16.02.1988
Efri deild: 57. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4609 í B-deild Alþingistíðinda. (3201)
231. mál, aðför
Guðmundur Ágústsson:
Herra forseti. Ég vil varðandi þetta frv. eins og það kemur frá allshn. Nd. fagna því. Ég held að þetta sé til mikilla bóta og eins og fram kom hjá hæstv. dómsmrh. held ég að þessar breytingar komi til með að spara mjög verulega tíma fógeta við fjárnám eða aðför eins og það heitir hér og komi á miklu betri reglu varðandi þessi mál. Hingað til hefur þetta verið mjög tímafrekt og kostað mikið bæði fyrir dómstólinn sem slíkan og líka fyrir aðfararþolann þar sem það hefur alltaf lent á honum að greiða að lokum þann kostnað sem á málið fellur hjá þeim sem réttinn á.
Ég fagna þessu og lýsi því hér yfir að ég mun styðja þetta og minn flokkur og vonast eftir því að málið fái greiða leið í gegnum allshn. og megi verða samþykkt á þessu þingi.