16.02.1988
Efri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4598 í B-deild Alþingistíðinda. (3184)

60. mál, iðnaðarlög

Frsm. meiri hl. iðnn. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki miklu við að bæta, en þó, vegna þess að ég held að ég hafi skilið ræðumenn rétt að þeir hafi beint ákveðnum fsp. til mín sem þeir a.m.k. vildu fá ákveðin svör við, sé ég ástæðu til þess að koma hér upp og sting þá kannski aðeins að fleiri þáttum málsins.

Ég vil fyrst geta þess sem kom fram hjá hv. þm. Svavari Gestssyni. Ég skildi hann svo að ég hafi sagt að málið væri ekki stórt. Það er ekki rétt. Ég sagði að málið léti ekki mikið yfir sér. Ég veit að hv. þm. vill hafa það sem sannast er og því vil ég að þetta komi skýrt fram. Ég tel að málið sé ekki smámál, alls ekki.

Hv. þm. vék einnig að því og spurði hvað við teldum að væri smáfyrirtæki, hvað væri meðalstórt fyrirtæki og hvað væri hvað, hvort við teldum t.d. kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, sem rætt hefði verið um, vera smáfyrirtæki eða stórfyrirtæki. Í mínum huga er það engin spurning og ég veit að það er ljóst í huga hv. þm. að þar erum við að tala um stórfyrirtæki, kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. Það verður að koma alveg skýrt fram að ég ber mikið traust til þeirra manna sem við kölluðum fyrir okkur, t.d. þess ágæta embættismanns, Halldórs Kristjánssonar, starfsmanns í iðnrn., sem ég gekk í smiðju til í þessum efnum. Það kemur alveg ljóst fram að þessi lög opna á engan hátt fyrir stóriðju inn í þetta land. Það er alveg ljóst að þetta frv. opnar ekki fyrir stóriðju.

Um það má svo náttúrlega endalaust deila hvort þetta ákvæði hafi fallið út vegna mistaka árið 1978. Ég ætla ekkert að segja um það. Þetta er aðeins það sem kom fram í viðræðum í iðnn., að þannig hefði þetta borið að, en alla vega er þetta þó talið vera í mótsögn við 16. gr. fríverslunarsáttmálans.

Ég ætla ekki að fara að ræða um þetta sérstaka fyrirtæki sem er verið að nefna, þetta danska fyrirtæki sem hefur verið að leita eftir samráði og samvinnu við Lýsi hf. og heitir Nova. Það er ekki málið út af fyrir sig. Við ræddum það hins vegar mjög í nefndinni hvort það væri hægt og rétt að bíða eftir þessari endurskoðun, en menn voru ekki á því. Það kom upp þessi hugmynd sem hér hefur verið hreyft hvort ekki væri hægt að draga þetta mál eitt og sér út úr og flytja það hér sérstaklega inn. En að yfirsýn hinna bestu manna var það ekki talinn skynsamlegur kostur. Ég undirstrika það enn og aftur að ég treysti hæstv. iðnrh. og ríkisstjórninni allri til að fara vel og skynsamlega með þetta vald. Ég veit, eftir viðræður við formann nefndarinnar sem vinnur að þessari lagasmíð, að það er mjög stutt í það að þetta frv. komi inn á borð ríkisstjórnarinnar og þá væntum við þess að allur vafi verði þar tekinn af.

Vegna þess sem hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson sagði og beindi orðum sínum að nokkru til mín í sambandi við sjávarútveginn fannst mér að ég tæki það oft fram að hér væri alls ekki opnað fyrir það að erlendir aðilar gengju og hefðu aðgang að fyrirtækjum sem störfuðu, og að auðlindum landsins. Það er alveg ljóst og mér fannst það líka koma greinilega fram í máli hæstv. iðnrh. og ég lýsi því yfir enn og aftur, ef það má verða til þess að svara hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni, að ég get ekki undir neinum kringumstæðum fallist á að erlendir aðilar komist inn í íslenskan sjávarútveg.