlanda og við erum mjög háðir því að geta haft margháttað samstarf við erlend fyrirtæki. Slíkt samstarf er raunar orðin forsenda og undirstaða alls iðnrekstrar um allan hinn frjálsa heim, að fyrirtækin eru í margháttuðu samstarfi yfir landamærin þannig að þau eiga aðild að iðnrekstri margra landa, sömu fyrirtækin og upplýsingar og nýjungar flæða á milli landa á mjög fjölbreytilegan hátt. Við getum að sjálfsögðu ekki einangrað okkur frá þessu samstarfi ef við ætlum að byggja upp einhvern iðnað og verðum því að taka þátt í þessu samstarfi sem jafningjar á við hina erlendu aðila. Það kann meira að segja vel að vera að það þurfi að ganga lengra í þessu efni en frv. gerir ráð fyrir, en að sjálfsögðu er eðlilegra að bíða eftir þeirri endurskoðun á iðnaðarlögum sem er fyrirhuguð áður en slíkt skref yrði stigið.

Hins vegar finnst mér sanngjarnt og eðlilegt að heimila þessa breytingu nú þar sem um er að ræða ákveðið tilvik sem felur í sér samstarf tveggja fyrirtækja. Frekar en að tefja það með því að þeim væri gert að bíða eftir heildarendurskoðun iðnaðarlaga tel ég sjálfsagt að stuðla að því að þetta samstarf geti náð fram að ganga og á þeim grundvelli styðjum við þessa breytingu.